20.12.1985
Sameinað þing: 34. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2034 í B-deild Alþingistíðinda. (1739)
1. mál, fjárlög 1986
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Á spástefnu, sem haldin var í byrjun þessa mánaðar, mun hæstv. forsrh. hafa komist svo að orði að áætlanir um efnahag þjóðarinnar væru í rauninni ekkert flóknari en áætlanir hvers einstaks heimilis í landinu þar sem ganga yrði út frá því að tekjur og útgjöld stæðust á. Ætla má að einhverjum þyki það fullkæruleysislega til orða tekið um sjálfa fjárlagagerðina sem er fullt starf fjölda manna í margar vikur og mánuði og reyndist óvenju harðsnúið dæmi að þessu sinni.
Við 2. umr. um fjárlagafrv. lagði minni hl. fjvn. til að afgreiðslu þess yrði frestað og allt dæmið endurskoðað og reiknað upp á nýtt. Svo sem vænta mátti hafnaði meiri hl. Alþingis þeirri tillögu og er nú komið að lokaafgreiðslu málsins. Ljóst er að margir fulltrúar stjórnarflokkanna eru alveg jafnósáttir við þau fjárlög, sem nú á að fara að samþykkja, og við sem erum í stjórnarandstöðu. Þeir eru, eins og við, ósáttir við þá stefnu sem hér birtist þar sem vegið er að undirstöðum velferðar og samhjálpar og skorður settar við eðlilegri og nauðsynlegri þróun í þjóðfélaginu. Þeir eru alveg jafnóánægðir og við með ómarkvissa tekjuöflun og fálmkenndar tilraunir til sparnaðar í rekstri stofnana og ráðuneyta. En þeir munu gera eins og þeim er sagt og samþykkja þetta allt saman gegn betri vitund.
Við höfum nú séð nýja tekjuáætlun fyrir næsta ár. Hún er að sjálfsögðu töluvert breytt frá frv. í sinni upphaflegu mynd þar eð forsendur eru gerbreyttar. Fallið hefur verið frá veigamiklum þáttum, eins og 400 millj. kr. lækkun tekjuskatts á einstaklinga, breytingum á tollskrá og niðurfellingu ýmissa aðflutningsgjalda og undanþága frá söluskatti.
Hvort þessi nýja tekjuáætlun stenst tímans tönn eitthvað betur en aðrar slíkar er ekki gott að segja. Ýmsar stærðir hafa verið endurmetnar með tilliti til reynslu þessa árs sem nú er að mestu komin fram. T. d. er tekið mið af því að innheimtuhlutfall tekjuskatts einstaklinga hefur reynst lægra en spáð hafði verið og segir það sína sögu.
Reiknað er með 1-1,5% veltubreytingum í þjóðarútgjöldum og í heild má segja að tekjuáætlunin og þjóðhagsspá yfirleitt einkennist af mikilli svartsýni. Hún er gerð í skugga gífurlegs viðskiptahalla sem litlar horfur eru á að réttist af á næsta ári. Við sviptum tæpast upp útflutningstekjum okkar á nokkrum mánuðum, a.m.k. ekki á meðan sjávarútvegurinn er í þeirri lægð sem hann er í. Og fáir vilja hverfa aftur til innflutningshafta fyrri ára.
Ég ætla mér vitanlega ekki þá dul að ég sé betri spámaður en hagfræðingar ríkisstj., en ég get ekki varist þeirri hugsun að þeir séu einum of svartsýnir. Kreppuhugmyndirnar hafa greinilega fengið byr undir báða vængi gagnstætt því sem lesa mátti í þjóðhagsspánni fyrir einu ári. Spámenn ríkisstj. láta það engin áhrif hafa á sig að útlit er fyrir lækkun vaxta á heimsmarkaðinum og einnig er spáð verðlækkun á olíu, en hvort tveggja hefur að sjálfsögðu mikil áhrif á þjóðarbúskap okkar. Gangi þeir spádómar eftir mun það hafa veruleg áhrif til örvunar í atvinnulífi okkar, bæta hag útgerðar og væntanlega hvetja bankana til að endurlána erlend lán til arðbærra fjárfestinga.
