17.12.1985
Sameinað þing: 32. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1780 í B-deild Alþingistíðinda. (1411)
18. mál, rannsókn á innflutningsversluninni
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Aðeins lítið innlegg í þessa umræðu.
Það er reyndar mjög skemmtilegt að heyra hv. þm. Friðrik Sophusson tala eins og félagi hv. þm. Svavar Gestsson hafi verið hér forsrh. hvað eftir annað, en ógæfa Alþb. hefur nú raunar legið í því að vera ævinlega í samsteypuríkisstjórnum. En það var ekki það sem ég ætlaði að segja. Ég geri ráð fyrir að hv. þm. Svavar Gestsson svari fyrir sig sjálfur.
En vegna orða hv. þm. Friðriks Sophussonar um að samkeppni hafi aukist og verðlag lækkað í þessu landi vil ég vekja athygli hv. þm. á smágrein sem birtist í Dagblaðinu í gær og heitir „Vöruskortur vegna okurlánamálsins“. Ég ætla að leyfa mér, herra forseti, ef ég get komið einhverju tauti við gleraugun mín, að lesa upphaf þessarar litlu greinar:
„Ástandið er nú vægast sagt uppvænlegt. Fólk hefur haldið að sér höndum og er ekki byrjað að versla til jólanna. Það þýðir að verslunareigendur hafa ekki peninga á milli handanna til að leysa vörur sínar úr tolli. Okurlánamálið hefur haft sitt að segja í þessu sambandi. Nær ógjörningur er að fá lánaða peninga hjá einstaklingum til að leysa út vörur. „Það er greinilegt að menn eru ekki tilbúnir að lána peninga á meðan okurlánamálið er enn í rannsókn hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins“, segir einn reykvískur verslunareigandi í samtali við DV í gær. Vöruskortur er nú hjá verslunum og þá sérstaklega fata- og tískuverslunum. Mikið af nýju jólavörunum er ekki komið í margar búðir. Það sýnir best ástandið að miklu minna er um auglýsingar í blöðum heldur en undanfarin ár.“
Hvað þýðir þetta? Að hin aukna samkeppni hefur rekið sig með okurlánum að einhverju marki. Og hver skyldi nú borga okurvextina af þeim peningum? Ætli það sé ekki almenningur í landinu? Er það það sem hv. þm. kallar lækkað vöruverð? Við venjulegir borgarar höfum oft undrast hvernig sama vara keypt í næsta landi getur kostað allt að sex, sjö sinnum meira þegar hún er komin hér upp á Laugaveg. Ég verð að játa að ég hafði ekki haft hugmyndaflug til að ímynda mér að það væri vegna þess að kaupmenn taka skammtíma okurlán, þá á trúlega allt að 200% vöxtum, og láta okkur foreldrana í landinu borga þá vexti þegar við kaupum föt á börnin okkar.
Hv. 2. þm. Reykv. talaði um að það hefði legið í orðum hv. þm. Svavars Gestssonar að það væru m.a. glæpamenn sem önnuðust innflutningsverslun. Ég spyr hv. þm.: Jaðrar þetta ekki við glæpamennsku gagnvart hinum almenna borgara í þessu landi? Ég held að það sé full ástæða til þess að kjósa nefnd til að rannsaka málefni innflutningsverslunarinnar eins og þegar liggur fyrir að rannsaka skuli málefni bankanna. Ég sé ekki annað, hv. þm. Friðrik Sophusson og herra forseti, en að hið háa Alþingi sé upp að öxlum í foraðsfeni fjárglæfra dag eftir dag. Þess vegna kemur það spánskt fyrir sjónir að hér sé talað um að samkeppni hafi aukist og verðlag lækkað. Ég held að landsmenn kunni ekki alveg við þá skýringu.