14.12.1985
Neðri deild: 30. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1631 í B-deild Alþingistíðinda. (1267)

121. mál, sala Kröfluvirkjunar

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um heimild fyrir ríkisstj. að selja Kröfluvirkjun í Suður-Þingeyjarsýslu á þskj. 258. Mál þetta var lagt fram í Ed. og hefur hlotið venjulega meðferð þeirrar hv. deildar.

Í 1. gr. segir, með leyfi hæstv. forseta:

"Ríkisstj. er heimilt að selja Kröfluvirkjun í Suður-Þingeyjarsýslu, sem til var stofnað með lögum nr. 21 frá 10. apríl 1974, til Landsvirkjunar samkvæmt samningi milli ríkisstjórnar Íslands og Landsvirkjunar um kaup á Kröfluvirkjun, dags. 26. júlí 1985.

Með mannvirkjum Kröfluvirkjunar skal fylgja réttur til virkjunar og hagnýtingar á þeirri jarðhitaorku, sem finnast kann á Kröflusvæðinu, að afli sem svarar allt að 70 mw. eins og um ræðir í nefndum samningi.“

Í 2. gr. segir, með leyfi hæstv. forseta: „Ríkisstjórninni er enn fremur heimilt að selja til Landsvirkjunar eignir Jarðvarmaveitna ríkisins við Bjarnarflag og Námaskarð í Suður-Þingeyjarsýslu ásamt rétti til virkjunar og hagnýtingar jarðhitaorku á því svæði, innan marka sem um semst, í samræmi við ákvæði í framangreindum samningi. Mun Landsvirkjun, ef sala þessi fer fram, taka við gufuveitunni í Bjarnarflagi til eignar og rekstrar ásamt skuldbindingum um gufuöflun til kísilgúrverksmiðjunnar við Mývatn, sbr. 4. tölul. 1. málsgr. 1. gr. laga nr. 80 frá 15. ágúst 1966.“

Í 3. gr. segir: „Lög þessi öðlast gildi 31. des. 1985 og falla þá jafnframt úr gildi lög nr. 21 frá 10. apríl 1974, um jarðgufuvirkjun við Kröflu eða við Námafjall í Suður-Þingeyjarsýslu.

Með leyfi forseta vil ég vitna til athugasemda á þennan hátt:

„Með frv. þessu er lagt til að ríkisstjórninni verði veitt heimild til að selja Kröfluvirkjun til Landsvirkjunar samkvæmt samningi milli ríkisstjórnar Íslands og Landsvirkjunar, dags. 26. júlí 1985. Samningurinn er fskj. I með frv. þessu. Lagt er til að með mannvirkjum Kröfluvirkjunar fylgi réttur til virkjunar og hagnýtingar á þeirri jarðhitaorku, sem finnast kann á Kröflusvæðinu, að afli sem svarar allt að 70 mw. til raforkuframleiðslu.

Þá er lagt til að lög nr. 21 frá 10. apríl 1974, um jarðgufuvirkjun við Kröflu eða við Námafjall í Suður-Þingeyjarsýslu, falli úr gildi.

Loks er í frv. lagt til að ríkisstj. verði veitt heimild til að ganga til áframhaldandi samninga um hugsanlega yfirtöku Landsvirkjunar á gufuveitunni í Bjarnarflagi til eignar og reksturs ásamt skuldbindingum um gufuöflun kísilgúrverksmiðjunnar hf. skv. 1. gr. laga nr. 80 frá 15. ágúst 1966.

Hæstv. forseti. Ég legg til að að loknum þessum umræðum verði málinu vísað til hv. iðnn. og 2. umr.