16.12.1985
Efri deild: 33. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1705 í B-deild Alþingistíðinda. (1346)
134. mál, álbræðsla við Straumsvík
Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Vegna síðustu orða hv. 5. landsk. þm. vill forseti gjarnan taka undir það og minna á að við eigum eftir að taka fyrir tvö mál sem þarf að koma til nefndar í kvöld. Það eru 1. og 6. dagskrármálið. Ég vil leyfa mér að skírskota til ágæts samstarfs við stjórnarandstöðuna um að koma málum áfram. Það hefur gengið alveg sérstaklega vel og verið góður skilningur á vinnubrögðum í þessari hv. deild. Ég efast ekki um að svo verði áfram í kvöld eins og endranær. Þó að nú hafi verið tekið smáhliðarspor í umræðunum vænti ég þess að við getum farið að stytta þær að þessu leyti.