19.12.1985
Efri deild: 40. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1916 í B-deild Alþingistíðinda. (1618)

145. mál, stjórn fiskveiða

Árni Johnsen:

Virðulegi forseti. Það er ástæða til þess að þakka hv. þm. Skúla Alexanderssyni fyrir aldeilis ágæta ræðu, einkum þá þætti hennar þar sem hann sýndi svo berlega hve mikla umhyggju hann ber fyrir sjálfstæðismönnum. Á hinn bóginn er það kyndugt að þm. kvartaði yfir því að menn hristu höfuðið yfir ýmsum athugasemdum í spjalli hans. Það hefði kannske verið skynsamlegra fyrir hv. þm. að hafa heldur lægra í ýmsum fullyrðingum sem hann viðhafði, og heldur er það klókara að hrista höfuðið svona nett út í loftið en að berja höfðinu við steininn sýknt og heilagt, eins og hv. þm. gerði í sínum málflutningi, sérstaklega varðandi það skítkast sem hann stundaði gagnvart einu byggðarlagi hér á landi, Vestmannaeyjum, og hefur gert um hríð ítrekað, margoft í hv. Alþingi.

Hann getur sagt það sem honum sýnist um Vestmanneyinga. Þeir kippa sér ekki upp við pus af slíkum gutlbátum, en það er rétt að benda þm. á staðreyndir og vitna til þess sem hann sagði og lagði þunga áherslu á, að það væri hægt að fullyrða ýmsa hluti án þess að sannreyna þá. Nú skal þm. fá það óþvegið ofan í sig aftur.

Áður en ég kem að spjallblaðrinu í hv. þm. vil ég aðeins víkja að skiptingu þorskafla milli norður- og suðursvæðis sem þm. taldi út í hött að ástæða væri til að samræma. Miðað við að það eigi að vera hámarksafli á þorski, miðað við það að orðið hefur gjörbreyting á stöðu fisktegunda frá viðmiðunarárunum 1981-1984, sérstaklega varðandi afla togara og þá sérstaklega varðandi karfaafla, hlýtur það að vera skynsamlegt að jafna þarna muninn. Þetta eru svo einföld rök og augljós að það ætti ekki að þurfa að hafa um þau mörg orð. En það er annað sem veldur hinum grugguga málflutningi hv. þm.

Annað atriði nefndi hann og gagnrýndi sem ég rétt svaraði í upphafi. Hann gagnrýndi mjög að menn fengju að stunda gámaútflutning. Þess má geta að á þessu ári hafa verið flutt út 60 þús. tonn að verðmæti 2,5 milljarðar kr. Og ef það er út í hött að hugsa um verðmæti aflans er þetta auðvitað fáránleg niðurstaða. En það eru ekki verðmæti sem skipta máli í málflutningi hv. þm. og aldeilis ekki þegar hann hefur verið að dylgja um Vestmanneyinga sem eru þekktir fyrir allt annað en gutlvinnubrögð og ég mun aðeins rekja nánar tölur í þeim efnum.

Í fyrsta lagi vil ég geta þess að þorskafli við Vestmannaeyjar veiðist svo til eingöngu á hávertíð á mjög stuttum tíma og þar er töluverð breidd í fiskstærð þó almennt sé fiskurinn mun stærri sunnanlands en norðanlands. Það er því ekki óeðlilegt að ákveðinn hluti af aflanum skemmist á stuttum tíma. Og það er ekki neitt einsdæmi við landið. Það á við um landið allt. Þar sem álag kemur, þar sem veður hamla því að hægt sé að draga veiðarfæri úr sjó o.s.frv. Það er rétt að þetta komi fram aðeins í upphafi.

Það er ástæða til þess að skoða aðeins í ljósi þess hvernig hv. þm. hefur margítrekað verið með skítkast á Vestmanneyinga fyrir vinnubrögð þeirra og framleiðslu að þorskafli hefur á árunum 1981-1984 hvergi dregist eins saman og við Suðurland og við Reykjanes. Þar er mjög sérstök staða. Og ég skal taka í máli mínu dæmi um tvo staði. Ég skal velja einn stað við Breiðafjörð þar sem hv. þm. ætti gerst að þekkja til. Hefur hann reyndar sýnt það í sínum málflutningi að hann á ekki að hætta sér út á úthafið í því að fjalla um mál. Hann ætti að halda sig innan fjarða. Smábátar eiga ekki að fara út á úthafið, síst af öllu áralausir.