Það veltur því á miklu hvernig fer í þessum efnum. En vafalaust er rétt að fara að öllu með gát og ofmeta ekki tekjumöguleika okkar, enda tekur það okkur langan tíma að rétta af viðskiptahallann hvernig sem þróunin verður á næsta ári.
En áður en skilist er við tekjuhlið frv. skal tekið undir þær skoðanir að tekjuöflunarkerfið þarfnist rækilegrar endurskoðunar. Um það eru flestir sammála. M.a. hefur hæstv. fjmrh. lýst því yfir að þetta kerfi sé brostið. En við endurskipulagningu þess veldur miklu hver á heldur. Kvennalistinn kvíðir þeirri endurskoðun í höndum núverandi valdhafa. Þeir hafa sýnt undarlegan skilning á því hverjir helst séu aflögufærir í þjóðfélaginu. Við höfum margoft lýst okkur andvígar því að neysluskattar verði lagðir á brýnustu nauðsynjar eins og matvæli, en veruleg ástæða er til að ætla að svo verði gert ef þessi ríkisstj. fær að ráða. Gegn því verður að vinna. Slíkir skattar leggjast þyngst á þá sem síst skyldi. Stighækkandi eignarskattur og veltuskattur á fyrirtæki eru miklu nærtækari leiðir.
Alþfl. er með margar brtt. við þetta fjárlagafrv., m.a. á tekjuöflunarleiðum ríkissjóðs. Þessar till. eru allrar athygli og umræðu verðar en til þess er varla rétti tíminn nú, enda að sjálfsögðu lagðar fram til kynningar á hugmyndum þeirra Alþýðuflokksmanna.
Gjaldahlið frv. hefur tekið nokkrum breytingum milli umræðna eins og búast mátti við. Enn er þó margt óafgreitt og óljóst, svo sem hvernig eigi að ná þeim niðurskurði, sem stefnt er að, í yfirstjórn ráðuneyta og ríkisstofnana svo og niðurskurði í tryggingakerfinu.
Nokkrar breytingar eru gerðar í nafni allrar nefndarinnar. Kvennalistinn er engu að síður enn sem fyrr ákaflega ósáttur við þær áherslur sem einkenna útgjaldahliðina og skal ég ekki endurtaka í löngu máli það sem áður hefur komið fram um þau efni. Sá rangsnúni sparnaður, sem birtist í niðurskurði á einstökum framkvæmdaliðum í mennta- og heilbrigðiskerfinu, á eftir að koma okkur öllum í koll. Hér ræður ferðinni brenglað verðmætamat og röng arðsemissjónarmið sem ég er sannfærð um að eru þjóðinni dýrkeypt.
Við erum þó ekki talsmenn óhófs á neinum sviðum og teljum raunar að margt mætti betur fara í uppbyggingu t.d. skóla, heilsugæslustöðva og dagvistarheimila. Það mundi áreiðanlega margt verða á betri veg og meira aðhalds gætt ef ákvarðanir og ábyrgð væru færð nær fólkinu.
En nú síðustu daga stækkar sífellt spurningin um það hver fari í raun og veru með fjárveitingavaldið í landinu. Hæstv. ráðherrar virðast nú komnir í hörkukeppni um það hver þeirra sé duglegastur að kaupa hús og skeyta ekki um samráð við einn eða neinn. Það hlýtur að verka ankannalega á þá, sem sótt hafa á um að staðið yrði við fögur loforð og jafnvel skuldbindingar í sambandi við Þjóðarbókhlöðu eða Listasafn Íslands, að heyra allt í einu upp úr þurru fréttir af 110 millj. kr. samningi hæstv. menntmrh. um kaup á gömlu húsi undir Þjóðskjalasafn þótt svo það safn sé að sjálfsögðu alls góðs maklegt.
Þeim hlýtur einnig að bregða í brún, sem ekki fá næga fjárveitingu til að standa við verksamning um K-byggingu á Landspítalalóð, að heyra um kaup hæstv. heilbrrh. á Vörumarkaðshúsinu í Ármúla. Sá samningur hljóðar upp á nær 80 millj. kr., en hugmyndir um kostnað við innréttingar munu hljóða upp á aðra eins upphæð.
