19.12.1985
Efri deild: 40. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1908 í B-deild Alþingistíðinda. (1616)

145. mál, stjórn fiskveiða

Frsm. 1. minni hl. (Skúli Alexandersson) frh.:

Virðulegi forseti. Það er greinilegt að ég get ekki haldið áfram þar sem frá var horfið þar sem hv. 3. þm. Suðurl. er ekki mættur í salinn. Ég get því ekki greint frá stöðu mála í sambandi við þorskveiðar þeirra Vestmanneyinga. (Forseti: Þar fór í verra og ekki vill forseti verða til þess að hv. 3. þm. Suðurl. fái ekki réttar upplýsingar. En það er verið að sækja hann.) Það er af nógu að taka. Ég get því byrjað á öðrum þáttum þessa máls. Það er ekki miklum erfiðleikum háð að halda áfram umræðu um þetta.

Ég ætla að taka svolítinn útúrdúr. Við höfum heyrt í fréttum undanfarið að verið er að ræða um það að sameina þessi svokölluðu vinstri blöð - þó að ég viti ekki almennilega hvort þessi þrjú blöð, sem nefnd hafa verið, geti öll talist vinstri blöð. Orsökin mun líklegast vera sú að eitt af þessum blöðum, NT, mun hafa, eins og mörg önnur fyrirtæki, ekki síst fyrirtæki við sjávarsíðuna, tapað dálitlu af eigin fé, standa illa í rekstrinum. Þess vegna sé nauðsynlegt að reyna að breyta um skipulagsform og fá breiðari grundvöll til að standa á í sambandi við reksturinn - jafnvel svipað og þegar íhaldið bjargaði Ísbirninum - að reyna að leita til annarra vinstri afla í þjóðfélaginu til að standa undir og tryggja rekstur Tímans.

En þegar erfiðleikar steðja að mönnum vilja þeir samt oft sýna að þeir séu miklu sterkari en þeir raunverulega eru. Mér sýnist á Tímanum í dag að hann telji sig þess vel umkominn að senda ákveðnum aðilum í þjóðfélaginu, jafnvel ráðherrum, skeyti á þann máta að þeim sé sæmra að gera allt annað en að greiða atkvæði gegn því kvótakerfi sem við erum að ræða hér.

Það er mikil reisn yfir blaðinu. Ætli það hefði ekki verið sæmra að láta þessa umræðu eiga sig? Ætli hæstv. viðskrh. hafi ekki bara verið heimilt, án þess að leita leyfis hjá Framsfl. og samráðherrum sínum í ríkisstj., að greiða atkvæði á þann máta sem hann gerði í hv. Nd.? En Framsfl. getur ekki setið á sér að minna Sjálfstfl. á að það sé hann sem stjórni í þessum málum og hann skipi sjálfstæðismönnum fyrir verkum. Það þýðir ekkert að kvarta undan því, hv. þm. Björn Dagbjartsson, þannig er þetta og þannig er tónninn í Tímanum í dag. Það sé ekki líðandi að ráðherra í ríkisstj. greiði atkvæði gegn stjfrv., það sé ekki þessari virðulegu ríkisstj. sæmandi. Jafnvel er látið að því liggja að hæstv. ráðh. eigi að segja af sér vegna þess að hann tók þessa afstöðu.

Framsfl. finnst hann hafa efni á því sýknt og heilagt, við hvaða tækifæri sem er, að benda sjálfstæðismönnunum á að þeir hafi látið kúgast og þeir fari eftir því sem Sjálfstfl. skipar þeim. Þetta er bara eitt dæmi sem ég vildi minna á og benda hv. þm. Sjálfstfl. á að jafnvel þó að Tíminn standi eins og hann stendur í dag þegar hann biður aðra að koma sér til hjálpar þá þykist hann hafa efni á því að snupra ráðherra Sjálfstfl. vegna þess að hann hefur aðra skoðun en hæstv. sjútvrh. og leyfir sér að greiða atkvæði gegn frv. sjútvrh.

