14.12.1985
Neðri deild: 30. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1646 í B-deild Alþingistíðinda. (1287)
177. mál, rannsóknarnefnd til að kanna viðskipti Hafskips hf.
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Hv. 3. þm. Reykv. komst svo að orði að hann lýsti furðu sinni á að ég vildi sætta mig við rannsókn skiptaráðanda eins á þessu máli. Honum fyrirgefst þetta. Hann er nýkominn aftur til þings og hefur sennilega ekki fylgst með málinu.
Till. sú sem rædd var s.l. fimmtudagskvöld og 1. flm. að er hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir snýst um að fram fari rannsókn á vegum þingnefndar á þeim þætti framkvæmdavaldsins í þessu máli, reyndar fyrst og fremst bankastjórn og bankaráði Útvegsbankans og öðrum yfirstjórnendum ríkisbankanna. Sú rannsókn fer ekki fram hjá skiptaráðanda. Það er enginn sem framkvæmir hana nema sú till. verði samþykkt.
Hv. þm. Friðrik Sophusson vitnaði til till. BJ um að viðskrh., handhafi framkvæmdavaldsins, skipaði í bankaráð og taldi þá till. rökrétta og skynsamlega. Þvert á móti er sú till. gersamlega fráleit, einfaldlega vegna þess að það sem Alþingi þarf að rannsaka í þessu máli er þáttur framkvæmdavaldsins og handhafa þess, frá bankastjórn Seðlabanka, stjórnendum bankaeftirlits, bankastjórn Útvegsbanka, bankaráði Útvegsbanka og þátt viðskrh. í þessu máli, þannig að tillaga um að einn af þeim aðilum, þessum handhöfum framkvæmdavaldsins, skipi í bankaráð er enn fráleitari nú en nokkru sinni fyrr.
Ef við lítum á stöðu málsins er hún þessi: Hæstv. ríkisstj. hefur bent á einn þáttinn og lagt til tvennt í viðbót:
Í fyrsta lagi: Gjaldþrot Hafskipa er til rannsóknar hjá skiptaráðanda lögum samkvæmt. Í annan stað ætlaði hæstv. iðnrh. að fá sérstaka rannsókn ríkissaksóknara á sínum hlut í málinu. Því hefur nú verið hafnað. Þriðja atriðið var að ríkisstj. hyggst skipa þriggja manna rannsóknarnefnd tilnefnda af Hæstarétti Íslands.
Í umræðunum s.l. fimmtudagskvöld var því rækilega haldið fram og því ekki svarað, menn fengu engin svör, að þessi till. væri kannske sú vitlausasta af þeim öllum. Það er algerlega óhæft að ætlast til þess að Hæstiréttur gerist með þessum hætti skúringatuska stjórnmálamanna. Ef rannsókn skiptaráðanda leiðir til þeirrar niðurstöðu að um sé að ræða refsivert athæfi eða lagabrot fer það sína leið til rannsóknarlögreglu og sakadóms og taki aðrir til varna endar það í málaferlum sem að öllum líkindum munu, sbr. Jörgensensmál, sbr. Breiðholtsmál, enda hjá Hæstarétti. Það er þess vegna gersamlega fráleitt að ætla að draga æðsta dómstól þjóðarinnar inn í þetta mál á þessu stigi málsins. Eftir stendur þá aðeins eitt af málatilbúnaði ríkisstj.: Skiptaráðandarannsóknin fer fram lögum samkvæmt. Málskot iðnrh. kemur ekki lengur málinu við og þessi till. um tilnefningu Hæstaréttar er fráleit. Þess vegna segi ég: Það eina skynsamlega sem Alþingi getur gert í þessu máli er að fallast á till. hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur o.fl. sem er málefnaleg till. og styðst við fyrri fordæmi um eðlileg viðbrögð Alþingis. M.ö.o.: sjö manna þingmannanefnd sem rannsaki fyrst og fremst þátt framkvæmdavaldsins, þeirra sem ég taldi upp, frá viðskrh., stjórn Seðlabanka, bankastjórn Útvegsbanka og bankaráði í þessum málum, sem handhafi og umboðsaðili almannahagsmuna, skattgreiðenda, sem sýnilegt er að bera mikinn skaða í þessu máli. Það er raunverulega niðurstaða málsins.
Þess vegna endurtek ég að gallarnir, sem hv. 3. þm. Reykv. viðurkenndi að væru margir á till. Alþb. og eru fleiri en hann taldi upp, eru það miklir að ég skora á flm. þessarar till. að bregðast rétt og skynsamlega við, viðurkenna mistök sín við að flytja till. og draga hana einfaldlega til baka. Nú eru breyttar forsendur að því er varðar málatilbúnað ríkisstj. og þess vegna er með rökum hægt að gera sér vonir um að þingið geti náð samstöðu um rannsókn Útvegsbankamálsins og rannsókn á framkvæmdavaldinu og þætti þess á vegum þingmannanefndar.