Ekkert hefur verið fjallað um þessi kaup í fjvn., en á þskj. 364 er brtt. við 6. gr. á fjárlögum næsta árs þess efnis að heimilt verði að kaupa og innrétta húsnæði þar sem séð verði m.a. fyrir aðstöðu til rannsókna á alnæmi og taka til þess nauðsynleg lán. Síðan segir, með leyfi forseta: „Ákvörðun er bundin samþykki fjvn. Alþingis.“ Þetta ákvæði var að sjálfsögðu orðað svo að gefnu tilefni og segir brtt. meiri hl. fjvn. á þskj. 422 sína sögu um þessi mál. Hún hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Að kaupa húseign Mjólkursamsölunnar í Reykjavík að Laugavegi 162 og taka til þess nauðsynleg lán.“ Meiri hl. hefur af skiljanlegum ástæðum ekki getað orðað þá till. á sama hátt og aðrar skyldar heimildargreinar.
Hæstv. ráðherrar telja sig ekki þurfa að hafa samráð við Alþingi. Þeir taka sér það vald sem þeim hentar. Þessu hljóta alþm. og öll þjóðin að mótmæla harðlega. Á einum degi ráðstafar hæstv. menntmrh. upp á sitt eindæmi í eitt hús a.m.k. jafnhárri upphæð og ríkissjóður veitir til byggingar grunnskóla á öllu landinu á næsta ári. Og á einum degi ráðstafar hæstv. heilbrrh. upp á sitt eindæmi í eitt hús a.m.k. tvöfaldri þeirri upphæð sem ríkissjóður leggur til byggingar heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa úti á landsbyggðinni. Þessi vinnubrögð eru óafsakanleg með öllu.
Herra forseti. Við 2. umr. um fjárlagafrv. boðaði ég að Kvennalistinn mundi leggja fram nokkrar brtt. nú við 3. umr. til að reyna að ná fram leiðréttingu á fáeinum liðum. Hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir munu hér á eftir mæla fyrir þessum brtt. öðrum en till. um hækkað framlag til Lánasjóðs ísl. námsmanna og hef ég því ekki fleiri orð um þær.
Við höfum að sjálfsögðu margt fleira við gjaldahliðina að athuga. Vil ég þar fyrst og fremst nefna Háskóla Íslands.
Fyrir ári fluttum við brtt. um hækkun framlags til kennslufjár Háskólans sem ekki hlaut náð fyrir augum meiri hluta Alþingis. Það er okkur mikið áhyggjuefni hver þróunin er í uppbyggingu Háskóla Íslands þar sem því fer víðs fjarri að mætt sé á viðunandi hátt síauknum fjölda þeirra sem sækja nám á háskólastigi.
Meira en helmingur þeirrar kennslu, sem fram fer við Háskóla Íslands, er í höndum stundakennara og hefur hlutur þeirra í kennslunni farið stöðugt vaxandi. Kennsluálag á fasta kennara skólans er almennt langt umfram skyldu sem kemur stórlega niður á rannsóknarskyldunni sem á að vera 40% af vinnuskyldu háskólakennara. 10% af vinnuskyldu þeirra eru ætluð til stjórnunarstarfa, en vegna hins háa hlutfalls stundakennara fer um 30% vinnuskyldunnar í stjórnunarstörf samkvæmt þeirra eigin upplýsingum.
Við Háskóla Íslands eru um 300 starfsmenn. Haldi einhver að fjöldi þeirra, sem starfa við Háskóla Íslands, sé mikill, jafnvel óeðlilega mikill, má benda á til samanburðar að við háskólann í Sussex í Englandi er fjöldi starfsmanna um 1700 eða nær sexfaldur starfsmannafjöldi Háskóla Íslands, en nemendafjöldi hins vegar svipaður og við Háskóla Íslands.