En nú er hv. 3. þm. Suðurl. genginn í salinn og sestur í sæti sitt. Þá get ég upplýst hann um það sem ég ætlaði að gera í lok síðasta fundar, þ.e. hvernig Vestmanneyingar nýta stóra fiskinn, hvernig sjónarmið Vestmanneyinga í tengslum við fiskveiðistefnuna koma fram og hvernig það lýsir sér. Það lýsir sér á þann hátt að miðað við framleiðsluverðmæti á fullstöðnum, blautverkuðum saltfiski á vetrarvertíð í Vestmannaeyjum þá munar 110 millj. á því framleiðsluverði sem Vestmanneyingar fá fyrir sinn saltfisk og því verði sem fengist ef þessi fiskur væri allur framleiddur í 1. flokk.

Aðeins hjá Vestmanneyingum varð slík útkoma á s.l. vetrarvertíð. Þeir voru að veiða stóra þorskinn, stærsta og verðmætasta fiskinn sem við öflum á Íslandsmiðum. Þeir framleiddu 5593 tonn af blautverkuðum saltfiski. Verkunin var þannig að í 1. flokk af þessum verðmæta fiski fóru 13,9%, hv. þm. Þannig nýttist stórþorskurinn við Suðurland. Það bara þekkist varla að saltfiskur verkist mikið undir 60% í 1. og 2. flokk. Hvað skyldi það hafa verið? Það fóru 26,3% í 2. flokk. Í 1. og 2. flokk í Vestmannaeyjum fóru sem sagt 40% af saltfiskaflanum undir þessari fínu fiskveiðistjórnun.

Það er gott að hafa ákveðin sjónarmið um að nauðsynlegt sé að lofa fiskinum að vaxa upp. Ég skal taka undir það með hv. þm. En það verður þá að hafa í huga að ef fiskurinn fær að vaxa upp sé hann nýttur á þann máta að út úr honum komi verðmæti en ekki á þann máta sem gert var í Vestmannaeyjum og víðar á landinu á síðustu vetrarvertíð. Þetta er dómur um ranga fiskveiðistefnu.

Við hv. þm. Björn Dagbjartsson vil ég segja í sambandi við þetta: Ég nefndi þessa tölu við 1. umr. líka. Hann sagði: „4. þm. Vestf. er ekki að fara hér með réttar tölur, hann er ekki að benda á rétta hluti vegna þess að stór hluti af afla Vestmanneyinga fer í tandurfisk. Sú breyting hefur átt sér stað á undanförnum árum.“ Hver skyldi hluturinn vera? Hvað skyldi tandurfiskur hafa verið mikill hluti af framleiðslu Vestmanneyinga á síðustu vetrarvertíð? Þetta hlýtur að vera eitt af því sem hv. stuðningsmenn fiskveiðistefnunnar vita og liggur alveg á kláru. (Gripið fram í: Og frystingu.) Við erum að tala hér um saltfiskinn. Ef ég kæmi með frystinguna líka þá mundu tölurnar fyrst verða háar. Hvað skyldi hafa farið í blokk? Hvað skyldi það vera mikið? Ég gæti gefið ykkur þá tölu líka, ég er bara ekki með hana hér útreiknaða á þennan máta.

Hvað skyldi framleiðsla Vestmanneyinga í tandurfisk á vertíðinni 1985 hafa verið mikil? - Blautverkaði fiskurinn var 5593 tonn. - Hún hlýtur að hafa verið dálítið mikil. Nei, hún var bara 399 tonn, það voru öll ósköpin. Matshlutfallið var á ósköp svipuðu stigi, þó aðeins skárra, þannig að það breytti engu.

Ef rök og fullyrðingar hv. stuðningsmanna frv. eru af svipuðu tagi og staðhæfingar hv. þm. Björns Dagbjartssonar við 1. umr. er ekki mikið mark á þeim takandi. Því miður eru kannske flestar fullyrðingarnar um ágæti fiskveiðistefnunnar af þessu tagi. Það er verið að draga upp aðra mynd, oft á tíðum vegna þess að þeir sem talað er við hafa ekki aðstöðu til að sannreyna hlutina. Það er hægt að fullyrða ýmislegt og segja að það sé svona og svona ef sá sem við er talað hefur ekki aðstöðu til að sannreyna það og einnig ef notað er það bragð að hafa við hliðina á sér vísindamenn - eins og ég hef nefnt áður í sambandi við hæstv. sjútvrh. - að halda langar og miklar ræður um stefnu sína og ágæti og hafa svo vísindamann við hliðina þannig að svo líti út sem allt sé ein samfelld vísindaleg kenning. En það fór lítið fyrir vísindunum í fullyrðingu hv. þm. Björns Dagbjartssonar.

