18.12.1985
Efri deild: 36. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1833 í B-deild Alþingistíðinda. (1473)

134. mál, álbræðsla við Straumsvík

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Það frv., sem hér er til umræðu á þskj. 148, varðar 4. viðauka við aðalsamning milli ríkisstjórnar Íslands og fjölþjóðafyrirtækisins Swiss Aluminium Ltd. Þessi samningur er lagður fram við lok endurskoðunar á gildandi ákvæðum aðalsamnings um skattamál Íslenska álfélagsins hf. sem ríkisstjórnin og Alusuisse höfðu orðið sammála um að færi fram. Einu kynni stjórnarandstöðunnar af þessu máli áður en það var lagt fram sem frv. á Alþingi 19. nóv. s.l. voru þau að fulltrúar þeirra voru boðaðir á fund hæstv. iðnrh. í júlí s.l. og var það til að sjá meginefnisatriði þessa samnings sem undirritur skyldi næsta dag.

Þannig hefur við þessa samningagerð ríkt sama leynd og skortur á upplýsingum til stjórnarandstöðu og hvíldi yfir samningagerð 3. viðauka við aðalsamninginn og sem ég átaldi harðlega þegar sá viðauki kom til umræðu á Alþingi á s.l. hausti. Þá var reyndar settur gjaldmælir á þm. og hlýtur það að teljast einsdæmi bæði fyrr og síðar.

Ég vil því ítreka hér þá skoðun mína að eðlilegt og réttlátt væri að fulltrúar allra stjórnmálasamtaka, sem sæti eiga á Alþingi, væru hafðir með í ráðum þegar um svo mikilvægt mál er að ræða sem snertir hag landsmanna allra. Það er enginn vafi á því í mínum huga að slík upplýsingamiðlun og samráð mundu tryggja betri hagsmunagæslu fyrir Íslendinga í viðskiptum við þá viðsjárverðu aðila sem hér eru á ferðinni.

Ég á ekki sæti í hv. iðnn. þessarar deildar og kemur það sennilega ekki að sök þar sem ljóst má vera að sú hv. nefnd hafði lítil tækifæri til að fjalla um þetta mál. En ég mun byggja mál mitt hér mjög á því sem fram kom í iðnn. Nd. en þar á Kvennalistinn sinn fulltrúa. Ég vísa til ýmissa atriða, sem koma fram í nál. 4. minni hl. iðnn. Nd., í máli mínu hér nú.

Í síðustu samningagerð um 3. viðauka við aðalsamning, sem samþykktur var í fyrra, voru gerðar ýmsar breytingar sem hafa mikil og afgerandi áhrif á þann samning sem hér liggur nú fyrir. Því tel ég vert að hyggja aðeins að þeirri samningagerð frá í fyrra. Þar var t.d. fellt niður mikilvægt ákvæði um bestu kjaraskilmála, sem var í gr. 2.03.c í aðstoðarsamningi milli Alusuisse og ÍSALs, um að Alusuisse eigi að leitast við að tryggja ÍSAL áframhaldandi og jafnt framboð á hráefnum með bestu skilmálum og skilyrðum sem fyrir hendi eru. Brottfall þessa ákvæðis var knúið fram á síðustu stundu í samningagerðinni og viðurkenndi þáv. iðnrh. fyrir hv. iðnn. að það væri réttilega mikil veiking á þessum ákvæðum skattalaga. Þar fórnuðum við því atriði sem þótti ein girnilegasta ástæða þess að tekið var upp samstarf við Alusuisse í upphafi, þ.e. við fórnuðum bestukjaraákvæðunum. Þótti fleirum en mér þar illa staðið að verki.

Við samningagerð 3. viðauka við aðalsamninginn var einnig sú afdrifaríka þróun að Alusuisse tókst að kljúfa tvö nátengd málsatriði í aðskilda þætti sem framvegis yrði samið um hvorn í sínu lagi, annars vegar megintekjustofna Íslendinga í viðskiptum við Alusuisse, þ.e. raforkuverðið, og skattlagninguna hins vegar. Þó eru þessir þættir í órjúfanlegum tengslum hvor við annan og ótækt að semja um annan án tillits til hins.