Menn hafa velt því fyrir sér hvort hægt væri að hagræða kennslu við Háskólann á annan hátt en því er nú varið, t.d. auka sjálfsnám nemenda. Það er hins vegar óhugsandi að óbreyttum aðstæðum því að ef farið yrði út á þá braut yrði að stórbæta rannsóknaraðstöðu, sem er bágborin í mörgum greinum, og gera bókasafnið svo úr garði að það geti með réttu kallast háskólabókasafn. Það er verkefni sem ekki má dragast lengur úr hömlu.
Herra forseti. Þá er komið að Lánasjóði ísl. námsmanna. Kvennalistinn hefur frá upphafi látið málefni hans til sín taka og notað hvert tækifæri til að minna á hlutverk hans og nauðsyn þess að búa vel að honum.
Fyrsta veturinn okkar hér á þingi fannst okkur ekki anda nægilega hlýju í garð lánasjóðsins og höfðum verulegar áhyggjur af því að þm. hefðu tapað sjónum á hlutverki hans og hvert gildi hann hefði.
Á síðasta þingi virtist hafa orðið stefnubreyting meðal þm. og var allvel tekið á málefnum lánasjóðsins við afgreiðslu núgildandi fjárlaga. Þeim mun meiri vonbrigði urðu það okkur þegar ljóst varð við framlagningu fjárlagafrv. að enn á að reyna að höggva að sjóðnum og ummæli ýmissa þm. benda til að þeim þyki það við hæfi.
Ljóst er að sjóðurinn tekur til sín mikið fé og á langt í land með að standa undir sér sjálfur og gerir það auðvitað aldrei að fullu. Vöxtur sjóðsins, eða öllu heldur umfang hans, hefði þó ekki átt að koma nemum á óvart. Með síauknum kröfum um meiri og, betri menntun og með uppbyggingu framhaldsskóla um allt land hefur lánshæfum umsóknum að sjálfsögðu fjölgað mikið. Það er í mínum huga gleðileg þróun og við eigum að leggja metnað okkur í að búa sem best að námsfólki svo að allir fái notið menntunar og þroskað hæfileika sína óháð efnahag, kynferði eða búsetu. Það er svo alltaf matsatriði hvað er nóg eða hæfilegt í þeim efnum. Miðaldra fólk, eins og við erum flest hér á þinginu, minnist eigin námsára og getur sagt sögur um sult og seyru námsmanna á þeim tíma. Og kannske eru einhverjir þeirrar skoðunar að slík reynsla sé öllum holl og nauðsynleg. En fæstir vilja í alvöru hverfa aftur til slíkra hátta.
Ég er sannfærð um að námsmenn hafa ekkert á móti endurskoðun úthlutunarreglna sjóðsins og skilja réttmæti þess að kjör þeirra séu í hátt við kjör almennings í landinu. En slíkt á ekki að gerast á þann veg sem hér virðist ætlað. Öll meðferð á málefnum lánasjóðsins er fyrir neðan allar hellur og stórlega ámælisverð.
Hæstv. menntmrh. svaraði nýlega spurningum sjónvarpsfréttamanns vegna fram kominnar tillögu um niðurfellingu framlags til UNESCO. Hann var sýnilega hneykslaður á málsmeðferð og sagði í miklum umvöndunartóni: „Svona fer maður ekki að.“ Hann upplýsti fréttamann og áhorfendur um það að fyrst yrði vitanlega að endurskoða aðild að stofnuninni áður en hún væri svipt öllu framlagi. Það er auðvitað alveg rétt. En hæstv. menntmrh. og hæstv. fjmrh. og hæstv. ríkisstj.: Svona fer maður ekki að eins og þið hafið leikið á námsmenn og lánasjóð þeirra.
Það er hægt að hugsa sér að tekin sé sú ákvörðun að draga úr lánveitingum til íslenskra námsmanna vegna erfiðleika í ríkisfjármálum. Það er hægt að hugsa sér að slík ákvörðun sé tekin á miðju ári við undirbúning fjárlagafrv., en að láta svo árið líða án þess að gera minnstu grein fyrir því hvernig sjóðurinn eigi að ná því marki er vitanlega alger óhæfa. Tveir þriðju af úthlutunum lánasjóðsins fara fram á fyrri helmingi ársins og þessa dagana er verið að ganga frá fyrstu úthlutunum næsta árs. Það segir sig sjálft að námsmenn verða að vita það með góðum fyrirvara ef draga á úr lánveitingum sjóðsins svo að þeir geti gert ráðstafanir í tæka tíð.
