19.12.1985
Neðri deild: 41. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1968 í B-deild Alþingistíðinda. (1670)
2. mál, lánsfjárlög 1986
Frsm. 1. minni hl. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Það er rétt, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði hér áðan, að það hefur ekki áður verið gerð tilraun til þess að setja upp tölur um hugsanlegan greiðslujöfnuð við útlönd fyrir komandi ár á þessum árstíma með þeim hætti sem hér er gert. Hins vegar þá vara ég við því að menn slái því föstu að þar með þekki þeir árið 1986 út í hörgul. Það hefur nefnilega áður gerst að lánsfjáráætlanir hafi ekki staðist ákaflega vel, m.a. lánsfjáráætlun ársins 1985 sem var samþykkt í júní með erlendum lántökum upp á 4,6 milljarða kr. Niðurstaðan í desember, fimm mánuðum seinna, reyndist vera 7,1 milljarður kr. Ég held því að það væri varlegt fyrir menn að hæla sér um of fyrr en þeir sjá niðurstöðu næsta árs í ljósi þess hvernig áætlanagerð stjórnarliðsins hefur tekist til þessa.
Ég vil hins vegar, herra forseti, vekja sérstaka athygli á þessu fskj., sem meiri hl. var svo vinsamlegur að dreifa, sem ber yfirskriftina Greiðslujöfnuður við útlönd 1984-1986. Þar kemur fram viðskiptajöfnuður á árunum 1984, 1985 og 1986. Það var eins og kunnugt er eitt meginmarkmið ríkisstj. að draga úr erlendum lántökum og stuðla að viðskiptajöfnuði. Niðurstaðan liggur hér fyrir á meðalgengi hvers árs. Hún er sú að árið 1984 var viðskiptajöfnuðurinn neikvæður um 4,1 milljarð, 1985 um 5,2 milljarða, 1986 um 5,5 milljarða. Samtals á þessum tíma sýnist mér viðskiptajöfnuður á verðlagi þessa árs, 1985 hafi verið neikvæður í þrjú ár um 15 milljarða kr. Það er full ástæða til að vekja athygli á þessu, frá þeirri ríkisstj. sem ætlaði sér að keyra niður erlendar lántökur, ætlaði sér að stuðla að viðskiptajöfnuði. Þannig er fjármálasnilldin ákaflega skýr á þessu þskj. hér, viðskiptahalli upp á 15 milljarða kr. sem er auðvitað ekkert annað en ávísum á auknar erlendar lántökur. Hér eru afar fróðlegir hlutir á ferðinni og mér þykir vænt um að meiri hl. fjh.- og viðskn. skuli hafa verið svo hugulsamur að leggja fram hér þessa ótvíræðu sönnun við 3. umr. málsins, þannig að ekkert þurfi að fara á milli mála um þá fjármálasnilld sem ráðið hefur ríkjum í ríkisstj. Steingríms Hermannssonar í þrjú ár.
Ég hef hins vegar ekki, herra forseti, hugsað mér að ræða um þessi mál í einstökum atriðum við þessa umræðu, heldur ætla ég að rifja hér upp nokkrar spurningar sem ég bar fram við 2. umr. málsins til nokkurra ráðherra.
Fyrst til hæstv. félmrh. Gert er ráð fyrir því að veita 200 millj. kr. til sérstakra ráðstafana í húsnæðismálum 1986 skv. yfirlýsingum ráðherrans. Engar upplýsingar liggja fyrir um það hvaðan þessa peninga á að taka. Engar upplýsingar liggja fyrir um það að ríkisstj. ætli að leggja á sérstaka skatta í þessu skyni á árinu 1986 og þess vegna hlýt ég að spyrja hæstv. ráðh.: Hvaðan á að taka þessar 200 millj. kr.? Hvaða liðir í útgjaldaáætlun Húsnæðisstofnunar ríkisins eru það sem á að skera niður á næsta ári?
