17.12.1985
Neðri deild: 33. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1813 í B-deild Alþingistíðinda. (1444)

121. mál, sala Kröfluvirkjunar

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Mér er nú þannig brugðið að ég gerði ráð fyrir því að það að ég taki til máls mundi lengja hér umræðurnar, öndvert við það sem kom fram hjá síðasta ræðumanni um að hann ætlaði ekki að lengja umræðurnar. En von mín er nú sú að ég muni samt ekki lengja þær jafnmikið og hann.

Þetta mál, sala Kröfluvirkjunar, getur náttúrlega leitt hugann að mörgu. Staðreyndin sem við höfum fyrir okkur varðandi þessa sölu er sú að kaupverðið á að vera þriðjungur af skuldum fyrirtækisins. Þær eru hér, samkvæmt fylgiskjali með frv., taldar hafa verið 3,2 milljarðar 1. apríl s.l., væntanlega þá einhvers staðar á bilinu 3,6 til 3,8 milljarðar núna. Kaupverðið er talið 1,1 milljarður, eða um það hefur verið samið, sem gæti verið komið upp í 1,3 milljarða núna. Hér er því um mismun að ræða sem nemur u.þ.b. 2,5 milljörðum sem ríkinu er gert að taka á sig samkvæmt þessum sölusamningi. Við því er í rauninni ekki mikið að segja. Það bara undirstrikar hversu hörmulega tókst til og sjálfsagt hef ég oft notað hér nafngiftina Kröfluhneyksli úr þessum stól. Þetta innsiglar þau mistök sem gerð voru að mínum dómi og okkar Alþýðuflokksmanna í sambandi við þetta fyrirtæki. Skal það ekki rakið nánar.

Það segir í forsendum hér að Landsvirkjun hafi fallist á yfirtöku ef hún yrði ekki til þess að valda hækkun á orkuverði frá Landsvirkjun. Nú held ég að það sé ekki hægt að uppfylla þau skilyrði a.m.k. um næstu ár, svo framarlega sem eitthvað á að greiða af Kröfluvirkjun á þeim árum sem næst eru fram undan, einfaldlega vegna þess að Landsvirkjun er aflögufær um rafmagn, þarf ekki á því rafmagni að halda sem Krafla getur haft til sölu. Þess vegna væri sá samningur einn, sem ekki gerði ráð fyrir neinum greiðslum á næstu 10 árum eða svo, til að hækka ekki verð á raforku frá Landsvirkjun. Hér er nú ekki gert ráð fyrir því. Þess vegna mun þessi forsenda náttúrlega ekki standast. Hitt er ljóst að meginstefnumörkunin, sem liggur í þessu hér, er sú að 2/3 hluta af kostnaðinum við Kröflu eigi skattgreiðendur að greiða, 1/3 kemur á raforkunotendur að hluta til í hærra verði á næstu árum en hugsanlega getur það jafnast upp síðar.

Þetta skiptir kannske ekki meginmáli. Þetta innsiglar einungis að hér var um mistök að ræða og með því að staðfesta þennan samning er Alþingi að staðfesta þau mistök sem hér voru gerð. Við það hef ég vitaskuld ekki að athuga. Aðalspurningin, sem menn hljóta hins vegar að spyrja sig, er sú: Hvar er rekstur Kröfluvirkjunar best kominn? Aðalatriðið er ekki einu sinni hvar greiðslan á þeim kostnaði, sem farið hefur í Kröflu, lendir, hjá skattgreiðendum eða raforkunotendum, eða hvernig sú skipting á sér stað, heldur hlýtur aðalatriðið að vera þegar menn horfa til framtíðarinnar: Hvar er stjórn Kröfluvirkjunar best komin?

Við Alþýðuflokksmenn höfum talið að stefna bæri að því að meginorkuvinnslufyrirtæki landsmanna væri eitt, Landsvirkjun risi þannig undir nafni og mætti þess vegna skrifast með stórum staf. Þetta frv. gengur í þá átt og er þess vegna í samræmi við þá stefnumörkun okkar. Þess vegna fylgjum við þessu frv. m.a.