Varðandi þessa vísindalegu túlkun og yfirbragð á umræðunni tel ég mjög miður að ráðherra skuli hafa gert þetta vegna þess að það sem við þurfum fyrst og fremst í sambandi við sjávarútveginn er að bera fullkomið traust til Hafrannsóknastofnunarinnar. Við þurfum að styrkja þá stofnun og efla hana og við þurfum sem flest, helst öll, að vera þess fullviss að við getum tekið fullkomið mark á því sem þeir menn, sem þar vinna, segja okkur. Við viljum ekki tengja það pólitískum ákvörðunum. Það eru aðskildar ákvarðanir og aðskildar tillögur, hinar pólitísku tillögur og ákvarðanir og svo þær tillögur sem fiskifræðingar gefa út og láta okkur heyra frá sér um.

Ég held að þetta nægi í sambandi við sjónarmið Vestmanneyinga og fiskveiðistjórnunina. A.m.k. falla þau sjónarmið, sem hv. 3. þm. Suðurl. hefur lagt hér fram, um sjálf sig.

En það er annar þáttur sem hefur komið hér til umræðu í sambandi við þá reglugerð sem við höfum fjallað um í sjútvn., tillaga um breytingu á aflakvóta togaranna. Hvað er þar að eiga sér stað? Við Snæfellingar höfum haldið því fram frá því að þetta kerfi tók gildi að mörkin á milli norður- og suðursvæðis væru ranglega staðsett við Látrabjarg, þau ættu að vera við Öndverðarnes. En okkur hefur aldrei dottið í hug að nefna að breyta ætti viðmiðuninni á milli suður- og norðursvæðisins vegna þess að kerfið byggir á þriggja ára viðmiðun, á þeirri viðmiðun sem þá var byggð upp. Ef nú á að fara að gera stórar breytingar á því er verið að færa aflakvóta frá Norðurlandi og frá Austfjörðum á suðursvæðið. Það stenst ekki. Ef við ætlum að byggja áfram á þriggja ára reglunni sem grundvallarreglu stenst ekki að við færum að nokkru marki kvóta á milli svæða.

Ég vil þó taka undir eitt af því sem hv. 3. þm. Vesturl. sagði í sambandi við þessa tilfærslu. Það er alveg greinilegt að bilið á milli minni togaranna er óeðlilega stórt. Varðandi það tel ég að sé um ákveðna leiðréttingu að ræða. En varðandi hinn þáttinn tel ég að ekki sé um annað en kvótatilfærslu að ræða á stóran og óeðlilegan máta.

Eitt af því sem stuðningsmenn aflamarksins hafa nefnt er að nauðsynlegt sé að hafa kerfið til tveggja, þriggja eða sem flestra ára, þannig að menn geti byggt upp og skipulagt sína útgerð út frá því að þetta sé viðvarandi kerfi. Ég hef bent á að það yrði kannske fyrst og fremst til þess að menn færu að kunna að spila á kerfið. Einn er sá þáttur sem ráðherra hefur lagt mikla áherslu á, þ.e. að geta flutt afla á milli ára, skilið eitthvað eftir af aflakvóta líðandi árs og flutt það yfir á næsta ár og í öðru lagi farið aðeins yfir og tekið þá af aflamarki næsta árs. Það eru ákveðin rök í þessu og þetta gerir ekki kerfið eins stíft, ég skal viðurkenna það. En mér er spurn, fyrst þetta er svona mikilsvert atriði að helst hefði þurft að samþykkja kerfið til þriggja ára, sumir telja jafnvel lengur: Af hverju var ekki í þessu frv., sem við erum að fjalla um hér, ákvæði sem verkaði aftur fyrir sig, til þeirrar stöðu sem við búum við í dag? Af hverju mátti ekki gera frv. enn þá betra með því? Ef það er betra með því að hægt sé að færa á milli áranna 1986 og 1987 hefði það orðið enn þá betra með því að hægt hefði verið að færa á milli áranna 1985 og 1986.

