16.12.1985
Efri deild: 33. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1732 í B-deild Alþingistíðinda. (1361)

145. mál, stjórn fiskveiða

Valdimar Indriðason:

Virðulegi forseti. Það er eins og oft áður að farið er að líða á nótt þegar við ræðum hin dýpri mál hér sem varða þjóðina miklu. Því miður er sú staða uppi einu sinni enn. Þetta hefur skeð áður hjá okkur og verðum við að takast á við þann vanda eins og hann er.

Ég ætla að fara nokkrum orðum um það frv. sem hér liggur fyrir, en áður en ég byrja á því get ég tekið undir það með mörgum þeim sem hér hafa talað að staða sjávarútvegsins í heild er mjög erfið vægast sagt. Þar eru því miður ekki fyrirsjáanlegar neinar úrbætur á næstunni, sérstaklega varðandi fiskvinnsluna. Við þurfum að taka okkur vel saman í andlitinu ef þar á að verða bót á svo að hægt sé við að una.

Ef við snúum okkur að frv. held ég að við séum öll sammála um að á einhvern hátt verður að stjórna veiðum, a.m.k. þorskveiðum. Ég hef engan heyrt mæla á móti því að einhvers lags stjórnun yrði að vera. Deilt er um það hvort við eigum nota svokallað kvótakerfi eða fara hina svokölluðu tegundamarksleið, þ.e. nota gamla skrapdagakerfið. Eins og hér hefur komið fram skiptist þetta nokkuð á milli landshluta. Greinilegt er að Vestfirðingar og meginþorri Breiðfirðinga eru fylgjandi því að taka upp svokallaða tegundamarksleið sem er nýyrði nú frá því í haust. Áður hét það skrapdagakerfi. Ég man ekki hvað hv. þm. Skúli Alexandersson kallaði það í sínu frv. í sumar. Það var ekki sama nafn. En þetta er kallað tegundamarksleið nú og það er ágætis nafn.

Bæði kerfin hafa sína galla. Ég get vel skilið Vestfirðinga og segi það við hv. 4. þm. Vestf. að ég skil ákaflega vel þeirra sjónarmið í ljósi þess hvernig unnið hefur verið í þessu kvótakerfi í þau tvö ár sem það er búið að vera ríkjandi. Það er ákaflega eðlilegt að aðilar fyrir vestan, t.d. á togurum, sem hafa haft viðmiðunarmarkið 1500 lestir af þorski þegar togarar hér sunnan- og suðvestanlands hafa verið með 750 tonn, vilji ganga af meira krafti styttra á miðin til að ná sér í meiri þorsk. Þetta skil ég ákaflega vel. En við verðum samt að hafa uppi ákveðnar leikreglur. Ég tel ekki að við séum á nokkurn hátt að bregðast frjálsræðishugsjónum okkar þó að við viljum hafa ákveðna stjórn á hlutunum. Við getum ekki í okkar litla þjóðfélagi haft allt laust, því miður.

Hv. 4. þm. Vesturl. rifjaði upp hvaða samtök hefðu fjallað um þessi mál og talaði t.d. um Landssamband ísl. útvegsmanna. Það gerði hv. 4. þm. Vestf. einnig. Mér fannst nokkuð aflagað sumt af því sem þar var sagt.

Það er rétt að tonnatala ræður atkvæðamagni á landssambandsfundum. Þar vega þungt þeir stóru togarar sem eru yfir 500 tonn og eins loðnuflotinn að stærri hluta. En það eru einnig þar þorskveiðimenn sem hafa verið á minni skipunum en stunda einnig loðnu. Ég sat á þessum fundi sem gestur. Útkoman er sú að 78% fylgja þeirri leið sem frv. gerir ráð fyrir.

