17.12.1985
Sameinað þing: 32. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1793 í B-deild Alþingistíðinda. (1424)

167. mál, jarðhiti í heilsubótarskyni

Flm. (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Virðulegi þm. Ég mæli hér fyrir 167. máli sem er till. til þál. um nýtingu jarðhita í heilsubótarskyni. Flm. eru auk mín hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson, Eggert Haukdal og Friðjón Þórðarson. með leyfi hæstv. forseta les ég tillögutextann sem er mjög stuttur:

„Alþingi skorar á ríkisstjórnina að láta gera áætlun um það á hvern hátt jarðhiti og hveravatn verði best nýtt hér á landi í heilsubótarskyni. Jafnframt verði kannað á hvaða stöðum helst komi til greina að reisa heilsubótarstöðvar er byggi starfsemi sína á jarðhita og hver sé rekstrargrundvöllur slíkra stöðva“.

Þetta er, herra forseti, texti þeirrar þáltill. sem hér er flutt í annað sinn þar sem hún varð ekki útrædd á síðasta þingi.

Það er skoðun okkar flm. að það sé löngu orðið tímabært að við hyggjum hér á landi að því máli að nýta þá miklu möguleika sem fólgnir eru í þessari auðlind og hefjumst handa um að byggja heilsubótarstöðvar þar sem, að fordæmi fjölmargra erlendra þjóða, nýttur væri jarðvarmi, hveravatn, hveraleir og ölkelduvatn, svo maður nefni nú höfuðþættina. Þetta eru náttúrugæði sem óvíða er að finna í Evrópulöndum og skapa því hér á landi mun betri aðstöðu, vegna þess að Ísland er einstakt eldfjallaland, á þessu sviði heldur en annars staðar í Evrópu.

Slíkar heilsubótarstöðvar mundu, eins og reynslan í Hveragerði sýnir, verða sóttar í verulegum mæli af Íslendingum en eins og menn vita eru jafnan hundruð manna á biðlista til þess að njóta þeirrar aðstöðu sem boðið er upp á í Hveragerði á hæli Náttúrulækningafélagsins þar. Þá má einnig telja líklegt að útlendingar muni í allríkum mæli nýta sér þessa þjónustu, ef fyrir hendi væri hér á landi, í meira mæli en er í dag. Þannig gæti stofnun slíkra heilsuræktarstöðva sem byggja á jarðhita orðið mikilsverð tekjulind að því er varðar ferðamálaþjónustu. Erlendir menn sækja hingað í vaxandi mæli, ef reynsla annarra þjóða er hér nokkur mælikvarði, og á þann hátt getum við skapað aukna atvinnu á nýjum atvinnuvettvangi og auknar gjaldeyristekjur.

Þá má spyrja: Hverjir eru möguleikarnir til þess að nýta íslenskan jarðhita á þessu sviði? Við höfum satt að segja Íslendingar verið heldur daufir í rannsóknum og athugunum í því efni. En ég vil þó ekki láta hjá líða í þessum fáu orðum, herra forseti, sem ég mæli hér fyrir þessari þáltill., að nefna mjög merka rannsókn sem framkvæmd var hér á landi fyrir 15 árum á vegum Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem liður í tækniaðstoð sem veitt er þjóðum Sameinuðu þjóðanna. Þá var framkvæmd hér allítarleg rannsókn á þessu sviði sem hefur legið allt of mikið í þagnargildi frá því að niðurstöður hennar urðu kunnar. Rannsakaðir voru möguleikar þess að nýta m.a. íslenskan jarðhita í því skyni sem till. þessi fjallar um, í heilsubótarskyni, og að rannsókn lokinni var samin skýrsla af mjög þekktum frönskum sérfræðingi á þessu sviði, sem er prófessor í baðlækningum. Ég ætla ekki að rekja efni þeirrar skýrslu. Það yrði allt of langt mál. En niðurstaðan er gagnmerk og ég nefni hana. Hún er sú að heilsubótareiginleikar íslenska vatnsins, a.m.k. bæði lindarvatnsins íslenska og hveravatnsins, séu jafngóðir og þess vatns sem notað er á helstu og þekktustu heilsubótarbaðstöðum í Evrópu.

Prófessorinn franski gerir í þessari skýrslu tillögur um að komið verði á fót hér á Íslandi baðlækningastöðvum sem ætla mætti að yrðu sóttar ekki síst frá öðrum löndum. Jafnframt rekur hann læknisfræðileg atriði sem lúta að meðferð við ýmsum sjúkdómum miðað við eiginleika íslenska lindarvatnsins, íslenska hveravatnsins og leirbaða. Þar eru efst á blaði vitanlega ýmsir gigtarsjúkdómar, öndunarfærasjúkdómar, meltingarsjúkdómar, hjartasjúkdómar og svo mætti áfram telja.

