16.12.1985
Efri deild: 32. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1657 í B-deild Alþingistíðinda. (1292)

2. mál, lánsfjárlög 1986

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Við 2. umr. þessa frv. ræddi ég bæði almennt um þetta frv. og eins um einstakar greinar þess og get því verið frekar stuttorð við 3. umr. frv. Frv. hefur að vísu tekið dálitlum breytingum á milli 2. og 3. umr. eins og von var á og vil ég fyrst ræða örlítið sumt af því sem fram kemur í framhaldsnál. meiri hl. hv. fjh.- og viðskn. og meðfylgjandi brtt. á þskj. 271.

Þar er fyrst til að taka lánveitingar til Byggingarsjóðs ríkisins. Í framhaldsnál. meiri hl. nefndarinnar kemur fram að samkvæmt tillögum mþn. um húsnæðislán eru lánveitingar sjóðsins auknar nú um 230 millj. kr. Þar með eru komnar á sinn stað á pappírum þær 60 millj. sem ég benti á við 2. umr. þessa frv. að vantaði í þau framlög sem sjóðnum ber samkvæmt lögum.

Hins vegar er það álitamál hvort þessar milljónir eigi í rauninni eftir að koma í sjóðinn því samkvæmt upplýsingum, sem fram komu í nefndinni og staðfestar eru í nál. meiri hl., á meginhluti þessa viðbótarfjármagns Byggingarsjóðs ríkisins að koma úr lífeyrissjóðunum. Það hlýtur að vera stór spurning hvort ekki sé löngu búið að þurrmjólka þá mjólkurkú. Ef svo reynist hins vegar ekki vera og lífeyrissjóðirnir kunna að hafa eitthvert fé til fjárfestingar í skuldabréfum, þá er líklegra að þeir taki ríkisskuldabréf þau, sem ríkissjóður gefur út nú um stundir, fram yfir skuldabréf í Byggingarsjóði ríkisins þar sem ríkisskuldabréfin fyrrnefndu eru öllu arðbærari en skuldabréf í Byggingarsjóði ríkisins. Ríkið er í hörkusamkeppni við sjálft sig á innlenda lánsfjármarkaðnum og má með sanni segja að boðorðið um frjálsa samkeppni gangi þar af sjálfu sér dauðu. Við skulum samt vona að hér sé ekki um loftkastalasmíði að ræða því að við því mega marghrjáðir húsbyggjendur og íbúðakaupendur svo sannarlega ekki eina ferðina enn.

Útflutningslánasjóður er nú kominn á blað í þessu lánsfjárlagafrv. með 40 millj. kr. Geri ég það að umtalsefni vegna þess að á fundum fjh.- og viðskn. kom í ljós að Útflutningslánasjóður lánar í rauninni ekki til útflutnings heldur lánar hann iðnfyrirtækjum til þess að þau geti betur staðið sig í samkeppni við innfluttan iðnaðarvarning. Því væri kannske réttnefni á þessum sjóði að kalla hann „samkeppnislánasjóð“ en ekki Útflutningslánasjóð. Með þessu móti má einnig segja að við séum að borga með þeim innflutningi sem inn í landið kemur.

En það sem ég vildi benda á í þessu sambandi er fyrst og fremst það að við þurfum raunverulegan útflutningslánasjóð, ekki síst nú þegar ljóst er að útfluttar fiskafurðir verða sífellt stærri hluti af útflutningsverðmæti okkar. Þær eru komnar upp í 77% núna úr 70%. Ekki er ég að harma það að öðru leyti en því að þessi einhæfni getur verið stórhættuleg afkomu þjóðar. Og mikið liggur við að reyna að gera útflutningsgreinar okkar fjölbreyttari en nú er. Þess vegna held ég að æskilegt væri að Útflutningslánasjóður yrði að útflutningslánasjóði en ekki þeim samkeppnislánasjóði sem hann er í dag.

