17.12.1985
Sameinað þing: 31. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1776 í B-deild Alþingistíðinda. (1405)
Um þingsköp
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Ég vek athygli hæstv. forseta á að hæstv. viðskrh. hefur farið út í efnislega umræðu um fsp. sem ekki er á dagskrá. Það væri fróðlegt að vita hvort ég hefði sömu aðstöðu til þess. Hann ræðir um einn lið í fsp. Hann upplýsir að hann muni alls ekki geta gefið Alþingi upplýsingar um hvort fullnægjandi tryggingar séu fyrir hendi í ríkisbönkunum varðandi lánafyrirgreiðslu til stærstu skuldunauta bankanna. Það er út af fyrir sig athyglisverð yfirlýsing hjá ráðherra. Ég ætla honum ekki að fara að kafa ofan í tryggingar hjá bönkunum, eins og hann orðar það. Ég ætlast til þess að hann geti sem yfirmaður banka fengið þessar upplýsingar hjá ríkisbönkunum sem um er beðið.