16.12.1985
Efri deild: 33. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1728 í B-deild Alþingistíðinda. (1359)

145. mál, stjórn fiskveiða

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Hæstv. forseti. Því stjfrv., sem hér er til umræðu, er ætlað að framlengja hið svokallaða kvótakerfi. Það er látið svo heita að frv. feli í sér umbætur á þessu kerfi sem reynsla er nú af í tvö undanfarin ár. En þvert á móti er frv, til þess fallið að festa til frambúðar þetta stjórnkerfi til framkvæmdar á fiskveiðistefnu. Hér er því alvarlegur hlutur á ferðum. Stefnt er að varanlegu skipulagi í undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar með þeim afleiðingum sem hnappheldu ríkisafskipta og ofstjórnar fylgir.

Þetta frv. til l. um stjórn fiskveiða 1986-1987, sem hér er til umræðu, er þriðja aðgerðin til að festa hið svokallaða kvótakerfi og lögbinda. Ég hef frá öndverðu verið andvígur þessari stjórnunaraðferð við fiskveiðar og mælt gegn henni hér á hv. Alþingi.

Það væri freistandi að ræða ítarlega um málið nú og ítreka og leggja áherslu á rökin gegn kvótakerfinu. En bæði er að enginn þarf að vera í vafa um skoðanir mínar í þessu efni, svo og að harla áliðið er nú orðið. Ég skal því í þetta sinn takmarka mál mitt við það þrautaráð sem formælendur kvótakerfisins grípa til þegar þeim er ekki lengur fært að loka augunum fyrir reynslunni og hafna staðreyndum.

Þegar allt um þrýtur benda formælendur kvótakerfisins á að útgerðarmenn sjálfir, sem eiga að búa við stjórnkerfið, séu því samþykkir og vilji við það una. Þetta er haldreipi þeirra sem boða kvótakerfið sem fagnaðarerindi og unnið hafa leynt og ljóst að því að samtök útgerðarmanna tækju afstöðu með kvótanum.

En þetta er ekki síður skálkaskjól hinna sem berja sér á brjóst og þakka guði fyrir að vera ekki eins og aðrir menn því að þeir séu á móti kvótanum en þó verði þeir að vera með honum þar sem samtök útgerðarmanna mæli með honum.

Mikið vald er Landssambandi ísl. útvegsmanna gefið. Sjálfsagt er að hlusta á rödd slíkra samtaka. Útgerðarmenn eiga hér vissulega hlut að máli, en svo er einnig um fleiri. Ekki er sjómönnum óviðkomandi stjórn fiskveiða né samtökum sjómanna, yfirmanna og undirmanna. Sama verður sagt um eigendur fiskvinnslufyrirtækjanna og samtaka þeirra og ekki má gleyma fólkinu sem vinnur við fiskinn, verkafólkinu í fiskiðnaðinum og hagsmunasamtökum þess.

Þegar grannt er skoðað eru það harla margir landsmanna sem eiga hlut að máli þegar mótuð er stefnan í fiskveiðum. Ætti það varði raunar ekki allan landslýð hver stefnan er í grundvallaratvinnuvegi þjóðarinnar. Þetta verður umfram allt að hafa í huga við mótun fiskveiðistefnunnar. Meira að segja verður að gjalda varhug við því að láta ánetjast af sérhagsmunum sem einstakir aðilar kunna að hafa. Hagur alþjóðar verður ávallt að vera í fyrirrúmi.

Sérhagsmunirnir geta sagt til sín með mismunandi móti. Sérhagsmunirnir geta jafnvel tekið á sig hinar furðulegustu myndir. Það eru t.d. sérhagsmunir þeirra félaga LÍÚ sem eiga skip sem ekki er haldið úti til veiða en gerð eru út til sölu á veiðikvóta. En slíkir hagsmunir þurfa ekki að vera hagsmunir útgerðarinnar í heild, hvað þá heldur þjóðarhagsmunir. Sumir geta tekið sitt á þurru við skipulag kvótakerfisins. En það breytir engu um eðli þess og skaðsemi fyrir þjóðarheildina.