Mér er kunnugt um að sumir þeir, sem fóru ekki að ráðum og hugmyndum kvótastjórnarinnar sem skipulagði kerfið, sem sagt veiddu allt við bestu aðstæður, heldur hugsuðu fyrst og fremst um byggðir sínar og geymdu nokkuð af kvótanum fram á haustið, eiga nokkurn kvóta eftir vegna þess að þeir reyndu að forðast annmarka kerfisins, sem stuðningsmenn þess sögðu reyndar að væru kostir þess. Ráðherra og vissir stuðningsmenn hafa upp á síðkastið sagt að það væru vondir menn sem hefðu ekki farið að þeirra ráðum og fiskað allt við bestu aðstæður. Ég held að þeir hafi alveg rétt fyrir sér. En þeim er ekki sýnd meiri viðurkenning en svo að það er ekki hugsað til þeirra, að þetta ágæti geti náð til þessara áramóta. Mikil eru gæðin.

Hæstv. ráðh. er víst ekki hér staddur. (Gripið fram í: Það má ná í hann.) Ég veit það. En það þarf ekki að spyrja hann um þetta. Ég veit um svarið af því að formaður sjútvn., hv. 3. þm. Vesturl., athugaði þetta fyrir okkur í morgun, kynnti sér afstöðu ráðuneytisins í þessu máli. Hún var alveg klár. Nei, það er ekki gott að beita þessu um áramótin 1985-1986 en það er mjög nauðsynlegt og gott að beita þessu um áramótin 1986- 1987. Það er skrýtin rökhyggjan þeirra.

Það er nærri því ótæmandi sem maður gæti spjallað um í sambandi við þessi mál. En við komum okkur saman um það í hv. sjútvn. deildarinnar að koma þessu máli af hér í kvöld. Sjálfsagt breytir ekki miklu þótt enn væri bætt við nokkrum punktum í sambandi við agnúa þessa kerfis. Ég mun því ekki eyða miklu fleiri orðum um þann þáttinn.

Hv. þm. Björn Dagbjartsson hafði þau orð um tillögur Farmanna- og fiskimannasambandsins að þær væru ekki tillögur og þeim hefði verið sullað saman á örskammri stund. Ég tel því nauðsynlegt að fara um þessar tillögur nokkrum orðum ef vera kynni að hv. þm. Björn Dagbjartsson áttaði sig á því að hann hefði farið þar með rangt mál og að þetta væru dálítið merkar tillögur. Ef hv. þm. kallar ekki tillögur Farmanna- og fiskimannasambandsins tillögur veit ég ekki hvaða nafngift ætti að gefa þeirri fiskveiðistjórnun sem hann ætlar að fara að samþykkja.

„Farmanna- og fiskimannasamband Íslands leggur áherslu á að mörkuð verði veiðistefna til aukins frjálsræðis í veiðum.“ - Það er ósköp eðlilegt að þessi tillögur komi við taugarnar á einkaframtaksmanninum - ég þori ekki að segja: frjálshyggjumanninum - það er óvíst að hann hafi gengið það langt. (Gripið fram í: Það er óhætt að segja það.) Það er óhætt að segja það.

Þar er nefnt að þorskafli ársins skuli verða sem næst 350 þús. tonn. Þetta er tala sem fiskifræðingar telja að muni ekki skerða þorskstofninn, við munum búa við nokkuð vaxandi fiskistofn. Þetta er tala sem er þó nokkuð undir þeirri tölu sem greinilega verður aflað samkvæmt því sem hér liggur fyrir til afgreiðslu. Eins og ég hef sagt áður eru allar líkur fyrir því að aflinn samkvæmt því kerfi geti farið allt upp í 450 þús. tonn, verði trúlega á bilinu 400-450 þús. tonn eftir reynslu ársins í ár og ársins 1984.

Þetta er það sem margir hafa verið að tala um í sambandi við tegundamarksstefnu Vestfirðinga og Farmanna- og fiskimannasambandsins, að þeir vilji ganga að þorskstofninum og veiða úr honum án nokkurrar fyrirhyggju. En það hefur sýnt sig einmitt út frá þessum tillögum og af reynslunni af tegundamarkinu eða skrapdagakerfinu að þá var farið miklu minna fram úr en á þeim tveim árum sem kvótinn hefur verið við lýði.

„Frjálsar veiðar með sóknarstöðvun og veiðistýringu í aðrar tegundir en þorsk.