Í annan stað vil ég beina fsp. til hæstv. félmrh. og hv. 2. þm. Norðurl. e., hins virðulega skrifara deildarinnar. En þannig er að hann hefur nokkuð látið til sín taka í svokölluðum húnæðissamvinnufélögum. Og á nefndarfundi í fjh.- og viðskn. um níuleytið í gærmorgun vorum við nefndarmenn upplýstir um að það væri meiningin að lána til húsnæðissamvinnufélaga á næsta ári og félmrh. hefði tekið um það ákvörðun. Þetta gladdi auðvitað mitt hjarta að hæstv. félmrh. skyldi hafa tekið á sig rögg og tekið fram fyrir hendurnar á einum aðaltalsmanni ríkisstj. í húsnæðismálum, hv. þm. Halldóri Blöndal. Ég vil fullvissa hæstv. ráðherra um það að við munum gera okkar besta, alla vega við Alþýðubandalagsmenn, til þess að standa við bakið á hæstv. ráðherra í þessu máli. En engu að síður er óhjákvæmilegt að fá það skýrt hvort hér er um að ræða ákvörðun sem tvímælalaust verður staðið við. Og það var þess vegna sem hv. 2. þm. Norðurl. e., Halldór Blöndal, lagði fram nokkrar fsp til húsnæðismálastjórnar í gær og spurði um þetta mál. Í svari Húsnæðisstofnunar ríkisins kemur fram að húsnæðis- og búsetafélög hafa sótt um leyfi til að byggja 234 íbúðir á næsta ári. Stjórnir verkamannabústaða hafa sótt um að byggja á því ári 358 íbúðir. Sótt hefur verið um að byggja 66 leiguíbúðir sveitarfélaga og Félagsstofnun stúdenta hefur sótt um leyfi, ásamt námsmannasamtökum, til þess að reisa 100 íbúðir. Þá hafa Samtök aldraðra í Reykjavík óskað eftir því að fá að byggja 8 íbúðir á vegum Byggingarsjóðs verkamanna. Í svari Húsnæðisstofnunar ríkisins kemur fram að lánveiting til Búseta byggist, að mati Húsnæðisstofnunar, á tilteknum lagagreinum eða eins og segir í bréfi Húsnæðisstofnunar, með leyfi forseta:
„Lánveitingin til Búseta er í samræmi við 58. gr. laga nr. 60/1984 og 24. gr. reglugerðar nr. 89/1985, þar sem kemur m.a. fram að aðilum, sem byggja leiguíbúðir skv. c-lið 33. gr., er heimilt að selja leigutaka eignarhlut í íbúð með ákveðnum kvöðum.“ Síðan segir: „Þeir aðilar sem nefndir eru hér að framan“ - og ég hef áður talið upp - „hafa allir lagt inn umsóknir. Enginn þeirra er kominn eins langt í undirbúningi og Búseti eða hefur lagt inn önnur gögn sem eru í samræmi við gildandi lög um Húsnæðisstofnun ríkisins.“ M.ö.o., Húsnæðisstofnun telur að engar umsóknir sýni að menn séu komnir eins langt og byggingarsamvinnufélagið Búseti í þessu efni. Og engar aðrar umsóknir séu í samræmi við lögin. Þetta sé í raun og veru eina gilda umsóknin sem fyrir liggur fyrir árið 1986. Þess vegna er ekki að furða þó hæstv. ráðh. hafi tekið ákvörðun um það að þessir aðilar hlytu að komast þarna inn þar sem þeir eru í samræmi við lög en aðrir ekki að mati þeirrar stofnunar sem hann stýrir.
Síðan segir hér, með leyfi forseta: „Húsnæðismálastjórn samþykkti á fundi 30. október s.l. að heimila Búseta að byggja 15 íbúðir með 15 mánaða framkvæmdatíma að uppfylltum skilyrðum sem sett hafa verið af húsnæðismálastjórn og staðfest af ráðherra.“ Hér er m.ö.o. komið að því deilumáli sem oft hefur verið rætt hér á milli stjórnarflokkanna þar sem Framsfl. hefur alltaf látið beygja sig í þessu máli, hann hefur látið undan ofríki Sjálfstfl, eins og hv. þm. Ingvar Gíslason og hæstv. forseti deildarinnar kallaði það, látið undan ofríki íhaldsins í þessum málum, þangað til nú að fyrir liggur að hæstv. félmrh. hefur skrifað bréf og tekið ákvörðun. Og ég er að halda þessa ræðu hér til að heita félmrh. stuðningi mínum í þessu efni. Hins vegar teldi ég ástæðu til þess að aðalmálsvari Sjálfstfl í húsnæðismálum í þessari deild, hinn virðulegi skrifari deildarinnar, tjái sig nokkuð um þetta mál til þess að heyra megi hvort hann hafi skipt um skoðun í málinu og látið sannfærast af þeim fortölum og þeim rökum sem hér hafa verið flutt, m.a. af okkur Alþýðubandalagsmönnum og sérstaklega hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni.
