18.12.1985
Neðri deild: 34. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1853 í B-deild Alþingistíðinda. (1528)

186. mál, almannatryggingar

Frsm. (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. sem liggur frammi á þskj. 303 frá hv. heilbr.- og trn. og varðar frv. til l. um breytingu á lögum um almannatryggingar. Hér er um leiðréttingarmál að ræða vegna lagabreytingar frá 1984 með lögum nr. 98 og varðaði lengt fæðingarorlof vegna fleirburafæðinga.

Síðar í þeirri lagagrein sem um fæðingarorlof fjallar, þ.e. 16. gr. almannatryggingalaga, var getið um hinn fjórða mánuð í þeim tilvikum er móður er af heilsufarsog öryggisástæðum ráðlagt að hefja töku fæðingarorlofs meira en einum mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag og jafnframt ef hún vegna sjúkleika þarf einum mánuði lengra fæðingarorlof. Þar var talað um hinn fjórða mánuð en ef um er að ræða fleirburafæðingu þá geta mánuðirnir orðið fleiri.

Tryggingastofnun ríkisins þótti nauðsynlegt að breyta þessu orðalagi í lögunum þó að mér hefði nú fundist, sem flm. þess lagafrv. sem varð að lögum 1984, að þetta hefði leitt af sjálfu sér, en við urðum sammála um að þessi breyting væri þá til að taka af allan vafa og nefndin mælir eindregið með að frv. verði samþykkt.