23.10.1985
Neðri deild: 8. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í B-deild Alþingistíðinda. (129)
70. mál, kjaradómur í deilu Flugfreyjufélags Íslands og Flugleiða hf.
Frsm. 2. minni hl. (Steingrímur J. Sigfússon):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti 2. minni hl. hv. samgn., en áður en ég les það nefndarálit vil ég fara nokkrum orðum almennt um það mál sem hér er til umfjöllunar. Ætti ég víki þá ekki fyrst nokkrum orðum að niðurstöðu meiri hluta þingflokks Alþfl. í þessu máli, þeirri endemis magalendingu sem hér hefur verið gerð grein fyrir af hv. síðasta ræðumanni. Verð ég nú að segja alveg eins og er, herra forseti, að öðruvísi mér áður brá á þeim bæ, þeim flokki sem kennir sig við alþýðu þessa lands. Slík er sú afstaða sem fólst í niðurstöðu meiri hluta þingflokks Alþfl. og birtist í téðu nál. 1. minni hl.
Hv. þm. Sighvatur Björgvinsson getur út af fyrir sig haldið eins langar ræður hér og hann kjósa vill um það að þetta mál snúist ekki beint sem kjaraatriði, en fram hjá hinu kemst hann ekki að hér er tekist á um ákveðin grundvallaratriði, þ.e. íhlutun í frjálsan samningsrétt og verkfallsrétt aðila vinnumarkaðarins. Slík íhlutun á hér að fara fram og það þegar á fyrsta degi vinnustöðvunar og það er sú spurning sem hv. þm. Sighvatur Björgvinsson hefði átt að svara, og hefði ekki þurft jafnlanga ræðu til eins og hann kaus að viðhafa mörg orð um aðra hluti sem ekki koma þessu máli beint við.
Einnig er vert að íhuga, herra forseti, það andrúmsloft sem samningar hljóta að fara fram við í því fyrirtæki sem hér á í hlut, þ.e. Flugleiðum, þegar það gerist trekk í trekk að gripið er inn í samninga fyrirtækisins við starfsfólk þar með þeim hætti sem raun ber vitni. Það kom fram í viðræðum samgn. við deiluaðila að orðrómur hefði verið á kreiki um að til lagasetningar kynni að verða gripið ef ekki gengi saman með deiluaðilum fyrir einhvern tilskilinn tíma, og ekki munu þau vinnubrögð sem hér eru viðhöfð eða stendur til að viðhafa í nótt, herra forseti, draga úr því að um slíkt verði að ræða í framtíðinni ef af verður. Þar með hafa auðvitað þessi vinnubrögð fordæmisgildi sem ljóst má vera og það væri gaman að spyrja formann Alþfl., hv. þm. Jón Baldvin Hannibalsson, að því hvort í afstöðu Alþfl. nú felist einnig fordæmisgildi og væntanleg viðbrögð hans í hliðstæðum deilum í framtíðinni. T.d. ef Bandalag starfsmanna ríkis og bæja lendir í kjaradeilum og þannig stendur á að Alþýðusamband Íslands er ekki alveg samferða, má þá vænta þess með sama rökstuðningi og hv. frsm. 1. minni hl. hafði hér áðan, að Alþfl. geti stutt lagasetningu þegar, jafnvel áður en til vinnustöðvunar er komið, til þess að allir geta orðið samferða? Ræðuhöld hv. þm. Sighvats Björgvinssonar um að það væri réttlætanlegt, m.a. vegna þess að samningar væru lausir um áramót, að grípa hér til lagasetningar eru að mínu mati markleysa og bull, m.a. vegna þess að flugfreyjur eru ekki eingöngu að reyna að ná hér fram leiðréttingu almennra kjara sinna heldur eru þær einnig með sérkröfur á ferðinni, sína sérsamninga. Og ef þeirra verkfallsvopn er frá þeim tekið þegar í upphafi vinnudeilunnar, hvenær eiga þær þá að ná fram leiðréttingu á sínum sérmálum? Það kom fram í viðræðum, sömuleiðis í samgn., að þær eru að fara fram á viðurkenningu í launum vegna breytinga sem orðið hafa á þeirra störfum um borð í flugvélunum vegna breyttra vinnuaðstæðna, vegna þess að fyrirtækið hefur tekið upp breytta farrýmaskiptingu í flugvélum og vegna þess að áform eru uppi um að taka upp sölu um borð, sem bætist þá ofan á þá vinnu flugfreyjanna sem fyrir er. Þetta eru að sjálfsögðu hlutir sem hljóta að flokkast undir sérkröfur þessarar stéttar, breytingar á hennar vinnuaðstæðum, og verður að mínu viti ekki rökstutt með því að þær skuli fylgja öðrum alfarið í öðrum kjarasamningum að þessu leyti.
