16.12.1985
Neðri deild: 31. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1676 í B-deild Alþingistíðinda. (1309)

145. mál, stjórn fiskveiða

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Eins og ég lét koma fram við 2. umr. málsins tel ég grundvallaratriði að góð stjórn sé á fiskveiðunum. Þótt menn kunni að finna ýmsa galla á núverandi kerfi og ég sé ekki að öllu leyti við það sáttur verður að segjast að engin önnur tillaga hefur komið fram sem tekur því fram sem hér er lagt til að samþykkt verði. Með tilvísun í þetta segi ég já.