Við skulum taka Vestmannaeyjar og Hellissand. Ég vel Hellissand vegna þess að þar eru menn þekktir fyrir að koma með góðan fisk að landi og verka vel og það veit ég að hv. þm. getur staðfest. Árið 1981 var þorskafli í Vestmannaeyjum rétt tæp 30 þús. tonn. Árið 1984 var hann 13 þús. tonn. Það er 60% skerðing. Á Hellissandi var þorskafli árið 1981 5 þús. tonn, en 1984 3600 tonn. Það er 20% skerðing. Þetta hlutfall, sem mætti útfæra í nánari skýringu yfir landið í heild, staðfestir m.a. ástæðuna fyrir því að tegundahlutfall hefur breyst og þess vegna er ástæða til þess að jafna saman afla suður- og norðursvæðis.

Í Vestmannaeyjum árið 1984 - og ég vil undirstrika að nú kem ég að staðreyndum sem hnekkja í öllu máli og dylgjum hv. þm. Skúla Alexanderssonar - fóru um það bil 50% af þorskafla í frost, um það bil 45% eða liðlega það í salt. Þar inni er tandurfiskurinn sem er um það bil 10-15% léttsaltaður fiskur, góður fiskur í dýrum pakkningum. (SkA: Er það? Eru dýrar pakkningar hjá þeim?) Það er ástæðulaust að vera með útúrsnúning og réttara að hv. þm. hefði hægt um sig og hlustaði nú vel þótt erfitt kunni að vera að berja tölum og staðreyndum inn í hans höfuð.

Í Vestmannaeyjum er svo til engin skreið af þessu þó verulega þorskaflamagni, u.þ.b. 200 tonn. Á Hellissandi fer 131 tonn í skreið. (SkA: Hvaða ár er þetta?) 1984. Mun hærra hlutfall en í Vestmannaeyjum. En það er smámál, látum það liggja á milli hluta. Það er eðlilegt að hluti af aflanum fari í það sem við getum kallað úrkast þó að það sé nýtt í skreið.

Það er líka eðlilegt, þegar mikill afli berst á land á stuttum tíma, að ekki ráðist við það. Það er skiljanlegt hvar sem er í verstöðvum þar sem mikill afli berst á land í einu hendingskasti.

Ýmsar aðrar tegundir en þorskur hafa verið fýsilegri í aðra vinnslu en frost. Fer það mjög eftir stærð, markaði og öðru sem þeir þurfa að hugsa meira um sem þurfa að verka fleiri fisktegundir en eina, sem er ráðandi í afla, eins og t.d. á Hellissandi. Þar er svo til eingöngu veiddur þorskur árið um kring. Það eru kannske 300 tonn af öðrum afla sem berst þar á land. Þegar menn slíta úr samhengi með skítkasti á aðrar landsbyggðir skyldu þeir gá að bjálkanum í eigin auga og kem ég nú senn að því.

Allt snýst þetta um verðmæti, um peninga. Það hlýtur að vera grundvallarviðmiðun að ná sem mestu út úr aflanum. Þá skulum við taka heildarniðurstöður. Í Vestmannaeyjum var aflaverðmætið 700 millj. kr. á s.l. ári, á Hellissandi 49 millj. kr. Ástæða er til að benda á að af þeim 178 þús. tonnum, sem hefur verið landað í Vestmannaeyjum, eru 124 þús. tonn loðna.

Það er einfaldur samanburður á verðmætamati, sem byggist á staðreyndum, að ef við miðum við þorskaflann, sem allt þetta hjal hv. þm. hefur snúist um, annars vegar á Hellissandi og hins vegar í Vestmannaeyjum, þá er 5% meira verðmæti sem fæst fyrir aflann í Vestmannaeyjum en á Hellissandi. Það er metinn afli úr sjó í flokka. Þar kemur fyrsti þáttur verðmætamatsins inn. Miðað við 3500 tonn af þorski á Hellissandi gaf hvert tonn af sér 12 857 kr. eða alls 45 millj. kr. Miðað við 12 þús. tonn af þorskafla í Vestmannaeyjum á sama tíma gaf hvert tonn af sér 13 333 kr. eða 160 millj. kr. Það er 5% meira aflaverðmæti fyrir þennan fisk frá Vestmannaeyjum en Hellissandi. Það er verulegur verðmætamunur, svo mikill að í rauninni er hann óeðlilegur. En þó ætla ég ekki að gefa skýringar á því. Það kann að vera að þar spili inn í ákveðin aflahrota sem gekk yfir Breiðafjörð s.l. vertíð, þar hafi komið talsvert af skemmdum fiski sem er ekki óeðlilegt þegar mikið berst á stuttum tíma. En þetta er hins vegar niðurstaðan. (SkA: Er þm. að tala um 1984?) Ég er að tala um verðmæti pr. tonn 1984. Þar situr hv. þm. í súpunni og ég ætla ekki að eyða fleiri orðum í það.