19.12.1985
Efri deild: 39. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1882 í B-deild Alþingistíðinda. (1602)

84. mál, skráning skipa

Frsm. (Jón Kristjánsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti fjh.- og viðskn. Ed. um frv. til laga um Jarðboranir hf.

Nefndin hefur rætt þetta mál og leitað m.a. álits fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fulltrúi þess kom á fund nefndarinnar og einnig hefur verið leitað umsagnar Rannsóknaráðs ríkisins.

Þetta frv. er um heimild fyrir ríkisstj. til að stofna með Reykjavíkurborg hlutafélag er yfirtaki rekstur Jarðborana ríkisins og Gufuborana ríkisins samkvæmt samningi sem dagsettur var 8. maí 1985. Það kemur fram í athugasemdum við frv. að það hefur verið borið undir Samband íslenskra hitaveitna sem er meðmælt frv. og fylgir umsögn Sambands íslenskra hitaveitna í fylgiskjölum frv.

Það varð ekki ágreiningur um þetta frv. í nefndinni.

Nefndin mælir með því að það verði samþykkt óbreytt, þó með þeim fyrirvara að öll sveitarfélög njóti sambærilegra kjara í viðskiptum við hina nýju stofnun, Jarðboranir hf.

Ég hef ekki um þetta fleiri orð. Um þetta mál er samkomulag með þessum fyrirvara eins og áður segir.