17.12.1985
Neðri deild: 33. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1817 í B-deild Alþingistíðinda. (1446)
121. mál, sala Kröfluvirkjunar
Frsm. meiri hl. (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Ég skal vera stuttorður. Ég vil byrja á því að þakka málefnalegar umræður sem hafa farið fram um þetta mál.
Hv. síðasti ræðumaður beindi þeim fsp. til þeirra, sem bera ábyrgð á þessu frv., hvort einhver efnahagsleg og skipulagsleg rök væru fyrir því að Landsvirkjun taki yfir Kröfluvirkjun. Að svo miklu leyti sem hægt er að svara þeirri spurningu held ég að það séu fyrst og fremst tvenns konar rök. Annars vegar þau að fjármagnskostnaður vegna Kröfluvirkjunar hefur bókhaldslega verið færður þannig upp í fjárlögum frá ári til árs að ætla má að til þess sé ætlast í framtíðinni að orkukaupendur greiði þennan reikning.
Með þessari sölu yfirtekur ríkissjóður, sem er eigandi Kröfluvirkjunar, m.ö.o. skattgreiðendur í landinu, verulegan hluta skuldarinnar en eignirnar ganga til Landsvirkjunar og verðið er miðað við það að ekki komi til hækkunar á orkuverði í landinu. Þetta eru forsendurnar.
Um það hvort þetta sé sanngjarnt eða réttlátt má auðvitað deila. Ég er alveg viss um að fyrir þá sem horfa á þetta frá sjónarhóli Kröfluvirkjunar og vilja að hennar hagsmunir séu einir í fyrirrúmi má auðvitað snúa þessu við og ugglaust væri það gert ef Kröfuvirkjun væri t.d. að taka yfir Landsvirkjun. En um það er ekki að ræða í þessu dæmi.
Í öðru lagi hlýtur það að gerast innan tíðar að við förum að átta okkur á því, Íslendingar, hvort ekki sé ástæða til að aðskilja annars vegar framleiðslufyrirtæki í raforku, sem yrði þá væntanlega Landsvirkjun eða sá aðili sem tæki við af Landsvirkjun, og hins vegar þau sem sæju um dreifinguna, annaðhvort orkubú eins og Orkubú Vestfjarða eða Hitaveita Suðurnesja ellegar Rafmagnsveitur ríkisins, sem gætu ugglaust átt heima í eigu sveitarfélaganna í landinu, svo að ég nefni eitthvert dæmi um það hvað hugsanlegt væri að gera án þess að nokkuð væri farið að ræða um þau mál svo að ég viti.
Vegna þess sem síðasti ræðumaður spurði um og varðaði tjón þá er þetta ekki klausa út í bláinn. Það er hægt að kaupa sér tryggingu en það er ljóst fyrir kaupandann að það er erfitt að kaupa eigur Kröfuvirkjunar nema seljandinn, ríkissjóður, tryggi að hún geti verið starfrækt án mikils tjóns fyrir Landsvirkjun meðan á greiðslutímanum stendur.
Um það hvað gerist með starfsfólk vil ég segja það að auðvitað er það í fyrirrúmi af ríkisins hálfu að sem mestrar hagkvæmni sé gætt í rekstri. Ég tel það vera eðlilegt að hafa um það ákvæði í samningnum að fólkið, sem starfar nú hjá Kröfluvirkjun, fái, eins og þar segir, tækifæri til að fá vinnu hjá Landsvirkjun eftir að samningurinn hefur fengið lagagildi.
Um framtíð Kröfluvirkjunar og vinnslu á Kröflusvæðinu er það að segja að það mótast auðvitað af orkunotkuninni í framtíðinni og þéttleika virkjananna í kringum landið því að það er ljóst að Kröfluvirkjun hefur haft hlutverki að gegna til að halda uppi eðlilegri spennu á hringtengingunni um landið.
Önnur vél Kröfluvirkjunar er ekki í sambandi. Það er óhugsandi að nota hana t.d. í þágu Hitaveitu Suðurnesja á Svartsengi, eins og stundum var talað um, vegna saltmagnsins sem þar er í gufunni. En það væri hugsanlegt að nota túrbínuna, sem ekki er komin í gagnið, t.d. á Þingvallasvæðinu, á Nesjavöllum. En um það hafa engar umræður farið fram og í raun er ekki annað að gera við þessa vél nú en að nota hana í varahluti nema þá sérstök ákvörðun verði tekin þar að lútandi.
Ég vona, herra forseti, að þetta skýri a.m.k. að einhverju marki þau sjónarmið sem liggja að baki sölu Kröfluvirkjunar í hendur Landsvirkjunar. Ég vil þakka þeim sem hafa tekið til máls og þó sérstaklega hv. 3. þm. Reykv., sem í raun tók undir flest þau sjónarmið sem koma fram í þessum samningi þótt hann treysti sér ekki til að greiða atkvæði með frv., svo og öðrum ræðumönnum fyrir málefnalegar ræður.
Umr. (atkvgr.) frestað.