Það má benda á að fyrsta árið, sem kvótinn var samþykktur með miklum þrautum, börðust hatrammast gegn honum fulltrúar Félags ísl. botnvörpuskipaeigenda eða togara yfir 500 tonn. Þessir menn fylgja honum harðast í dag. Ég ætta ekki að dæma af hverju. Þeir hafa eitthvað lært af reynslunni. Þeir fylgja þessu máli mjög fast í dag. Það er rétt að minna á þetta því að það gat valdið misskilningi hvernig að þessu er staðið. Ég vil heldur ekki láta orð að því liggja að hin virðulega samkoma, fiskiþing, sé hálfgerður klúbbur góðra manna sem sé lítt mark takandi á. Þessu mótmæli ég.

Ég vil benda á að í þessu frv. eru allmargar breytingar til hins betra frá því sem áður var. Það er verið að læra af reynslunni. Ég ætla ekki að strika undir að festa þurfi þetta í sessi um aldur og ævi. Það getur vel verið að mönnum sýnist svo að þetta sé betra en að taka upp algert frjálsræði eins og áður var. En það þarf áreiðanlega, hvað sem gert er í þessum efnum, að stilla saman veiðar og vinnslu til að geta fengið sem mestan arð út úr því verðmæta hráefni sem við drögum að landi. Og það fullyrði ég að það gerum við ekki frekar með tegundamarksleiðinni en kvótakerfinu.

Ég vildi ekki sjá framan í fólk vestur á Snæfellsnesi eða í Ólafsvík ef bátar þar, sem hafa valið tegundamarksleiðina, fá góða vertíð eins og þeir hafa fengið undanfarið og það verður að loka fyrir tegundir vegna þess að það þorskmagn, sem átti að veiðast þá, er búið mun fyrr en ætlað var. Hvað er þá með atvinnuna á þessum stöðum og hver er þá meðferð aflans sem búið er að hrúga í land á svo skömmum tíma að ekki ræðst við? Ég tel þetta ekki vera til bóta frá því kerfi sem kvótinn býður upp á. Þetta er mín skoðun.

Í frv. er einn liður sem mönnum hefur láðst að minnast á hér en hefur verið mikið vandamál hjá hæstv. ráðh. og þm., þ.e. vandamál smábátanna. Smábátaeigendur eru mjög fjölmenn stétt eins og allir vita og fjölgar mjög í henni. Frv. tekur á því máli. Það má segja að það sé þeim aðilum sem þar hafa að staðið sjálfum að þakka. Þeir mynduðu sín landssamtök fyrir nokkru og það merkilega skeði að þeir náðu þar fullu samkomulagi. Mér sýnist að við þeirra óskum hafi verið orðið að verulegu leyti í þessu frv. Eftir því sem ég hef talað við eru þeir mjög sáttir við það sem þarna er fram komið.

Meðferðin á smábátaeigendum var eitt stóra vandamálið sem var alltaf að veltast á milli okkar hér í þinginu, í fjölmiðlum og annars staðar, en það er leyst hér og það verður undirstrikað betur í reglugerð þegar hún kemur. Þetta vil ég að við drögum einnig inn í umræðuna.

Ég held að ég þurfi ekki að hafa um þetta mörg orð í viðbót. Ég er formaður þeirrar nefndar sem um þetta mun fjalla og fundur er boðaður kl. hálftíu í fyrramálið. Það er því rétt að fara að hvílast og undirbúa sig undir þá orrustu. Ég mun gera ráðstafanir til þess að við fáum inn á þann fund þau drög að reglugerð sem eru komin svo að við getum farið í gegnum hana og skoðað hlutina yfirvegað og rólega og séð hvernig okkur líst á. Þá held ég að við munum nokkuð friðmælast í þessum efnum.

Við megum ekki bíta okkur fast í ákveðnar skoðanir, eins og ég hef einhvern tíma sagt, segja sem svo að sú leið sem ég vil fara sé sú eina rétta eða sú sem hinn vill fara sé sú eina rétta. Við verðum að finna á þessu sem réttlátasta lausn sem við getum öll við unað. Þess vegna veit ég og vona að nm. sjútvn. munu vinna þetta mál hratt en þó án alls þrýstings og leita upplýsinga eins og hægt er í þeim efnum svo að það geti komið sem fyrst fyrir þessa virðulegu deild þannig að það styttist frekar í okkar jólafrí.