17.12.1985
Neðri deild: 33. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1805 í B-deild Alþingistíðinda. (1439)
119. mál, Hitaveita Suðurnesja
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Vitaskuld stingur í augun að Keflavíkurkaupstaður með nær 40% eignarhlutdeild skuli hafa einn fulltrúa í stjórn meðan ríkissjóður Íslands með 20% hafi tvo. Hins vegar svara tveir stjórnarmenn vel til 20%, þ.e. hlutar ríkisins. Sveitarfélögin, sem aðilar eru að hitaveitunni, hafa samið um að skipta á sig stjórnarstörfum eins og hér er gert ráð fyrir í lagafrv. þessu.
Um það hvort hér um mætti til hnika var flutt brtt. af hv. þm. Karli Steinari Guðnasyni í Ed. og reyndist svo ekki vera, enda hafa sveitarfélögin samið á þessum grundvelli. Þótt þetta stingi í augun geri ég ekki við þetta athugasemd og er samþykkur frv., enda tel ég hlutverk sveitarfélaganna að skipta með sér eftir því sem þeim þykir best henta.
Umr. (atkvgr.) frestað.