Þessu fylgdi síðan á s.l. hausti uppgjöf saka og hreint siðgæðisvottorð Alusuisse til handa vegna meintra skattsvika fyrirtækisins. En þau mál voru á viðkvæmu stigi fyrir gerðardómi og dómsúrskurður ekki langt undan þegar hæstv. fyrrv. iðnrh. tók sig til og samdi jafnrækilega af sér og 3. viðaukasamningurinn ber vitni um. Staða okkar þótti sterk í því gerðardómsmáli sem þarna var á ferðinni og að mati lögfræðinga, er ráku það mál fyrir Íslands hönd og komu á fund iðnn. í fyrra þegar samningurinn var þar til meðferðar, var, eins og ég sagði, staða okkar þar sterk, en þó fór sem fór. Niðurstaðan er m.a. sú að nú í dag stöndum við mun verr að vígi við upphaf samninga hvað skattamálin varðar en við annars hefðum gert. Við höfum misst þá viðspyrnu sem hefði getað knúið Alusuisse til að virða hagsmuni Íslendinga eins og það frv., sem hér er til umræðu, ber vott um.

Megintilgangur þeirrar endurskoðunar, sem liggur til grundvallar þessu frv., er tilgreindur í athugasemdum við frv. en þar segir, með leyfi forseta:

„Að gera reglur um framleiðslugjaldið skýrari og öruggari í framkvæmd þannig að síður verði hætta á deilum í því efni og tryggja eðlilegar skattatekjur af starfsemi félagsins.“

Til að ná þessum markmiðum var í fyrsta lagi samið um nýja tilhögun á skattlagningu á aðföngum álbræðslunnar, þ.e. rafskautum og súráli. Rafskautin eru flutt inn frá rafskautaverksmiðju Alusuisse í Rotterdam en verðlagning þeirra var m.a. tilefni deilna áður þar sem endurskoðunarfyrirtækið Coopers & Lybrand taldi að ÍSAL hefði verið látið greiða verulegt yfirverð fyrir rafskaut og fór það mál fyrir gerðardóm.

Verðlagning rafskauta er vandasamt mál og það er ekki fyllilega ljóst hverjir megi teljast óskyldir aðilar skv. grein 27.04.a í samningnum. Enn fremur er ekki auðvelt fyrir Íslendinga að ganga úr skugga um hvert rafskautaverð til óskyldra aðila er þar sem Alusuisse tilnefnir sjálft fyrirtæki óháðra löggiltra endurskoðenda til að kanna það og Íslendingar verða að sætta sig við að treysta þeim upplýsingum. Varla mun það styrkja stöðu okkar gagnvart fjölþjóðafyrirtækinu Alusuisse.

Súrál hefur nú verið tengt heimsmarkaðsverði á áli þannig að eitt tonn af áli komið til Rotterdam að viðbættum löndunarkostnaði jafngildir átta tonnum af súráli komnum cif til Straumsvíkur, þ.e. súrálsverðið er nú 12,5% af heimsmarkaðsverði á áli. Þessi tenging hefur bæði kosti og galla. Hún ætti að tryggja sanngjarnari verðlagningu á súráli en verið hefur hingað til. Hins vegar mun hún ekki nýta til hagnaðar fyrir ÍSAL þær aðstæður sem verða þegar súrálsverð lækkar en álverð hækkar. Þessum hugsanlega hagnaðarmöguleika hefur með þeim samningi, sem hér liggur nú fyrir, verið afsalað.

Enn fremur hefur verið tekin upp ný skilgreining á heimsmarkaðsverði á áli þar sem notuð er formúla svipuð þeirri sem byggt var á varðandi orkuverð í samningnum frá í fyrra. Sú stærð í þessari formúlu, sem líklegust er til að valda ágreiningi, er svonefnd ASIP. Það táknar álverð við sölu frá Alusuisse en einnig frá tveimur þýskum álbræðslum í eigu Alusuisse til óháðra viðskiptavina. Ljóst er að endurskoðunarákvæði sem þetta tryggja ekki hagsmuni Íslands nægilega vel. Íslenskum stjórnvöldum er að vísu heimilt að skipa endurskoðendur en þá einungis í samráði við Alusuisse sem þarf að samþykkja endurskoðandann hverju sinni. Einnig þarna er ákvörðunarréttur Íslendinga fallinn brott.

Útreikning þennan má svo ekki endurskoða oftar en einu sinni hvernig sem á því stendur en það getur varla verið Íslendingum til hagsbóta. Auk þess hefur hér, að því er mér virðist, glatast í reynd hugmyndin um armslengdarverð sem þó átti að liggja til grundvallar í allri samningagerðinni.

