16.12.1985
Efri deild: 33. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1739 í B-deild Alþingistíðinda. (1365)
145. mál, stjórn fiskveiða
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Ég skal ekki lengja þessar umræður, en það er af sérstöku tilefni sem ég bað um orðið. Fyrst ég er kominn hingað upp ætla ég aðeins að leiðrétta ráðherra í sambandi við gagnrýni mína á hans ferðalög. Það er af og frá að ég gagnrýni ráðherra fyrir að ferðast og hitta fiskimenn og fiskvinnslufólk. Það er sjálfsagt og mjög gott. En þegar verkefnið er rekið, eins og hann hefur gert það og gerði það undanfarið haust, í einstefnu í boðun þessarar fiskveiðistefnu gagnrýni ég. Og ég gagnrýni einnig að hafa með sér vísindamenn opinberrar stofnunar og með því móti að setja vissan vísindastimpil á þessa boðun. Hitt er ekki nema sjálfsagt og mjög gott að stjórnmálamenn geri sem mest af því að fara út á meðal fólksins og spjalla við það, heyra skoðanir þess og bjóða því upp á viðræður.
Ráðherra sagði í lok ræðu sinnar að meðan við værum með jafnstóran flota og við höfum þyrftum við á mikilli stjórnun að halda. Það má vel vera og eru viss rök fyrir því að við þurfum að stjórna. En ég lít svo á að flotanum okkar sé rangt stjórnað í dag og við séum alls ekki með of stóran flota. Við beitum þeim flota sem við höfum með allt of mikilli hörku. Við sækjum allt of stíft og komum þar af leiðandi ekki með eins gott hráefni inn og við gætum ef við nýttum þennan flota á annan máta en við gerum í dag. Ég er á því að við þurfum að endurnýja þann flota sem við eigum sem allra fyrst og við þolum það vel að hafa nokkuð stærri flota en nú er, jafnvel til að nýta þann stofn sem við búum við núna, en við þurfum að gera það á annan máta og ekki með þeim krafti og þeirri kraftasókn sem við beitum.
Hv. 3. þm. Suðurl. kom í pontuna og nefndi ýmislegt. Fyrst vil ég taka undir með honum þar sem hann benti á að það væri einn staður á landinu sem þyrfti að njóta sérréttinda. Það er Grímsey. Ég tek heilshugar undir það. En það er ekki aðeins einn slíkur staður. Það eru tveir staðir sérstakir. Það eru Grímsey og Árneshreppur á Ströndum. Þó að Árneshreppur sé í vissum landfræðilegum tengslum er hann að mörgu leyti eins og eyja og sjávarútvegur er stundaður þaðan á mjög svipaðan máta og í Grímsey. Ég tel nauðsynlegt að við tökum einmitt þennan þátt upp í nefndinni og tek undir ábendingar þm. um það. (Gripið fram í.) Á það stefnir ekki enn þá. Það er nákvæmlega það sama eins og í Grímsey.
Hv. þm. taldi við hæfi að koma hingað upp í ræðustól Ed. og ráðast á fjarstaddan þm. og hafa eftir honum orð sem ég kann ekki að segja hvort eru sönn eða ekki, en hann bar á hann þannig lagaðan munnsöfnuð að hann líkist frekast því þegar sá hv. þm. beitir höndunum. Ég mótmæli slíkum ummælum á þessum stað án þess að viðkomandi þm. hafi möguleika til að svara fyrir sig - og svara fyrir sig á þann máta sem hv. þm. hefur áður talað um að gert sé að sjómannasið.