Það er hægt að venja hagsmunahópa eða jafnvel heilar stéttir með gjöf á ríkisjötuna. En það rekur að sláturtíðinni fyrr eða síðar. Þeir sem njóta öryggis ríkisafskiptanna í bili verða óþarfir til lengdar við framtíðarskipulag ríkishnappheldunnar. Þannig geta misskildir eiginhagsmunir leitt til sjálfstortímingar. Svo geta brugðist krosstré sem önnur tré ef ekki er að gáð.

Kunnugt er dæmi úr breskri sögu. Þegar Bretar háðu sína hetjubaráttu í heimsstyrjöldinni síðari settu þeir upp kerfi ríkisafskipta og ríkishafta sem stríðsreksturinn krafði. Sérstakt ráðuneyti hafði með þessi mál að gera. Eftir styrjöldina kom til valda sósíalistastjórn í Bretlandi. Þessi stjórn taldi rétt að viðhalda í ýmsu því kerfi sem komið var upp í stríðinu því að það væri einföld leið til að koma á skipan sósíalisma til frambúðar.

Þegar stjórnartímabili sósíalista lauk og íhaldsflokkurinn kom til valda á ný undir forustu Winstons Churchill var sérstöku ráðuneyti falið að afnema kerfi ríkisafskipta og ríkishafta sem komið hafði verið upp í stríðinu.

Það vildi svo til að sami maðurinn var sá ráðherra sem hafði verið falið að byggja kerfið upp og sem fékk það hlutverk að rífa það niður. Sá merki stjórnmálamaður, sem þessu tvíþætta hlutverki gegndi, segir í ævisögu sinni að hlutverk sitt hafi verið vandasamt í báðum tilfellum, en sýnu erfiðara hafi verið að rífa kerfið niður. Þar hafi komið til að ýmsir þeirra sem kerfið varðaði mest í framkvæmd, iðjuhöldar og verslunarjöfrar, hafi viljað viðhalda kerfinu þegar hér var komið. Þeir hafi verið orðnir vanir ríkisafskiptunum sem veitt hafi þeim visst öryggi því að þeir hafi haft sitt á þurru og ekki þurft að mæta áhættunni sem fylgir frjálsri samkeppni.

Málið var þeim mun erfiðara þar sem hér áttu í hlut máttarstólpar íhaldsflokksins, segir hinn merki stjórnmálamaður sem hér kemur við sögu. En breski íhaldsflokkurinn ákvað að kerfið skyldi lagt niður, hvað sem liði hagsmunum iðjuhölda og verslunarjöfra, vegna þess að þjóðarhagsmunir krefðust. Svo var litið á að iðjuhöldar og verslunarjöfrar gætu ekki gegnt sínu mikilvæga hlutverki í skipulagi sósíalisma heldur einungis við skipulag frjálsrar verslunar. Íhaldsflokkurinn var ekki handbendi sérhagsmuna heldur tryggði þjóðarhagsmuni.

Hér á landi höfum við komið okkur upp kerfi ríkisafskipta og ofstjórnar í undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Til þess rak engar nauður. Það reyndist tiltölulega auðvelt að koma þessu kerfi á en það ætlar að reynast sýnu erfiðara að leggja kerfið niður. Kemur þar til að þeir sem kerfið varðar mest í framkvæmd, meiri hluti útvegsmanna, vilja viðhalda kerfinu. Þeir telja sig hafa sitt á þurru við þær aðstæður sem kerfið býður upp á. Þeir sjá sér í bili hag í að viðhalda því kerfi sem leitt getur til framtíðarskipulags sem gerir þá sjálfa óþarfa til frambúðar. Raunin er sú að þeir grafa sér sína eigin gröf.

Með því að viðhalda ríkisafskiptum og ofstjórn kvótakerfisins er stigið örlagaríkt spor til þjóðnýtingar á Íslandi. Útgerðarmenn gegna ekki sínu mikilvæga hlutverki í þjóðnýttum sjávarútvegi því að aðeins fær notið sín atorka, dugnaður og framtak að frelsi til athafna sé virt.

Alþingi má aldrei vera handbendi misskilinna sérhagsmuna heldur verður það að tryggja hagsmuni alþjóðar. Þess vegna krefjast þjóðarhagsmunir að kvótakerfið verði afnumið.