16.12.1985
Efri deild: 33. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1705 í B-deild Alþingistíðinda. (1347)
134. mál, álbræðsla við Straumsvík
Helgi Seljan:
Virðulegur forseti. Það er rétt að hæstv. iðnrh. hefur stigið hér hliðarspor í kvöld með því að óska eftir því að hraðafgreiðsla yrði á þessu máli í hv. iðnn. Ed. Það er alveg rétt hjá hæstv. forseta og tek ég undir það.
En það voru heldur kaldar kveðjurnar sem hv. 4. þm. Vestf., hæstv. forseti Sþ., fékk frá hæstv. iðnrh. áðan þegar hann sagði að hv. þm. hefði átt að fylgjast með því þegar hann hefði verið að kynna þetta mál í þingflokki og hv. þm. hefði átt að fylgjast með því þegar hann hefði skrifað bréf í þingflokkinn. Þar af leiðandi kæmi það sér alveg á óvart að hann væri óviðbúinn því að taka til núna á nokkrum dögum, þrem, fjórum dögum, til ítarlegrar meðferðar lagafrv. af þessu tagi. Hæstv. iðnrh. var alveg undrandi.
Hæstv. iðnrh. sagði að nauðsynlegt væri að þessi samningur tæki gildi um áramótin. Ég er alls ekki viss um að það sé nauðsynlegt. Ég er nefnilega alls ekki viss um að þessi samningur sé þess eðlis að sá gróði sé af honum að það borgi sig að hann taki yfirleitt gildi. (Gripið fram í.) Ég er alls ekki viss um það. (Gripið fram í.) Hins vegar var dálítið broslegt að heyra hæstv. iðnrh. tala um að þetta yrði að gerast núna um áramót vegna þess að þá væru Kínverjar væntanlegir. Ég ætla að vona að hann ætli ekki að sprengja þá Kínverja um áramótin, það sé þess vegna sem hann er að spekúlera í þessu. (Gripið fram í.) Já, ég heyri það og sé að hæstv. iðnrh. líður illa og honum má vissulega líða illa út af þessum vinnubrögðum. Og það er full ástæða til þess að við mótmælum því þegar hæstv. iðnrh. kemur hér og segir: Menn eiga að vita þetta. Ég er búinn að kynna þetta. Ég er búinn að skrifa bréf og svo skuluð þið bara hlýða og afgreiða þetta fljótt og vel og helst ekki skoða neitt.