Í öðru lagi hefur í þessum viðaukasamningi, sem hér er til umræðu, verið samið um nýjar reikningsskilareglur þar sem reynt hefur verið að lagfæra helstu skekkjuvalda eins og fyrningu, fjármagnskostnað og gengistap. Var þetta gert ekki síst með það fyrir augum að gera skattstofninn áreiðanlegri. Þó hefur fyrningartími verið lengdur og hlýtur það að koma ÍSAL til góða og þar með Alusuisse. Jafnframt hefur Alusuisse lagt fram 40 millj. bandaríkjadala til að tryggja eiginfjárstöðu ÍSALs, lækka skuldir fyrirtækisins og þar með vaxtagjöld. Ekki er þó ljóst að hve miklu leyti þessi bætta eiginfjárstaða og auknar fyrningar vega hvort annað upp.

Í þriðja lagi hefur svo verið samið um óbreyttan lágmarksskatt, þ.e. framleiðslugjald, sem nemur 20 bandaríkjadölum á hvert tonn af áli. Þessi upphæð hefur að sjálfsögðu rýrnað síðan 1975 og jafngildir nú um 11,45 bandaríkjadölum og er óverðtryggð eins og fram hefur komið. Þetta er vitaskuld ótækt og má segja að það sé með sanni komið á daginn í þessum nýja viðaukasamningi hve slæmt það var að vera búinn að spila út öllum trompunum sem hefðu getað knúið fram hærra grunngjald.

Auk þess hefur svo verið samið um breyttan skattstiga sem miðaður er beint við nettóhagnað fyrirtækisins á undanförnu ári og leikur á bilinu frá 35% lágmark upp í 55% hámark. Það hefur komið í ljós að hagkvæmni þessa skattstiga umfram þann, sem nú gildir, byggist fyrst og fremst á því hverjar tölur og stærðir eru notaðar sem forsendur. Þær tölur byggjast síðan á spám um það hvaða verð muni gilda á álmörkuðum heimsins í framtíðinni. Reynslan hefur sýnt að mjög varlegt er er að treysta spám í áliðnaði, einkum eftir árið 1980. Þær hafa svo oft reynst rangar. T.d. eru þessar spár mjög háðar því hvert mat menn leggja á styrk bandaríkjadals. En skoðanir manna skiptast í þeim efnum töluvert eftir því hvorum megin Atlantshafsins þeir búa. Það er því engan veginn víst að hinn nýi skattstigi muni tryggja hærri skatttekjur en núgildandi skattkerfi gerir. Sú staða gæti komið upp að núgildandi skattkerfi væri hagstæðara, einkum ef álverð helst áfram lágt og þar með einnig hagnaður. Hins vegar geta breyttar reikniskilareglur gefið aukna skattvon þó ekki megi gleyma því að ÍSAL hefur sýnt neikvæðan meðalhagnað s.l. 15 ár.

Endurskoðunarákvæðin í grein 27.07 eru í heildina litið til bóta en þó hefði mér þótt æskilegra að binda ekki endurskoðun á fimm ára fresti eingöngu. Nú er enn fremur skertur enn meir réttur til endurskoðunar aftur í tímann en sá réttur hafði þegar verið takmarkaður í samningnum frá í fyrra. Tíminn, sem gefst til endurskoðunar ársreiknings, er nú naumur, aðeins um fjórir mánuðir. Það má því segja að í heildina torveldi þessi samningur ÍSAL að einhverju leyti að svíkja undan skatti þó að engan veginn hafi verið sett fyrir allan leka og má t.d. vara við því að hluti af heildarfjármagnskostnaði Alusuisse vegna lántöku fyrirtækisins verði færður yfir á ÍSAL sem tap.

Kvennalistinn hefur lengi talið eðlilegt að um ÍSAL giltu íslensk skattalög, að ekki væru gerðir sérsamningar um sköttun fyrirtækja eins og gert er hvað varðar þetta fyrirtæki. Það virðist því miður hafa verið gerð lítil tilraun við þessa samningagerð að bera fram þetta sjónarmið og þykir mér það mjög miður. Mér virðist að íslenskir samningamenn hafi eina ferðina enn verið haldnir óhóflegri bjartsýni og verið ofhlaðnir góðri trú í viðskiptum sínum við Alusuisse. En það er löngu orðið ljóst að Alusuisse er viðsjárverður viðskiptaaðili en ekki góðgerðastofnun.

Það kemur einnig glöggt fram í orðalagi þessa frv. að óttinn við deilur og löngunin til að eyða þeim hefur orðið yfirsterkari einarðri hagsmunagæslu fyrir Íslands hönd.

Virðulegi forseti. Í heildina litið er þessi samningur ríkisstj. við Alusuisse óviðunandi. Álrisanum hefur enn þá einu sinni tekist að ná undirtökum í samningsgerð og sveigt hana í þá átt að tryggja hagsmuni sína langt umfram hagsmuni Íslendinga. Ég mun því greiða atkvæði gegn þessu frv.