Í brtt. frá meiri hl. hv. fjh.- og viðskn. er einnig að finna nýja till. varðandi raðsmíðaskipin svonefndu. Í þessari till. er fjmrh. heimilað fyrir hönd ríkissjóðs að ábyrgjast lán með sjálfskuldarábyrgð sem endurlánað verður vegna sölu fimm fiskiskipa sem hafa verið smíðuð innanlands á árunum 1982-1985, eins og segir í brtt.

Þeir eru þungir skuldabaggarnir sem þjóðin ber nú vegna fjárfestingarmistaka misviturra ríkisstjórna og þarna er einn þeirra. Skuldir og aftur skuldir vegna óseljanlegra og ónýtanlegra togara. Þó eru þessar skuldir ekki ýkjamiklar miðað við fjárfestingarvitleysuna í stórvirkjunum á undanförnum árum. Þar er að finna stærsta og þyngsta skuldabaggann og eina meginástæðu þess að efnahagur er þrengri hér á landi en hann þarf að vera, misþröngur þó eftir því hverjir eiga í hlut eins og hv. þingdeildarmenn vita.

Ríkisstj. hefur í þessu lánsfjárlagafrv. skorið niður framlög til Landsvirkjunar. Það hefur frá upphafi verið eitt af baráttumálum Kvennalistans að draga úr óhóflegum virkjunarframkvæmdum, og eins og ég sagði við 2. umr. þessa frv. fagna ég því að hæstv. ráðh. skuli loksins hafa séð ljósið í þessum efnum.

En þó virkjanastefnan hafi breyst hefur iðnaðarstefna hæstv. ríkisstj . greinilega ekki tekið sambærilegum breytingum. Í seinni hluta 3. gr. lánsfjárlaga er gert ráð fyrir að heimila Landsvirkjun að taka lán allt að 200 millj. kr. ef semst um stækkun álversins í Straumsvík á árinu 1986. Það er ljóst að gamli stóriðjudraumurinn er engan veginn dauður úr öllum æðum og ekki sú hugmynd heldur af baki dottin að eiga aukin samskipti við auðhringinn Alusuisse í þeim efnum því eins og allir hv. þdm. vita: Verði af stækkun álversins í Straumsvík verður það á einn eða annan hátt í samstarfi við þennan viðsjárverða auðhring. Ég hef oftsinnis varað við slíkum áformum, ekki síst vegna þess að þar með yrði þessi raforkukaupandi enn stærri en hann er þegar í íslensku efnahagslífi. Þeir sem hafa kynnt sér viðskipti okkar við þennan aðila og sögu þeirra vita að slíkt væri glapræði.

Því hef ég ásamt hv. þm. Ragnari Arnalds og Stefáni Benediktssyni borið fram brtt. á þskj. 276 þess efnis að lántökuheimild Landsvirkjunar vegna stækkunar álversins í Straumsvík falli niður. Mér liggur reyndar við að halda að síðari liður 3. gr. sé meira hafður þarna til að sýnast fyrir álrisunum, svona rétt til að hafa þá góða, því ég á bágt með að trúa því að nokkur þm. á Alþingi Íslendinga sé svo viti búinn að hann telji heppilegt að auka meira en orðið er viðskipti okkar við þessa aðila.

Mönnum til upplýsingar vil ég í því efni benda á að Alusuisse hefur á undanförnu ári eða svo reynt að afla sér samstarfsaðila í viðskiptaheiminum til að standa ásamt því sjálfu að stækkun álversins í Straumsvík en ekki tekist vegna þess að í hinum alþjóðlega viðskiptaheimi, þar sem menn kalla nú reyndar ekki allt ömmu sína, er Alusuisse svo illa þokkað að enginn vill ganga til samstarfs við fyrirtækið. Það væri því glapræði eitt og ófyrirgefanleg heimska eða eitthvað þaðan af verra ef Íslendingar hleyptu þessu fyrirtæki lengra inn á gafl hjá sér en orðið er.

