19.12.1985
Neðri deild: 41. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1990 í B-deild Alþingistíðinda. (1689)
194. mál, nefnd til að kanna viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips hf.
Frsm. 1. minni hl. (Jón Baldvin Hannibalsson):
Herra forseti. Það hefur löngum verið kunnugt að rannsókn þessa máls á vegum skiptaráðanda fer fram innan settra og lögbundinna marka. Þess vegna er það mín skoðun að það hefði af öllum ástæðum verið mun skynsamlegra og eðlilegt að Alþingi hefði kosið sérstaka nefnd á vegum þingsins svo sem 39. gr. stjórnarskrár gerir ráð fyrir undir slíkum kringumstæðum. Ég met það hins vegar svo að það sé fullreynt að fyrir því sé ekki meirihlutavilji hér á Alþingi. Það er hins vegar sameiginleg krafa allra sem þetta mál þekkja að gera beri allt sem unnt er til þess að rannsaka til hlítar hvort um óeðlilega viðskiptahætti var að ræða í samskiptum ríkisbankans og skipafélagsins.
Menn kunna að bera fyllsta traust til þeirra embættismanna sem hafa fengið það hlutskipti að rannsaka þetta mál á vegum skiptaréttar. Það breytir ekki því að það eru margir aðrir þættir málsins sem eðlilegra hefði verið að þingnefnd fjallaði um og þingnefnd ein hefði getað rannsakað á viðhlítandi hátt. Ég árétta enn þá andstöðu mína við það að Hæstarétti sé blandað inn í þetta mál á þessu stigi þar sem fyrir því eru mjög veigamikil rök og reynsla að málum, sem af þessari rannsókn kunni að leiða, verði til hans vísað. Hins vegar vil ég meta það í nokkru að frv. stjórnarliða hæstv. ríkisstjórnar hefur tekið nokkrum breytingum til bóta í meðferð Ed. þar sem nokkurt tillit hefur verið tekið til þýðingarmikilla atriða sem fram hefur verið haldið af hálfu stjórnarandstöðunnar í þessu máli. Með þessum fyrirvörum vil ég að svo stöddu fallast á að frv. verði samþykkt, þó að þeir hlutir kunni að gerast í málinu síðar að við áskiljum okkur allan rétt til þess að beita okkur enn fyrir því að þingið láti þetta mál til sín taka.