Sóknartakmörkun og veiðistýring bátaflotans. Þorskafli bátaflotans skal vera sem næst 165 þús. tonn árið 1986.

Árinu skal skipt í tvö tímabil, 1. jan. til 30. júní með 30 daga skyldustoppi, þar af 10 daga um páska. Viðmiðunaraflamagn skal vera 123 þús. tonn.“

Þarna eru beinar tillögur um hvað gera skuli. Ég get sagt hv. þm. að ég er ekki alveg sammála um þær tölur sem þarna eru inni. Ég tel þarna of mikið fært til togaraflotans miðað við reynslu fyrri ára. En þetta eru ákveðnar tillögur um hvernig skuli framkvæma hlutina. Það er alveg sama hvað hv. þm. hristir mikið hausinn, það breytir ekki þeirri staðreynd að þetta eru tillögur og miklu merkari og betri tillögur en þær sem við erum að fjalla um.

„Árinu skal skipt í tvö tímabil, 1. jan. til 30. júní með 30 daga skyldustoppi, þar af 10 daga um páska. Viðmiðunaraflamagn skal vera 123 þús. tonn.

Á tímabilinu 1. júlí til áramóta skal stoppa 40 daga, þar af 10 daga um verslunarmannahelgi og frá 20. des. til áramóta. Viðmiðunarafli 41 þús. tonn.“

Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta. En þetta er grundvöllur stefnunnar. Þó að hv. þm. hristi enn höfuðið þá er grundvöllur þessa kerfis að menn megi hafa frjálsræði, að menn séu ekki bundnir af einhverjum klafa fyrri reynslu, menn geti fært sig á milli skipa og notið dugnaðar síns og hæfileika.

Takmörkunin kemur fram á þann hátt að það verður að stoppa ákveðið tímabil, ákveðinn tíma yfir jól, og ef aflasóknin verður of mikil verður dregið úr sókninni og ákveðið stopp gert í veiðisókninni. Ætli það sé ekki nokkuð betra að hafa það á þann máta en eins og reynslan var á síðasta ári þegar bátar, eins og ég hef sagt hér áður, úti á Snæfellsnesi voru búnir með sinn kvóta upp úr páskum, þ.e. þann sem þeir treystu sér til að veiða, lágu yfir allt sumarið, og fiskvinnslustöðvarnar höfðu engan afla til þess að vinna úr. Ætli það sé ekki heppilegra að skipta þessu niður á stopp, breytilega yfir árið, en að hafa það á þennan máta, eins og kerfið sem við búum við núna hefur komið út?

Og áfram, virðulegi forseti, les ég hér upp: „Stoppdagar teljast þrír sólarhringar eða meir. Handfæraveiðar verði óheftar nema 10 daga um verslunarmannahelgi.“ Eitt af því merkilega við þetta kerfi sem við búum við er þessi eltingarleikur við færabátana, að það skuli vera saknæmt að skjótast hér út á Faxaflóa um helgi - ja, við skulum segja bara fyrir reykvískan heildsala eða reykvískan verkamann, skrifstofumann eða hvern annan - að það skuli vera bannað á Íslandi að skjótast út á skak. Ég efast ekki um að hefði okkur hv. þm. verið sagt það fyrir fjórum árum að þannig yrði komið á árunum 1984-1985 að Íslendingum væri bannað að fara á skak hefðu allir hlegið. Það hefði verið svo mikil fjarstæða að slíkir hlutir gætu átt sér stað.

„Miðað við núverandi möguleika á loðnuveiðum stundi loðnuflotinn ekki þorskveiðar fyrri helming ársins 1986.“ Það er rétt í sambandi við þennan þátt í þessum tillögum að benda á einn furðuhlutinn í reglugerðinni sem verið er að leggja fyrir okkur núna. Það er takmörkunin á þorskafla loðnuskipanna. Jú, það hefur skeð á því herrans ári 1985 að það hefur verið góður loðnuafli. Þá þarf endilega að hlaupa upp til handa og fóta og takmarka þorskafla þessara skipa. Það má enginn hafa það gott á Íslandi. Það verður að skipuleggja það þannig. Hvað á þá að gerast ef þannig skyldi fara á árinu 1986 að loðnuaflinn mundi bregðast, þó að sem betur fer séu kannske ekki miklar líkur til þess? Á þá að stórauka þorskafla loðnuskipanna? Þetta er slíkur eltingarleikur að það er alveg furðulegt hverju hægt er að taka upp á.

