18.12.1985
Efri deild: 37. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1846 í B-deild Alþingistíðinda. (1500)

194. mál, nefnd til að kanna viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips hf.

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Í meðförum fjh.- og viðskn. hefur orðið samkomulag um verulegar breytingar á þessu frv. sem allar eru til mikilla bóta og ljóst að frv. mun tryggja marktæka rannsókn málsins. Það sem enn vantar upp á er að Alþingi sé gert kleift að fylgjast með, ég endurtek, fylgjast með en ekki hlutast til um, rannsókn þessa máls og sinna þannig eftirlitshlutverki sínu. Ef brtt. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. þessa efnis á þskj. 331 verður felld hér á eftir mun ég sitja hjá við afgreiðslu frv., annars greiða því atkvæði mitt. Þar sem enn hafa ekki verið greidd atkvæði um brtt. á þskj. 331 segi ég já.