19.12.1985
Neðri deild: 42. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1999 í B-deild Alþingistíðinda. (1702)
194. mál, nefnd til að kanna viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips hf.
Frsm. meiri hl. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég held að það sé öllum fyrir bestu að þetta mál verði upplýst til fullnustu og ekkert verði til sparað og reynt að vinna sem vandlegast að því að málið upplýsist. Ég held að það sé komið í eðlilegan farveg, þ.e. að skiptaráðandi fer með málið og við erum hér að samþykkja frv. til l. um sérstaka nefnd sem fylgir því eftir eða fyllir út í, fylgir málinu e.t.v. ítarlegar eftir en skiptaráðandi mundi gera ella, rannsakar m.a. mórölsk atriði málsins ítarlegar en skiptaráðandi mundi kannske gera eða aðra þætti ef henni byði svo við að horfa. Þetta held ég að sé trygging fyrir góðum og vönduðum vinnubrögðum og skipulegri rannsókn málsins.
Þegar síðan niðurstaða liggur fyrir af því starfi sem þarna verður unnið er ekkert sem hindrar þingdeildina eða einstaka alþm. í því að fara yfir málið. Ef þingdeildinni sýndist á þeim tíma eitthvað skorta á um að málið væri að fullu upplýst hefur þingið það í sínum höndum að taka málið upp á ný eða framlengja þessa skoðun með einum eða öðrum hætti.
En ég held að við eigum ekki að fara að trufla þá skoðun sem skiptaráðandi er kominn með í gang. Ég vil láta það koma hér fram að skiptaráðandi kom á fund fjh.- og viðskn. í dag og ég styrktist í þeirri trú á þeim fundi að málið væri í réttum farvegi og í góðum höndum og unnið væri að því af miklum krafti og samviskusemi.
Ég held að við ættum að geyma okkur gægjugötin en láta þar til bæra menn, þessa sem við höfum ákveðið, kanna málið núna. Ef okkur svo sýnist að eitthvað skorti á þegar þeir hafa skilað sínum niðurstöðum getum við þm. tekið málið upp að nýju til ítrekunar ef okkur svo sýnist. En ég held að við ættum alls ekki að fara að blanda okkur í þessa rannsókn á því stigi sem hún er núna og á því stigi sem hún verður næstu vikur.