14.12.1985
Neðri deild: 30. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1643 í B-deild Alþingistíðinda. (1285)

177. mál, rannsóknarnefnd til að kanna viðskipti Hafskips hf.

Páll Pétursson:

Herra forseti. Ég er á móti þessari till. Hún er enn þá fráleitari en sú rannsóknartillaga sem við ræddum í fyrrakvöld. Hugmyndir Alþb. um að setja fjórðung alþm. í rannsóknarstörf og teppa þá þar frá öðrum þingstörfum gengur ekki upp.

Ég stend upp núna, næstur á eftir varaformanni Sjálfstfl. og hluthafa í Hafskipi, til að benda á einn þátt þessa máls sem ekki hefur borið mikið á góma í þessari umræðu á þeim 10 til 20 klukkustundum sem við erum búnir að ræða málið hér í deildinni og sameinuðu þingi. Það er sú breyting sem orðið hefur á viðhorfi einstaklinga og flokka. Hafskip er ekki fyrsta fyrirtæki íslenskt sem stendur frammi fyrir gjaldþroti. Þetta er ekki fyrsta fyrirtækið sem stjórnað er af sjálfstæðismönnum og lendir í erfiðleikum. Ég ætla að rifja upp Kveldúlfsmálið sem líka hafði á sér pólitískan blæ. Kveldúlfur laut einnig stjórn sjálfstæðismanna. En hvað gerðu Thorsararnir? Þeir lögðu eigur sínar að veði, gjörsamlega allar eigur sínar að veði, og björguðu sínu fyrirtæki. Þetta var myndarleg afstaða og flokki þeirra og þeim sjálfum til ævarandi sóma.

Hér hafa menn í umræðunum greint frá einkaneyslu Hafskipsmanna og frá fasteignum þeirra og fyrirtækjum þeirra. Það verður ekki vart við það enn þá að þessir hluthafar sjái sóma sinn í því að nota eignir sínar til að greiða það sem þeir hafa haft út úr Útvegsbankanum. Hver veit nema Thorsararnir hefðu gert það? Ég bara spyr. Kannske hefðu Thorsararnir haft þá sómatilfinningu og þann metnað að láta ekki þjóðina tapa á sjálfum sér.

Nú eru breyttir tímar og þau lögmál sem gilda fyrir einkaframtakið eru líka breytt að því er virðist. Núverandi einkaframtakspostular setja sér aðrar reglur en Thorsararnir gerðu. Svona er nú frjálshyggjan í dag. Og ég vil enda mál mitt með því að fara með frjálshyggjulimru sem ég lærði um daginn. Hún er svona:

Athafnalífið er lotterí

og leggur til margs konar gotterí,

heldur fólkinu hressu

og með hliðsjón af þessu

er gjaldþrota banki hreint smotterí