24.10.1985
Efri deild: 7. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í B-deild Alþingistíðinda. (162)
Um þingsköp
Kolbrún Jónsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins koma hér í ræðustól og taka undir þau orð frá stjórnarandstöðunni sem hér hafa komið fram og sérstaklega benda á að hæstv. forseti, sem er kona og hefur skrifað undir þessa áskorun til íslenskra kvenna um að leggja niður störf í dag, ég vil eindregið beina mínum orðum til hennar, að hún nú í þetta sinn, á þessum degi hlutist til um að þessari umræðu verði frestað, að þessum fundi verði frestað, að þessi afbrigði komi ekki hér til atkvæðagreiðslu og þetta mál fái þinglega meðferð. Það er mikilvægt að frv. til laga fái þinglega meðferð og það fari ekki hér fram sú endurtekning á því sem hv. 4. þm. Norðurl. v. kom að hér áðan. Þrátt fyrir að það séu jafnvel fordæmi fyrir því að fundur hafi verið settur á þessum tíma í hæstv. Ed. er það ekki til fyrirmyndar. Ef ég man rétt er hann að benda til afgreiðslu á lögum um framleiðslu og sölu á landbúnaðarvörum sem nú er kvartað undan að hafi kostað ríkissjóð 600 millj. eða svo að koma í framkvæmd. Þetta er ekki Alþingi til fyrirmyndar og ég vildi bara sérstaklega benda á það að nú fyrir örskömmu síðan voru teknar 20 millj. í lán upp í þessar 600 millj. sem það kostaði þingið að samþykkja þessi lög, ef satt er sem lesið er í blöðunum. Og ég vil undirstrika það að hæstv. forseti hefur vald til þess nú að leggja til að þessum fundi verði frestað og málið fái þinglega meðferð.