19.12.1985
Neðri deild: 41. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1990 í B-deild Alþingistíðinda. (1688)

194. mál, nefnd til að kanna viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips hf.

Frsm. meiri hl. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti meiri hluta en hann mynda auk mín Friðrik Sophusson, Ólafur G. Einarsson og Halldór Blöndal. Í nál. á þskj. 387 segir svo:

„Nefndin hefur athugað frv. og rætt við Markús Sigurbjörnsson skiptaráðanda. Það er álit nefndarinnar að rannsóknarnefndin eigi að hafa samráð og samvinnu við skiptaráðendur.“

Það er meining okkar að rannsóknarnefndin eigi að starfa þannig að með engum hætti truflist starf skiptaráðanda, sem er að sjálfsögðu mjög mikilvægt, en fylgi síðan eftir ef henni þykir ástæða til eða sýndist að skiptaráðandi vildi ljúka málinu áður en öll kurl væru komin til grafar. Við leggjum áherslu á að þarna verði samvinna á milli og teljum að með því verði best tryggð vönduð rannsókn þessa máls.

Ég þarf ekki að taka það fram að við getum ekki fallist á þá brtt. sem koma frá minni hlutum um málið.