Það hefur einnig komið fram, herra forseti, að mismunandi mat er uppi á kröfum og aðdraganda þessarar vinnudeilu. Ég fór fram á það í samgn. að þm. gæfist að minnsta kosti eitthvert tóm til að leggja á það mat hversu mikið bæri þarna í milli. Það kom nefnilega fram að allar upplýsingar, sem stuðst hefur verið við í þessu máli hingað til um gildi þessara krafna, um tilboð Flugleiða, eru beint frá fyrirtækinu sjálfu komnar. Enginn óháður aðili hefur lagt mat á þessar upplýsingar. Það hefur þegar verið gagnrýnt hvernig fjölmiðlar hafa fjallað um þetta mál þannig að það er í hæsta máta óeðlilegt að mínu mati að þm. sé ætlað að afgreiða þetta án þess að fá nokkurn óháðan aðila til að leggja þarna dóm á. Það ætti ekki að hafa tekið aðila, t.d. hjá Þjóðhagsstofnun, langan tíma að leggja á þetta eitthvert bráðabirgðamat og það hefði að mínu viti hjálpað þm. til að leggja á það mat hvers eðlis þessi vinnudeila hefði verið.
Herra forseti. Undir álit 2. minni hl. samgn. skrifar ásamt mér hv. þm. Kristín Halldórsdóttir og það nefndarálit hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Það hlýtur að teljast mjög óæskilegt að ríkisvaldið grípi inn í samningagerð aðila vinnumarkaðarins og slík afskipti þarf að rökstyðja mjög vel. Ekki verður með nokkrum rétti sagt að sýnt hafi verið fram á að slík aðgerð hafi verið óhjákvæmileg í þessu tilviki. Alvarlegust er sú aðför að frjálsum samnings- og verkfallsrétti sem felst í þessari íhlutun stjórnvalda nú þegar á fyrsta degi vinnustöðvunar. Þar sem það er mat undirritaðra að alls ekki hafi verið reynt sem skyldi að komast að samkomulagi eftir eðlilegum leiðum erum við andvíg þessu frv. og leggjum til að það verði fellt.“
Svo mörg voru þau orð, herra forseti, gátu ekki orðið öllu fleiri tímans vegna, en ég vil að lokum segja að í afstöðu flokka til þessa máls birtast skringilegir hlutir. Ég hef áður vikið að hinu nýja andliti Alþfl. og þá væntanlega stefnu hins nýlega kjörna formanns þess flokks, hv. þm. Jóns Baldvins Hannibalssonar, og það væri fróðlegt að fá að heyra það frá þessum hv. þm. að vestan hvort hér birtist ný afstaða Alþfl. til frjáls samningsréttar og verkfallsréttar í landinu. En það væri einnig fróðlegt að fá að heyra frá öðrum hv. þm., 1. þm. Suðurl., sem einnig var kjörinn formaður í stjórnmálaflokki um svipað leyti, hvort það er flokkur hinna frjálsu samninga, Sjálfstæðisflokkurinn, sem birtist okkur í þessari lagasetningu á fyrsta degi þessarar vinnustöðvunar. Það er eins og mig reki minni til þess að sá hv. þm. hafi stundum haldið hér ræður um nauðsyn þess að aðilar vinnumarkaðarins beri sjálfir ábyrgð á samningum um kaup og kjör og einhvern tíma var hann í störfum sem eitthvað tengdust þessum málum. Hann hefur þagað þunnu hljóði, þessi hv. þm., og nú er hann hæstv. fjmrh. Ég biðst innilega forláts, herra forseti. Þetta var ekki illa meint. Mér förlaðist hrapallega. Ég er auðvitað að tala við núverandi hæstv. fjmrh. þjóðarinnar. Þeim mun meiri væri nú vigt hans ef hann kæmi hér upp og lýsti áliti sínu á þessu máli.
Það er sem sagt sérkennilegt að þeir skuli ná saman, þessir viðreisnarflokkar, í einu hjónabandi, að undanteknum auðvitað hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur, hverrar afstöðu ég met mikils og virði og hefði talið manndómsbrag að því fyrir hv. þm. Jón Baldvin Hannibalsson og hans flokksbræður sem eru karlkyns að fylgja hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur að málum í þessu efni.