17.12.1985
Sameinað þing: 31. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1773 í B-deild Alþingistíðinda. (1389)
Um þingsköp
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á því að 13. nóv. eða fyrir rúmum mánuði var lögð fram fsp. á Alþingi til fjmrh. um bifreiðamál ráðherra. Þrátt fyrir að rúmur mánuður sé liðinn frá því að þessi fsp. var lögð fram hefur enn ekki borist svar við henni. Ég tel ekki að svo langan tíma ætti að taka að svara henni. Þar sem svo skammt er til jólaleyfis þm. vil ég fara þess á leit við hæstv. forseta að hann geri það sem í hans valdi stendur til þess að svör við þessari fsp. fáist fyrir jólaleyfi.