14.12.1985
Neðri deild: 30. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1635 í B-deild Alþingistíðinda. (1280)

185. mál, iðnráðgjafar

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breyting á lögum nr. 86 frá 31. des. 1981, um iðnráðgjafa.

Þar kemur fram í 1. gr. að í stað orðanna „31. des. 1985“ í 5. gr. laganna komi orðin: 31. des. 1986. Í athugasemdum segir að með lögum nr. 86 frá 31. des. 1981 voru sett sérstök lög um iðnráðgjafa. Samkvæmt lögunum er heimilt að greiða úr ríkissjóði framlög vegna launakostnaðar iðnráðgjafa er samtök sveitarfélaga eða þróunarfélög ráða til starfa. Framlögin miðast við launakostnað vegna starfs eins manns á starfssvæði samtaka sveitarfélaga eða miðað við kjördæmi. Skv. 5. gr. laganna er gildistími þeirra til 31. des. 1985 sem nú er lagt til að verði framlengdur um eitt ár.

Hæstv. forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. iðnn. þessarar hv. deildar.