18.12.1985
Efri deild: 36. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1824 í B-deild Alþingistíðinda. (1459)
170. mál, tímabundið vörugjald
Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Hæstv. forseti. Mál þetta hefur verið rætt í hv, fjh.- og viðskn. og er hún sammála um að mæla með samþykkt frv. Hér er eins og menn vita um gamlan kunningja að ræða, þ.e. framlengingu á svokölluðu sérstöku tímabundnu vörugjaldi. Þetta gjald hefur nú æði oft verið hækkað, en það er ekki lagt til að það sé gert að þessu sinni, heldur einungis að framlengja gjaldið óbreytt.
Ég hef ekki verið neinn sérstakur stuðningsmaður mikillar gjaldtöku á brýnar nauðsynjavörur en gleðst yfir því að þetta gjald skuli þó ekki vera hækkað þó að tollskráin öll og slíkar álögur séu nú í endurskoðun og hef þess vegna látið mig hafa það að mæla með samþykkt þessa frv.