17.12.1985
Sameinað þing: 31. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1771 í B-deild Alþingistíðinda. (1381)
Um þingsköp
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Hér hefur um nokkurt skeið legið fyrir á þskj. 174 fsp. um kaup á Dauphin-þyrlu Landhelgisgæslunnar. Í gær barst mér bréf frá yður, herra forseti, þar sem kynnt var svar fjmrh. sem hafði fengið hæstv. dómsmrh. til að svara fsp. Mér hafði ekki gefist langur tími til að líta á svörin þegar ég sá að á þeim var ekkert að byggja. Ég hef þess vegna ákveðið, herra forseti, að skila þessu þingskjali aftur með beiðni um að hæstv. ráðherrar endurskoði svör sín.
Rök mín eru þau að spurt var m.á. í 8. lið í fsp. minni hvers vegna hefði þurft að fjarlægja tæki úr vélinni áður en henni var flogið frá Færeyjum til Íslands. Svar hæstv. dómsmrh. er að þess hefði engin þörf verið, heldur hefði það þótt hentugra.
Í 9. lið er spurt hvaða aðili eða aðilar hafi haft umboð hér á landi fyrir Aerospatiale-verksmiðjurnar, sem þyrluna framleiddu, frá árinu 1980 - og ég undirstrika: frá árinu 1980. Svar hæstv. dómsmrh. er svohljóðandi: „Ókunnugt er um hver var umboðsaðili fyrir Aerospatiale-verksmiðjurnar 1980.“ Hins vegar er tekið fram að Gunnar Ásgeirsson hf. hafi tekið umboðið að sér í apríl 1983 og það er rétt. Hins vegar, ef hæstv. dómsmrh. og starfsmenn hans ekki vita, er gefið út rit sem heitir Íslensk fyrirtæki. - Ég er rétt að ljúka máli mínu, herra forseti. (Forseti: Það er ekki spurning um hvort hv. þm. er að ljúka máli sínu eða ekki, heldur spurning um hvort hann er að tala um þingsköp.) Ég er að tala um þau þingsköp, herra forseti, að hæstv. fjmrh. og hæstv. dómsmrh. hafa sagt ósatt í svari til alþm. hér á hinu háa Alþingi. Það hefur verið skrökvað á þingskjali. Því mótmæli ég og skila því þessum gögnum aftur og óska eftir heiðarlegu svari. Ég skal ljúka máli mínu, herra forseti.