19.12.1985
Efri deild: 40. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1925 í B-deild Alþingistíðinda. (1629)
151. mál, geislavarnir
Frsm. meiri hl. (Davíð Aðalsteinsson):
Virðulegi forseti. Heilbr.- og trn. hefur haft þetta mál til meðferðar og fengið á sinn fund Örn Bjarnason forstjóra Hollustuverndar ríkisins, Sigurð Magnússon forstöðumann geislavarnadeildar, Ingimar Sigurðsson stjórnarformann og Davíð Á. Gunnarsson stjórnarmann Hollustuverndar ríkisins.
Meðferð þessa máls í heilbr.- og trn. var nokkuð hröð. Það kom fram við umfjöllun málsins að nauðsynlegt væri af ýmsum ástæðum, þó einkum einni, að afgreiða þetta mál núna fyrir áramót með tilliti til þeirra skipulagsbreytinga sem frv. hefur í för með sér. Með lögum frá 1982 voru Geislavarnir ríkisins lagðar niður sem sjálfstæð stofnun og Hollustuvernd ríkisins falið að annast þá starfsemi sem Geislavarnir ríkisins höfðu haft með höndum. Árið 1984 var síðan stofnuð sérstök deild vegna geislavarna. Þar með var að vissu leyti viðurkennt að starfsemi Geislavarna yrði að vera sér á báti. Starfsemin félli ekki nægilega vel að starfsemi annarra deilda. Hún væri það frábrugðin í raun og veru. Það má segja að þessi ákvörðun 1984 hafi verið fyrsta skrefið af því sem nú hefur verið lagt til. Þess vegna má halda því fram að þetta frv. feli í sér að skrefið sé í reynd stigið til fulls.
Ég minnist þess og ég veit að aðrir hv. nm. og raunar deildarmenn allir minnast þeirra raka sem lágu til grundvallar breytingunum sem gerðar voru 1982. Það er, þá var stofnunin lögð niður sem slík og felld undir Hollustuvernd ríkisins eins og ég gat um áðan. Sú aðgerð og þau rök sem færð voru fyrir þeirri aðgerð voru m.a. sparnaðarráðstafanir. Reyndar kom það fram við umfjöllun málsins í heilbr.- og trn. að e.t.v. var meginástæðan þó sú, þrátt fyrir allt, að það hefði reynst nauðsynlegt að vista þessa stofnun, þetta verksvið einhvers staðar.
Það var mikið fjallað um kostnað vegna þessarar stofnunar á þeim tveimur fundum nefndarinnar sem málið var til meðferðar. Ég vil leyfa mér að vitna til umsagnar Fjárlaga- og hagsýslustofnunar í því sambandi, en þar stendur með leyfi forseta:
„Vísað er til umsagnar Fjárlaga- og hagsýslustofnunar um frv. til l. um geislavarnir, dags. 25. nóvember s.l. Var þar bent á að ólíklegt væri að frv. um geislavarnir sem sérstaka stofnun hefði ekki kostnaðarauka í för með sér frá núverandi fyrirkomulagi. Sameining hinna ýmsu deilda Hollustuverndar ríkisins var auk þess gerð með þeim rökum að til sparnaðar og hagræðingar mundi leiða. Auk þess kostnaðarauka sem vafalítið hlýst af sérstakri stofnun í stað deildar innan Hollustuverndar ríkisins hefur nú komið fram brtt. um stjórn stofnunarinnar sem leiðir til aukins kostnaðar. Þann kostnað má ætla um 200 þús. kr. á ári og er þá reiknað með þóknun til forstöðumanns fyrir setu á fundum og undirbúnings þeirra. Slíkt tíðkast gjarnan.
Loks skal lögð á það áhersla, sem og í fyrri umsögn, að kostnaðarauki við frv. í heild falli ekki á ríkissjóð, heldur verði gengið þannig frá að eftirlitsgjöld standi undir rekstri.“
Eins og hv. deildarmenn hafa tekið eftir þá varð breyting á frv. í Nd. þess efnis að stofnuninni yrði skipuð sérstök þriggja manna stjórn og verksvið hennar að nokkru leyti tíundað. Sú skipan hefur í för með sér, að dómi Fjárlaga- og hagsýslustofnunar, töluverðan kostnaðarauka. Ég hygg að ég geti mælt fyrir munn heilbr.- og trn. og sagt að hún geri niðurlagsorð Fjárlaga- og hagsýslustofnunar að sínum, það er að þarna verði ekki um aukinn kostnað að ræða sem falli beint á ríkissjóð. Þess vegna er hiklaust hægt að halda því fram að heilbr.- og trn. leggi áherslu á það að starfsemi Geislavarna verði alfarið kostuð af eigin tekjum, tekjum sem stofnunin aflar sjálf fyrir þjónustu sem hún veitir, enda þótt heildarrekstur kunni eitthvað að aukast við samþykkt þessa frv.
Virðulegi forseti. Ég tel ekki ástæðu til þess að hafa fleiri orð um þetta frv. en get þess að nefndin varð ekki einhuga í afstöðu sinni til málsins. Hún klofnaði í meiri og minni hl. Minni hl., hv. þm. Kolbrún Jónsdóttir, skilar séráliti og mun vafalaust gera grein fyrir afstöðu sinni til málsins. En niðurstaðan er þessi, að því er meiri hl. varðar, að hann leggur til að frv. verði samþykkt eins og það var afgreitt frá Nd.