Og áfram, virðulegi forseti: „Stoppdagar sérveiðiskipa, svo sem rækju-, humar-, skelveiði-, síldveiði- og loðnuskipa, teljast aðeins utan sérleyfisveiða.“ Sem sagt, sérleyfisveiðarnar koma án þess í eðli sínu að trufla nokkuð eðlilega veiðisókn, en þær falla inn í heildarveiðisókn skipsins. Ekki er verið að reikna út með einhverjum sérstökum kvótum og mati á þessari eða hinni fisktegundinni hvað skuli dregið mikið frá eða skertur þorskveiðiaflinn, heldur falli þær á eðlilegan máta inn í það kerfi sem boðið er upp á. Þetta eru sjálfsagt ekki tillögur. Hitt eru tillögur, að reikna rækjuna á þetta og humarinn á þetta, síldina á þetta og loðnuna á þetta og mega svo skipta öllu yfir í þorsk. Það eru vitlegar tillögur að vera með aflamark á þorsk og breyta síðan öðrum fisktegundum í þá tegund.

Og áfram, virðulegi forseti: „Á svæðinu frá Horni suður og austur um að Eystra-Horni má hlutfall þorsks í afla netabáta ekki fara yfir 20% á tímabilinu 1. janúar til 1. febrúar.“ Þarna er verið að beina netaskipunum fyrst og fremst á ufsann til þess að nýta þann stofn sem hefur ekki náðst að veiða upp í það magn sem áætlað hefur verið og fiskifræðingar hafa talið óhætt að veiða.

Og áfram: „Þorsknetaveiðar á svæðinu Horn - Eystra-Horn hefjast ekki fyrr en 15. janúar.“ Þarna er ákveðin takmörkun á þorsknetaveiðunum í því augnamiði að í svartasta skammdeginu verði minni sókn og einnig að tryggja það að á harðasta veðurtímabilinu verði ekki verið með þorskanet í sjó og þar af leiðandi verði líkur fyrir því að betri afli berist að landi.

„Þorsknetaveiðar skulu bannaðar 1. júlí til 15. ágúst.“ Reynslan af þorskanetaveiðum á þessu tímabili hefur verið sú að næstum því hefur verið ókleift að koma með góðan afla að landi, jafnvel þó að menn hafi dregið þar á nokkurra klukkustunda fresti, vegna þess að á þessu tímabili er sjór það heitur, fiskurinn yfirleitt átufullur og á mjög stuttum tíma skemmist fiskurinn á þann veg að þunnildi verða léleg og fiskurinn verður laus í sér. Þetta er sjálfsögð varúðarráðstöfun gegn því að skemma hráefnið og gæti svo sem alveg eins verið í því kerfi sem við búum við núna eins og þessu, en til þess að koma á einhverju sérstöku yfirbragði sem menn kalla frelsi - en heitir að vissu leyti náttúrlega ófrelsi - er sagt að ekki megi skipta sér af slíkum hlutum undir aflamarkskerfinu. Mennirnir hafi eina þvingun og hún sé nóg og það er vitaskuld alveg satt. Hún er nóg. En til þess að forða slysum í sambandi við að koma með lélegan afla er þessi aðgerð sjálfsögð.

Og enn, virðulegi forseti: „Frá Horni suður og austur um að Eystra-Horni skal ekki leyfa smærri möskva en 7 tommur á tímabilinu 15. janúar til 15. maí.“ Á vetrarvertíðinni síðustu þegar páskar voru snemma, eins og þm. vita, var leyfilegt að fara með 6 tommu möskva eftir páskana á veiðisvæðin við Breiðafjörð. Þetta orsakaði það að fiskiflotinn eða hluti fiskiflotans lagði út 6 tommu möskvann, fékk miklu fleiri fiska en ekkí miklu þyngri vigt. Hvað var að gerast? Það var verið að sortera úr smáfiskinn, skilja stóra fiskinn eftir, vinna að því að stóri fiskurinn gæti sjálfsagt vaxið upp og farið á mið þeirra Sunnlendinga og verkast eins og hann verkaðist í fyrra. Jafnframt var náttúrlega verið að koma að landi með miklu verðminni afla vegna þess að allur sá fiskur sem fer í saltfisk er verðlagður eftir stærð. 1. flokkur af meginhluta þess fisks sem kom í 6 tommu möskvann er að verðgildi eins og III. flokkur af stórfisknum sem Vestmanneyingarnir voru að vinna. Þetta er nú þessi góða fiskveiðistefna. Hún þorir ekki einu sinni að taka á þessu vandamáli, að stoppa það að 6 tommu möskvi sé notaður hér suðvestanlands og að fiskiskipin sorteri smáfiskinn úr og skilji stóra fiskinn eftir á miðunum. Þannig er þessi fiskveiðistefna. Þannig er það ekki skiljanlegt að hv. þm. Björn Dagbjartsson, sem ég sé nú ekki lengur framan í, skuli ekki líta á þær tillögur sem ég er að fara yfir sem tillögur heldur sem punkta, en þær tillögur sem hann mælir ákafast með sem tillögur, en þær tillögur þora í engu að taka á þessum vandamálum.