Það var þetta, herra forseti, sem ég vildi nefna varðandi húsnæðismál. Síðan kem ég að Lánasjóði ísl. námsmanna. Ég ræddi þau mál nokkuð í dag og ætla ekki að endurtaka það hér en ég hafði tvær spurningar að leggja fyrir hæstv. ráðh. sem eru eitthvað á þessa leið:
Hefur ráðherra tekið ákvörðun um að skerða lán Lánasjóðs ísl. námsmanna um 30% eins og Fjárlaga- og hagsýslustofnun telur nauðsynlegt ef miða á við töluna 1,2 milljarða, eins og hún mun vera í lánsfjárlögunum núna? Ef hann hefur tekið ákvörðun um að skerða lánin um 30%, þýðir það þá ekki það að þar með væri komið aftan að íslenskum námsmönnum sem hafa fengið yfirlýsingar um full lán á síðari hluta námsársins 1985-1986? Ef aftur á móti hvorugt gerist þá er ljóst að ráðherrann hlýtur að gera ráð fyrir tekjuöflun í Lánasjóð ísl. námsmanna og hann hugsi sér að leita til fjmrh. með 300-500 millj. kr. aukafjárveitingabeiðni þegar kemur fram á árið 1986. Ef svo er þá væri auðvitað hreinlegast að leiðrétta þessa tölu strax vegna þess að hún er bersýnilega markleysa hvernig sem hlutirnir eru skoðaðir. Ef hins vegar ráðherra lætur það gerast að úthlutun fari fram með venjulegum hætti á fyrri hluta ársins 1986 þá er sjóðurinn tómur í júní 1986 og ekki króna eftir til þess að veita lán til íslenskra námsmanna úr lánasjóðnum á síðari hluta ársins 1986.
Þessar athugasemdir vildi ég láta hæstv. ráðh. menntamála heyra og inna hann eftir því hvernig hann sér fyrir sér framkvæmdina á þessum niðurskurði.
En úr því að ég er að tala við hæstv. menntmrh. og er svo gæfusamur að hafa hann í salnum, þegar ég er hér að halda eina stutta tölu, og vegna þess að málið snertir fjármál og vegna þess að það snertir menntmrn. þá verð ég að leyfa mér að spyrja hæstv. ráðh. um það hverju það sæti að hann kaupir hús hér í bæ. Þannig mun vera að hæstv. menntmrh. hefur keypt hús Mjólkursamsölunnar. Mér er ekki kunnugt um að það sé stafur um það hér í lánsfjárlögum eða fjárlagafrv. og mér er ekki heldur kunnugt um það að fjvn. hafi frétt af því að hæstv. menntmrh. væri að kaupa hús. Nú er það vafalaust svo að Þjóðskjalasafnið er vel að húsi komið, það dreg ég ekki í efa. Hitt kynnu einhverjir að hafa talið að úr því að fé var aflögu í ríkissjóði þá hefði kannske verið fullt eins skynsamlegt að hraða verulega Þjóðarbókhlöðunni með þeim fjármunum, þar sem það mun og vera svo, að mér er fortalið, að fyrir Þjóðskjalasafnið hafi verið tekið á leigu húsnæði fyrir nokkrum mánuðum og að í fjárlagafrv. fyrir árið 1986 séu peningar til að innrétta það húsnæði. Ég bið hæstv. menntmrh. að svara því hverju það sæti að hann, við þessar aðstæður þegar þing situr, fjárveitinganefnd er að störfum sólarhringum saman, lætur sig hafa það að kaupa, svo að segja einhendis, hús Mjólkursamsölunnar fyrir Þjóðskjalasafnið. Og ég vil einnig spyrja hæstv. ráðh., ef það er ætlun hans að kaupa þetta hús og samningar eru jafnvel frágengnir, hvort það sé ekki meiningin að leggja þetta mál fyrir Alþingi þannig að það verði tekin afstaða til þess við afgreiðslu fjárlaga? Það hlýtur auðvitað að vera þannig en ég vil spyrja vegna þess að ég verð var við það að þetta kom mörgum þm. á óvart.
Í dag spurði ég svo hæstv. forsrh. um það hvað liði áformum um flutning Byggðastofnunar til Akureyrar. Ég vildi gjarnan að hæstv. ráðh. greindi mér frá stöðu þess máls við þessa umræðu líka þar sem hér er á dagskrá umræða um Byggðastofnun og fjárveitingar til hennar.