Þetta er út af fyrir sig ákaflega merkileg niðurstaða og merkur þáttur sem við höfum fram að þessu gefið allt of lítinn gaum. Í rannsóknaráliti þessara sérfræðinga Sameinuðu þjóðanna eru gerðar tillögur um uppbyggingu slíkrar baðlækninga- og heilsubótaraðstöðu hér á Íslandi, sem byggir á þessum ónýttu auðlindum okkar að því er þetta snertir. Mér er hins vegar ekki kunnugt um að neinar af þessum tillögum hafi leitt til sérstakra framkvæmda af hálfu hins opinbera eða einkaaðila. En það er ljóst að þarna eru dregnar saman mjög gagnlegar rannsóknarniðurstöður um þessi efni sem að notum geta komið fyrir okkur í framtíðinni.

Ég vil aðeins í þessu efni minna á að nú eru uppi ráðagerðir og reyndar framkvæmdir um útflutning á íslensku drykkjarvatni. Það er aðeins einn þáttur sem tengist eða er skyldur þessu máli. Þar er þó ekki um að ræða ölkelduvatn eða nýtingu vatnsins til lækninga. En það sýnir bara hvaða möguleikar eru á þessu sviði ef grannt er skoðað.

Þegar litið er á þetta mál í heild, herra forseti, má segja að hér tvinnist saman tvær leiðir til nýrrar nýtingar jarðhitans hér á landi: Stofnun nýrrar heilsubótaraðstöðu fyrir útlendinga jafnt sem Íslendinga, og í öðru lagi efling ferðamannaþjónustunnar sem tvímælalaust mundi fylgja í kjölfarið.

Í þessu sambandi vil ég aðeins nefna álit frá Orkustofnun, sem hefur borist þeirri nefnd sem um þetta fjallaði, atvmn. Sþ., og er dagsett 7. júní 1985. Ég ætla aðeins að lesa lítinn kafla úr því þar sem segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:

„Það er staðreynd að í mörgum löndum Evrópu og Asíu eru volgar lindir notaðar til heilsubaða og hvílir sú notkun á aldagamalli reynslu og hefð. Víða eru í byggingu ný heilsuhæli af þessu tagi sem höfða ekki síst til ferðamanna. Markaðurinn er stór og ekkert sem bendir til þess að hann sé að dragast saman. Hér á landi er jarðhiti mjög víða til staðar og aðstæður að því leyti ákjósanlegar, betri en í mörgum öðrum löndum. Þótt eflaust megi ýmislegt finna neikvætt, svo sem kaldara loftslag, virðist þó ástæða til að skoða vandlega þá möguleika til atvinnutækifæra sem kunna að leynast á þessu sviði.“

Tilvitnun lýkur hér í þetta álit Orkustofnunar sem er þó mun lengra og hnígur raunverulega að sömu niðurstöðu og um er rætt í þessari þáltill. og grg. hennar.

Við höfum hér nýlegt dæmi þó, herra forseti, um nýtingu íslensks hveravatns til lækninga. Það er Bláa lónið á Reykjanesi. Þangað hefur verið mjög sótt af sjúklingum með ýmsa húðsjúkdóma. Lítið gistihús er á bakka lónsins. Það hefur að miklu leyti tvö undanfarin sumur verið bókað af erlendum ferðamönnum sem hingað koma til að leita sér bata við böð í Bláa lóninu. Þetta er lítið dæmi sem eiginlega hefur sprottið af sjálfu sér en málið ekki sérstaklega kynnt erlendis. Fregnir hafa hins vegar borist út um heim af eiginleikum vatnsins i Bláa lóninu og baðaðstöðunni þar, sem að vísu er mjög frumstæð. Það stendur hins vegar til bóta. Í sumar hefur farið fram rannsókn á lækningamætti vatnsins þar af hálfu landlæknisembættisins og verður ugglaust skýrt frá niðurstöðu þeirrar rannsóknar á næstunni á hinu háa Alþingi, þar sem ég hef lagt fram fsp. til heilbrrh. um hana.

Með þessari till., herra forseti, eru flm. fyrst og fremst að vekja athygli á þeim miklu möguleikum sem við teljum að felist á þessu sviði, á því að nýta jarðhitann í heilsubótarskyni, nýta vatnið, bæði hveravatnið, ölkelduvatnið og leirinn þá ekki síður, og á þeim miklu möguleikum, ekki síst á sviði ferðamála, sem uppbygging getur skapað og dæmið frá Hveragerði og reyndar Bláa lóninu eru nægilegar vísbendingar um, ef við viljum og kjósum að fara þá leið sem hér hefur verið um rætt. Að svo búnu legg ég til að þessari till. verði vísað til atvmn.