19.12.1985
Neðri deild: 39. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1932 í B-deild Alþingistíðinda. (1650)

190. mál, gjaldþrotalög

Frsm. (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Allshn. deildarinnar hefur athugað frv. til l. um breyting á gjaldþrotalögunum, sem er 190. mál, eftir að málið hafði komið til Nd. frá Ed. með breytingum sem Ed. samþykkti á frv.

Allshn. hefur fjallað um þær breytingar en þær eru ekki stórvægilegar. Í fyrsta lagi er um nokkra orðalagsbreytingu að ræða við 2. gr. frv. og tvær viðbætur við 2. og 4. gr. til þess að gera textann skýrari, en fela ekki í sér neinar efnisbreytingar. Allshn. hefur orðið sammála um að þessar breytingar séu til bóta, hefur samþykkt þær og leggur til að frv. í þeirri mynd, eins og það er komið til Nd. frá Ed., verði samþykkt.

Undir þetta álit allshn. rita, auk mín, Ólafur Þ. Þórðarson, Guðrún Helgadóttir og Stefán Guðmundsson, en fjarstaddir voru Friðjón Þórðarson, Pálmi Jónsson og Guðmundur Einarsson.