24.10.1985
Neðri deild: 9. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 211 í B-deild Alþingistíðinda. (147)
70. mál, kjaradómur í deilu Flugfreyjufélags Íslands og Flugleiða hf.
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég kvaddi mér hljóðs áðan þegar svo virtist vera sem hæstv. ráðherrar ætluðu ekki að virða hv. 2. landsk. þm., Jóhönnu Sigurðardóttur, viðlits í þessu máli. Hæstv. sjútvrh. hefur gert tilraun til svara, afskaplega veikburða tilraun, en aðrir hæstv. ráðherrar hafa ekki enn þá svarað þeim spurningum sem hv. þm. bar fram.
Nú hygg ég að það sé einsdæmi eða mjög fátítt að hæstv. ráðherrar hundsi spurningar þm. með þeim hætti sem gert hefur verið hér í kvöld. Það hlýt ég að gagnrýna mjög harðlega.
En ég vil í annan stað vekja athygli á einu, herra forseti, og það er þetta: Afstaða Alþfl. í þessu máli er sú að styðja ríkisstj. og þá gerræðisfullu ákvörðun sem hún hefur tekið. Það er eitt. Hitt liggur einnig fyrir að þingflokkur Alþfl. ætlar að hjálpa til við að beita Alþingi ofbeldi hér á þessum sólarhring. Það er einnig athyglisvert, herra forseti, og rétt að minna á í þessu sambandi.