Og áfram, virðulegur forseti: "Sjútvrn. fylgist með afla á viðmiðunartímabilum og fækki eða fjölgi stoppdögum eftir þróun veiðanna. Verði þorskafli í marslok meiri en 85 þús. tonn skal fjölga stoppdögum seinni hluta apríl og í maí.“ Þetta kemur í beinu framhaldi af upphafi tillagnanna.

Og áfram: „Loðnubátar sem hefja þorskveiðar í troll á síðara tímabili sæti sömu sóknartakmörkum og togarar. Þorskafli togara verði sem næst 185 þús. tonn árið 1986. Árið skiptist í tvö tímabil: 1. janúar til 31. maí. Á því tímabili verði skyldustöðvun í 25 daga og viðmiðunarafli 85 þús. tonn af þorski. 1. júní til áramóta verði veiðistopp í 45 daga, þar af 10 daga á tímabilinu 20. júlí til 10. ágúst.“ Þarna er tekið á einu mesta vandamáli íslenskra fiskveiða undanfarandi tvö ár. Það er gert ráð fyrir því að á miðsumartímabilinu verði veiðar mjög takmarkaðar. Þetta tímabil hefur undanfarin tvö sumur verið aðalaflatímabil togaranna. Og þá hefur það gerst, eins og ég hef nefnt áður í þessari umræðu, að meira og minna af þeim afla sem togararnir hafa komið með hefur skemmst í vinnslu. En í sumar varð kvótakerfið þess valdandi að menn reyndu að bjarga sér frá þessum skemmdum á aflanum með því að flytja aflann út í gámum. Kvótakerfið verður sem sagt þess valdandi, eða aflamarkskerfið, í fyrsta lagi að skemmst hefur stór hluti af afla í fiskvinnslustöðvunum og í öðru lagi að atvinna og framleiðsluverðmætisaukning í landinu hefur minnkað vegna þess að stór hluti af aflanum var í sumar fluttur út ísaður til Englands í gámum. Um verðlagningu þess fisks og alla þá miklu auglýsingu sem hann hefur fengið gæti ég haldið langa ræðu. En ég ætla ekki að tefja virðulegan forseta með því í kvöld. Það gæti verið að ég hefði tækifæri til þess einhvern tíma seinna. En þar á sér stað ansi mikil blekking sem ég held að hv. þm. ættu svolítið að kynna sér í sambandi við það sem gefið er út að fáist fyrir gámafiskinn og sölufiskinn í Englandi. Í tillögum Farmanna- og fiskimannasambandsins er bent á leið til að komast fram hjá þessum agnúa þess kerfis sem við búum við í dag. Það telur hv. þm. ekki tillögur.

Og áfram, virðulegi forseti: „Veiðar skal stöðva frá 20. desember til áramóta. Viðmiðunarafli 100 þús. tonn af þorski. Heimilt er þeim skipum sem veiða fyrir erlendan markað að stöðva fyrstu 11 daga desembermánaðar.“ Þarna er líka tillaga sem er nauðsynleg ef fiskiskip vilja fara einn túr í skammdeginu, eins og oft og tíðum er með togara. Það er orðin lenska að jafnvel þó að skipin hafi stöðugt fiskað fyrir heimavinnslu fá þau að fara einn túr í skammdeginu á besta sölutímabilinu. Þarna er gefið tækifæri til að færa aðeins til daga til þess að ná betri sölutíma miðað við fyrri ára reynslu. Þetta er ekki tillaga, virðulegi þm.

