17.12.1985
Sameinað þing: 31. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1774 í B-deild Alþingistíðinda. (1394)
Um þingsköp
Landbrh. (Jón Helgason):
Herra forseti. Hv. 4. þm. Norðurl. e. spurðist fyrir um svar við fsp. sem hann hafði borið fram fyrir alllöngu. Ég veit að það er verið að vinna að þessu svari. Þar sem ég spurðist ekki fyrir um það áður en ég fór hingað niður eftir hvað því liði á þessari stundu get ég ekki fullyrt neitt, en ég vonast til þess að það geti borist sem fyrst.