18.12.1985
Neðri deild: 36. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1861 í B-deild Alþingistíðinda. (1561)

184. mál, verðjöfnunargjald af raforkusölu

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Í framhaldi af þeirri umræðu, sem fór fram hér úr þessum stól við 2. umr. og í sambandi við atkvæðagreiðslu hefur iðnn. átt fund um þetta mál ásamt mér. Niðurstaða þess er sú að til að auðvelda og gera mál gleggri birtast nú tvær brtt. Er ég einn flm. að annarri en ásamt mér eru flm. að hinni Friðrik Sophusson, Steingrímur J. Sigfússon, Ingvar Gíslason og Guðrún Agnarsdóttir. Jafnframt er brtt. á þskj. 290 dregin til baka. Til afgreiðslu verða þá brtt. á þskj. 302, 326 og 327.

Sú sem er á þskj. 302 varðar mig í rauninni ekki, hún er um að verðjöfnunargjald skuli nema 16%.

Sú, sem er á þskj. 326 og er flutt af mér og Friðrik Sophussyni, Steingrími J. Sigfússyni, Ingvari Gíslasyni og Guðrúnu Agnarsdóttur, varðar það að í stað þess að í 8. gr. laganna standi eingöngu „húshitunar“ skuli standa: rafhitunar eða varmadælna. En eins og kom fram hér áður við umræðuna er framkvæmd laganna í raun þessi og sjálfsagt að samræmi sé milli þeirrar framkvæmdar, sem möguleg er og menn telja skynsamlegasta, og laganna þannig að þetta fellur að framkvæmdinni.

Sú till. sem ég flyt einn og er á þskj. 327 varðar það að verðjöfnunargjaldið verði 14% en ekki 16% og í öðru lagi að ekki eigi að greiða verðjöfnunargjald af raforku seldri til hitaveitna vegna dælingar á heitu vatni, seldri til skipa í höfnum eða til fiskeldisstöðva vegna vatnsdælingar.

Ég sé ekki, herra forseti, ástæðu til að fjalla frekar um þetta mál. Ég held að það skýri sig að öðru leyti sjálft og vænti þess að nú séu brtt. í þeim búningi að ekkert sé að vanbúnaði að taka afstöðu.