Og áfram, virðulegi forseti: „Skilyrt sé að heildarársafli togara verði að lágmarki 30% aðrar tegundir en þorskur.“ Þarna er sem sagt verið að binda það í tillögu að við nýtum aðrar fiskitegundir hér við landið en þorsk. Það er ekki verið að gefa tækifæri til þess að skipta á ufsa og þorski og karfa og þorski, heldur er það skilyrt að ákveðinn hluti afla þessara skipa verði úr þessum fiskitegundum sem okkur er nauðsynlegt að nýta ekki síður en rækjuna sem allt í einu fór að veiðast þegar kvótinn var settur á. Og við aflamarksmenn gætum ábyggilega reiknað okkur ansi stórar fúlgur af karfa og ufsa þegar við færum að reikna ágæti okkar kerfis ef við ættum að fara að reikna á eitthvað svipaðan máta og hæstv. sjútvrh. hefur gert. - Það er reyndar ekki hæstv. ráðherra, heldur er það hin virðulega stofnun, Þjóðhagsstofnun, sem hefur reiknað út allan þennan gróða af kerfinu.

Áfram, virðulegi forseti: „Þessa prósentu skal hækka ef í ljós kemur eftir fyrstu fjóra mánuði ársins að hlutur þorsks í heildarveiði togara er meiri en æskilegt getur talist.“ Þetta er sem sagt áframhald á þessum möguleika og þessari nauðsyn.

Og í lokin segir, virðulegi forseti: "Sjútvrn. fylgist með afla á viðmiðunartímabilinu og fækki eða fjölgi stoppdögum eftir þróun veiðanna.“ Það fer ekki mikið fyrir valdi ráðuneytisins í þessu plaggi. Það er beðið um að fylgjast með hvernig hlutirnir eigi sér stað og fylgjast með veiðum sem útilokað er að svindla á eða búa til eitthvert kerfi til að komast fram hjá. Það er von að þeir sjálfstæðismenn telji þetta ekki tillögur. Ég á nú síst að nefna það sem mér datt í hug. Hv. þm. Karl Steinar Guðnason er ekki hér, en hann nefndi þetta kerfi sem verið væri að byggja upp sérstöku nafni, sósíalisma og svolítið meira ljótt á eftir. Það er það kerfi sem þessir hv. sjálfstæðismenn eru að rífast um hver eigi hugmyndina að og þeir geta ómögulega unnt hæstv. sjútvrh. að vera faðirinn að því. Hvar í flokki eiga þessir menn að vera? Getur það verið að þetta séu flokksmenn Jóns Þorlákssonar og Ólafs Thors? Það er víst. (EgJ: Það voru nú fleiri.) Í flokknum, já, þeir hafa nú verið fleiri. (EgJ: Flokksmenn þeirra.) Þeir hafa nú verið fleiri. Sem betur fer er einn og einn þm. úr Sjálfstfl. enn þá á því að það sé æskilegra að hafa frelsi til athafna, frelsi til starfa. En það er greinilegt að það fellur ekki í góðan jarðveg hjá samstarfsflokknum. eins og ég nefndi þegar ég kom hér eftir matarhléið fannst samstarfsflokknum eða blaði samstarfsflokksins það hlýða að senda flokksmönnum Sjálfstfl. smákveðjur í leiðaranum í dag, sérstaklega viðskrh. Hann hafði ekki farið sérstaklega skemmtilega að ráði sínu með því að leyfa sér að greiða atkvæði á móti þessu kerfi. Það féll ekki heim og saman við þann anda sem þessi ríkisstj. vildi halda uppi innan síns liðs. En sem betur fer gerði hæstv. viðskrh. það og fleiri sjálfstæðismenn. Og ég vænti þess að fleiri sjálfstæðismenn en þegar er ljóst í þessari hv. deild geri sér grein fyrir því núna við atkvgr. á eftir að það er ekki verið að samþykkja stefnu Sjálfstfl. með því að greiða þessu frv. atkvæði og að þeir mundu frekar nálgast stefnu Sjálfstfl. með því að greiða atkvæði gegn þessu frv. og fella það við atkvgr. hér á eftir.