18.12.1985
Neðri deild: 34. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1851 í B-deild Alþingistíðinda. (1514)
119. mál, Hitaveita Suðurnesja
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Fyrir mér vakir ekki annað en það að greiða fyrir. Till. mín er tvíþætt, annars vegar um lækkun verðjöfnunargjaldsins að því er 1. liðinn varðar, um lækkun úr 16 í 14%. Seinni hlutinn fjallar um það að það verði yfirleitt eitthvert verðjöfnunargjald á árinu 1986. Ef till. frá nefndinni og stjfrv. eins og það leit út verður samþykkt óbreytt er ekkert verðjöfnunargjald árið 1986. Þeir sem vilja eitthvert verðjöfnunargjald árið 1986 eiga því að samþykkja síðari hluta till. Þeir sem vilja 14% samþykkja fyrri hluta brtt. Þeir sem vilja eitthvað annað gera eitthvað annað.