Ef til vill kunna einhverjir hv. þingdeildarmenn að hugsa sem svo að það sé skömminni skárra að láta Alusuisse hafa orkuna en láta hana liggja ónotaða eins og nú er í orkukerfi landsmanna. Þeim sem þannig hugsa vil ég benda á að ef af stækkun álversins yrði þyrfti meiri orku en nú er fyrir hendi. Það þyrfti nýja virkjun, sennilegast Blönduvirkjun, sem kostar gríðarlega peninga og meiri erlendar skuldir á meðan vitað er að ekki verður hægt að semja við álhringinn um að hann borgi það fyrir orkuna sem kostar að framleiða hana. Í heiminum er þar að auki gríðarlegt framboð á ódýrri raforku nú um stundir, og draumar um hagstæða raforkusamninga við erlend fyrirtæki því órar einir.

Hvað þá umframorku sem við höfum þegar í kerfi Landsvirkjunar varðar teldi ég skynsamlegra að veita okkar eigin iðnfyrirtækjum hana með tímabundnum afslætti, t.d. fiskvinnslunni sem stendur undir meginhluta gjaldeyristekna okkar en riðar nú á fótunum vegna slæmrar rekstrarafkomu. Það væri held ég meira vit en að kasta orkunni fyrir ekki neitt í álfursta. Ekki má heldur gleyma því að þessi umframorka gæti verið nýjum innlendum iðngreinum hvatning ef henni væri veitt til þeirra með afslætti á meðan þau væru að koma undir sig fótunum. Hver veit nema við gætum þá á endanum aukið iðnaðarútflutning okkar og kannske meira að segja flutt eitthvað til Sviss.

Virðulegi forseti. Við 2. umr. þessa máls ræddi ég ýmis skerðingarákvæði II. kafla frv., en ég vil ekki skiljast við þetta frv. til lánsfjárlaga án þess að minnast sérstaklega á þá skerðingu sem Lánasjóði ísl. námsmanna virðist búin á fjárlögum og lánsfjárlögum fyrir næsta ár. Eftir því sem forráðamenn sjóðsins segja og fram kom í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins á laugardaginn var vantar 800 millj. kr. upp á að sjóðurinn geti starfað á næsta ári samkvæmt þeim lögum sem um hann gilda. Í sama fréttatíma Ríkisútvarpsins kom fram að hæstv. menntmrh. hygðist breyta lögum um sjóðinn og væri frv. þess efnis væntanlegt er þing kæmi saman á ný eftir jólaleyfi þm. Það þarf ekki mikla spádómsgáfu til að sjá að það stefnir í stórfelldan niðurskurð námslána með þessu móti og að þar verður höggvið í þann knérunn sem síst skyldi, framtíðarmenntun þjóðarinnar.

Ekki veit ég hvernig menn hafa hugsað sér að byggja hér upp nýjar atvinnugreinar, t.d. á sviði hugbúnaðar og tækni hvers konar, ef ekki á að gera fólki kleift að mennta sig til slíkra uppbyggingarstarfa. Þó vantar ekki, hvorki í stefnuræðu hæstv. forsrh. né í öðrum hátíðarræðum, að talsmenn þessarar ríkisstj. lofi og prísi og leggi óhemju áherslu á nauðsyn þess að byggja upp öflugan tækniiðnað og að leita á ný mið í atvinnuuppbyggingu hér á landi. Þetta er hins vegar ekki annað en skrum eitt á meðan undirstaðan sjálf, menntunaraðstaða þjóðarinnar er skert á sama tíma. Það er líka ekki nema skrum eitt að tala um að snúa vörn í sókn, eins og hæstv. menntmrh. gerir nú um stundir, á meðan námslán eru skert. Og það er líka skrum að tala um jafnrétti til náms meðan þannig er í pottinn búið.

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri og vísa til þess sem ég sagði um þetta frv. við 2. umr. málsins.