16.12.1985
Neðri deild: 31. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1675 í B-deild Alþingistíðinda. (1303)
174. mál, heilbrigðisþjónusta
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Eins og ég gat um við 1. umr. þessa máls tel ég að eðlilegast væri að nýju heilsugæslulögin tækju gildi fyrir Reykjavík strax um áramótin. Ég tel að ráðherra hafi haldið illa á þessu máli, það sé hið mesta klúður, og ég vil láta það koma fram að ég mun greiða atkvæði gegn málinu þegar það kemur til atkvæða eftir 2. umr.