24.10.1985
Neðri deild: 9. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 213 í B-deild Alþingistíðinda. (152)

70. mál, kjaradómur í deilu Flugfreyjufélags Íslands og Flugleiða hf.

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Aðeins örstutt athugasemd. Ég held að það væri verðugt að hv. 5. þm. Reykv. yrði heiðursgestur hátíðahaldanna á morgun. Honum virðist vera fyrirmunað að taka mark á því sem konur segja hér á Alþingi. Það vill svo til að ég var talsmaður þingflokks Alþb. í upphafi umræðna í kvöld og gerði skýra grein fyrir „prinsip„afstöðu flokksins.

Það var því algerlega ástæðulaust, þó að aðrir félagar úr þingflokknum tækju til máls, að þeir gerðu það enn á ný. Þannig er alveg ástæðulaust að sakna þess hafi það ekki komið skýrt fram í máli kollega míns, hv. 4. þm. Norðurl. e.

En það er ekki aðeins ég sem hv. þm. hefur ekki tekið alvarlega í þessari umræðu né félagi hans, hv. 3. þm. Vestf. Sighvatur Björgvinsson, því að Sighvatur segir í minnihlutaáliti hv. samgn. án þess að depla auga, með leyfi forseta: „Þingflokkur Alþfl. hefur því ákveðið að styðja frv. með þessum rökstuðningi sem óhjákvæmilega bráðabirgðalausn“ o.s.frv. - Þingflokkur Alþfl.

Ég vil spyrja hv. þm.: Er hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir ekki í þingflokki Alþfl.? Ég legg til að í framtíðinni, og ekki síst í tilefni dagsins sem nú er runninn, læri þessir góðu herrar að taka mark á jafnt mínum orðum sem talsmanns Alþb. og orðum hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur sem hún er fullfær um að verja hvenær sem er. Ég vil víta orð eins og þessi og raunar, herra forseti, er ástæða til að benda á slíkan málflutning þegar hann á sér stað.