23.10.1985
Neðri deild: 8. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í B-deild Alþingistíðinda. (136)
70. mál, kjaradómur í deilu Flugfreyjufélags Íslands og Flugleiða hf.
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að vekja athygli á lögum sem sett voru á Alþingi 28. maí 1980, eru nr. 46 og heita „Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.“ IX. kafli þessara laga hljóðar svo, með leyfi forseta:
„52. gr. Vinnutíma skal hagað þannig að á hverjum sólarhring, reiknað frá byrjun vinnudags, fái starfsmenn a.m.k. tíu klukkustunda samfellda hvíld. Samfelldan hvíldartíma má stytta í átta klukkustundir með samkomulagi milli aðila vinnumarkaðarins um framkvæmd þegar um er að ræða a) vaktavinnu, b) störf að landbúnaði, c) björgun verðmæta frá skemmdum, svo sem sjávarafla.“
Það liggur ljóst fyrir að hv. alþm. munu ekki fá samfelldan tíu tíma hvíldartíma á þessum sólarhring né heldur átta tíma, enda ekki ástæða til að stytta hann í átta tíma þar sem við höfum, eins og flugfreyjur, ekki vaktavinnu. Við erum ekki, vænti ég, að stunda hér landbúnað né bjarga verðmætum, svo sem sjávarafla. Ég vil því spyrja herra forseta: Ætlar Alþingi sjálft að ganga fram í því að brjóta sín eigin lög áfram meira en verið hefur?
Ég leyfi mér, herra forseti, að lesa 53. gr. sömu laga: „Verði truflun á starfsemi vegna ytri aðstæðna, svo sem vegna veðurs eða annarra náttúruafla, slysa, orkuskorts, bilunar í vélum, tækjum eða öðrum búnaði eða annarra tilsvarandi ófyrirséðra atburða, má víkja frá ákvæðum 52. gr. að því marki sem nauðsynlegt er til þess að koma í veg fyrir verulegt tjón þar til regluleg starfsemi hefur komist á að nýju.“
Veður er nú prýðilegt, náttúruöflin tiltölulega róleg, engin slys hafa orðið svo vitað sé og orkuskortur er hér enginn né bilun í vélum, tækjum eða öðrum búnaði og engir ófyrirséðir atburðir hafa orðið. Þess vegna liggur það væntanlega ljóst fyrir, herra forseti, að engin ástæða er til að gera frávik frá þessum lögum.
Vegna þess sem er að gerast og umræðan dregst svo mjög tel ég rétt að líta til 55. gr. þar sem nú er kominn fimmtudagur:
„Á hverju sjö daga tímabili skulu starfsmenn fá a.m.k. einn vikulegan frídag sem tengist beint samfelldum daglegum hvíldartíma, sbr. 52. gr. Að svo miklu leyti sem því verður við komið skal vikulegur frídagur vera á sunnudegi og að svo miklu leyti sem því verður við komið skulu allir þeir sem starfa í fyrirtækinu fá frí á þeim degi.“
Ég vil biðja hæstv. forseta að sjá svo til að við fáum frí n.k. sunnudag. Ég vil vekja athygli á þessu vegna þess að ég held að hér sé unninn óhóflegur vinnutími og að flestu leyti þýðingarlaus úr því sem komið er. Það er alveg ljóst að þessu máli verður ekki lokið hér í nótt. Ég vil mælast til þess að þessum fundi verði nú þegar frestað.