20.12.1985
Neðri deild: 43. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2008 í B-deild Alþingistíðinda. (1723)
Þingfrestun neðri deild
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Ég þakka fyrir hönd þingdeildarmanna hlý orð og góðar óskir í okkar garð. Ég þakka hæstv. forseta fyrir ágæta og réttláta fundarstjórn. Ég óska hæstv. forseta og fjölskyldu hans gleðilegra jóla, árs og friðar og vona að við hittumst heil á næsta ári.
Ég þakka enn fremur skrifstofustjóra og öllu starfsfólki fyrir gott samstarf og óska þeim gleðilegra jóla. Að lokum vil ég biðja hv. þingdeildarnmenn að rísa úr sætum sínum þessum orðum til staðfestingar. - [Þingmenn risu úr sætum.]