18.12.1985
Neðri deild: 34. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1850 í B-deild Alþingistíðinda. (1512)

119. mál, Hitaveita Suðurnesja

Forseti (Ingvar Gíslason):

Það fer fram atkvæðagreiðsla og koma fyrst til atkvæða brtt. á þskj. 290 frá hv. þm. Kjartani Jóhannssyni um það að á undan 1. gr. komi tvær nýjar greinar. Ég ber upp fyrri brtt. (FrS: Má skilja þessa fyrri brtt. í sundur og greiða atkvæði um hana í tvennu lagi, annars vegar um prósentur og hins vegar um ártalið?) (KJóh: Það er í lagi mín vegna.) Ég held að ég mundi ekki gera það þannig. Við ræðum þá brtt., sem fyrir liggur, við 3. umræðu. (KJóh: Var ekki hugmyndin að greiða fyrir því að málið gengi áfram með því að bera fyrri brtt. upp í tvennu lagi?) Satt að segja hefur forseti ekki löngun til annars en að greitt verði fyrir málinu. En það liggur nú fyrir brtt. frá iðnn. sem átti að ræða við 3. umr.

Atkvæðagreiðslunni verður skipt á þann veg að fyrst verða greidd atkvæði um þessa setningu: „Í stað 16% í 2. gr. laganna komi 14%.“ Síðan kemur hin setningin, sem varðar ártalið, á eftir. Ég vil spyrja frsm. hvort það skorti á í till. frá iðnn. að ártalsins sé getið. (Menntmrh.: Þetta er á misskilningi byggt allt saman.)