17.12.1985
Sameinað þing: 32. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1785 í B-deild Alþingistíðinda. (1414)

18. mál, rannsókn á innflutningsversluninni

Flm. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Ég heyrði það mér til ánægju að hv. 4. þm. Norðurl. v. hefur fundið til í réttlætistauginni þegar ég var að tala áðan og var hinn reiðasti og talaði sjálfsagt frá hjartanu, en ég verð að hryggja hann með því að það er ekki bara Alþb. sem hefur stjórnað landinu á undanförnum árum. Ég ætla að benda honum á að lesa fjárlögin til að finna út hverjir hafa verið drýgstir við að leggja á óbeina skatta á Íslandi. Það er eins og fyrri daginn að þegar kemur að því að þeir sjálfstæðismenn eru að ráðast á Framsfl. eða Alþb. eða Alþfl. eru þeir gjarnan að gagnrýna hver annan. Það er sérkennilegt að þeir skuli gera það með þeim hætti, eins og hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson gerir, að þeim manni fjarstöddum sem hann er að skamma, þ.e. hv. þm. Matthíasi Mathiesen. Það var hann sem fann upp tímabundna vörugjaldið. Það var fjarskalega tímabundið fyrst. Það var lagt á með brbl. og átti að gilda í sex mánuði. Síðan var það lagt á aftur og átti að gilda í eitt ár. Svo var lagt á aftur og átti að gilda í eitt ár. Síðan tókum við við og framlengdum þetta. Svo tók hv. þm. Eyjólfur Konráð við og framlengir þetta enn. Auðvitað er bersýnilegt að hér hafa menn verið að öngla saman peningum í hina félagslegu þjónustu, en uppfinningamaðurinn, sem hv. þm. er að skamma, heitir því miður Matthías Á. Mathiesen.