19.12.1985
Sameinað þing: 33. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1881 í B-deild Alþingistíðinda. (1598)

193. mál, stofnskrá fyrir Vestnorræna þingmannaráðið

Páll Pétursson:

Herra forseti. Ég vil einungis fyrir hönd okkar flm. þessarar till. þakka hv. utanrmn. og formanni hennar fyrir skjót og sköruleg vinnubrögð í þessu máli. Við erum mjög ánægð yfir því að Alþingi er á góðum vegi með að taka þarna afstöðu til málsins.