18.12.1985
Neðri deild: 34. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1849 í B-deild Alþingistíðinda. (1508)

119. mál, Hitaveita Suðurnesja

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Með þessari sölu er endanlega staðfest sú gagnrýni sem við Alþýðuflokksmenn höfum haft uppi á Kröfluvirkjun í gegnum árin, nefnilega að þar hafi stórkostleg mistök átt sér stað. Þau mistök eru nú metin á u.þ.b. 2,5 milljarða kr.

Staðfesting þess sem við höfum haldið fram er okkur ánægjuefni og við segjum vitanlega já.