20.12.1985
Sameinað þing: 34. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2009 í B-deild Alþingistíðinda. (1731)

201. mál, frestun á fundum Alþingis

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um frestun Alþingis. Í till. þessari geri ég ráð fyrir að fundum þingsins verði frestað frá morgundeginum, 21. desember, og að þing komi saman á ný eigi síðar en 27. janúar n.k.

Það hefur ekki verið venja að vísa till. um frestun til nefndar og geri ég ekki till. um það. Samkvæmt nýjum þingsköpum þarf hins vegar þessi þáltill. eins og aðrar að fara í gegnum tvær umræður. Geri ég tillögu um að þessari till. verði vísað til síðari umræðu þegar fyrri umræðu er lokið.