18.12.1985
Neðri deild: 34. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1850 í B-deild Alþingistíðinda. (1513)
119. mál, Hitaveita Suðurnesja
Frsm. (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Ég skal reyna að skýra þetta mál. Í umræðum hér í gær kom í ljós í máli hv. þm. Kjartans Jóhannssonar að nefndinni, sem skilaði áliti, hafði láðst að gera brtt. við 2. gr. laganna þar sem skýrt stendur nú að verðjöfnunargjald skuli tekið árið 1985. Við atkvæðagreiðsluna nú koma tvær leiðir til greina. Önnur er sú að greiða sérstaklega atkvæði um seinni lið fyrri till. frá hv. þm. Kjartani Jóhannssyni eða að flytja till. við 3. umr. málsins. En því þskj. hefur ekki verið dreift þótt frá því sé sagt að það sé til staðar enda var þeirri till. lýst við 2. umr. í gær. Vona ég að þetta skýri um hvað málið snýst þannig að hægt sé að greiða atkvæði á annan hvorn veginn núna.