18.12.1985
Efri deild: 36. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1824 í B-deild Alþingistíðinda. (1456)
174. mál, heilbrigðisþjónusta
Karl Steinar Guðnason:
Virðulegi forseti. Ég skrifa undir þetta frv. með fyrirvara. Sá fyrirvari er í því fólginn að þrátt fyrir að ég telji rétt að standa að þessu frv. nú, þar sem svo skammt er til áramóta, þá er það skoðun mín að þau sveitarfélög sem tilgreind eru í frv. eigi að njóta sömu og ekki síðri þjónustu en gerist úti á landi, vera undir sömu lögum, og vænti ég þess að að því verði stefnt við allra fyrsta tækifæri.