Meðferð ríkisstj. á málefnum lánasjóðsins er alveg fráleit og afskaplega langt frá því að styðjast við raunveruleikann. Sem dæmi má nefna að til skrifstofureksturs sjóðsins er ætluð helmingi minni upphæð á næsta ári en raunveruleg rekstrarútgjöld nema nú í ár.
Við Kvennalistakonur gerum tillögu um það á þskj. 357 að hækka beint framlag ríkissjóðs til Lánasjóðs íslenskra námsmanna úr 750 millj. kr. í 1 milljarð. Okkur er mætavel ljóst að sú upphæð dugir ekki að óbreyttri starfsemi og óbreyttum úthlutunarreglum sjóðsins. Við teljum þó að hér sé um mikilvæga leiðréttingu að ræða sem bæta mundi stöðu sjóðsins verulega. Sú upphæð sem ríkisstj. vill leggja fram til lánasjóðsins þýðir einfaldlega að skera þyrfti námslánin niður um 30-40% að óbreyttum reglum. Við það verður ekki unað.
Herra forseti. Í upphafi máls míns minnti ég á orð hæstv. forsrh. á spástefnu Stjórnunarfélags Íslands um horfur í efnahagsmálum þar sem hann sagði að áætlanir um efnahag þjóðarinnar væru í rauninni ekkert flóknari en áætlanir hvers einstaks heimilis í landinu þar sem ganga yrði út frá því að tekjur og útgjöld stæðust á. Það er út af fyrir sig rétt að markmiðið er einfalt, en sniðin eru stærri en svo að hver og einn eigi hægt með að setja sig vel inn í það dæmi. Það er slæmt því ríkisfjármálin koma okkur öllum meira en lítið við. Þau eru stór hluti af lífskjörum okkar.
Á 6. síðu Morgunblaðsins er daglegur rabbdálkur sem Ólafur M. Jóhannesson skrifar. Ég þekki ekki Ólaf, en skrif hans bera oft með sér að hann hefur jarðsamband. Í gær játar hann að hafa dottað yfir sjónvarpsumræðum um ríkisfjármálin og verður það honum tilefni þenkinga um það hvort fjölmiðlar hafi slævt svo skilningarvitin að þau bregðist eingöngu við válegum tíðindum og hneykslismálum. Síðan segir hann, með leyfi forseta:
„Mér varð einnig hugsað til þess að þau augnablik er ég dottaði undir fyrrgreindu fjárlagaspjalli hefðu máske þegar allt kom til alls skipt mig miklu máli persónulega. Reyndar varð mér hugsað til vinar míns eins er átti lítinn dreng á leikskóla. Svo var mál með vexti að drengurinn bast vináttuböndum við eina fóstruna á leikskólanum. En svo fór fóstran að vinna á skrifstofu. . . ég gat ekki neitað laununum. . .var svarið sem pabbi drengsins fékk þegar þeir feðgar kvöddu uppáhaldsfóstruna. Næstu mánuði komu fóstrur og fóru eins og hvítir stormsveipir. Litli drengurinn gerðist ódæll og fór einförum, ekki bætti úr skák að yfirvinnan hafði verið tekin af pabbanum á ríkisstofnuninni þar sem hann starfaði. Pabbinn varð að leita sér að aukavinnu á nýjum stað og sást æ sjaldnar heima. Litli drengurinn byrjaði í alvöruskóla. Einn góðan veðurdag kom hann með bréf heim til pabbans frá kennaranum. Þar stóð m.a.: . .. sýnir merki um streitu, náum litlu sem engu sambandi við nemandann, fer lítt fram í námi. Pabbinn leggur frá sér bréfið...hann kveikir hugsi á sjónvarpinu. Af skerminum brosir við honum snyrtilegur hagfræðidoktor: Lækkun ríkisútgjalda er möguleg en erfið. Mörgum útgjaldaþáttum verður að fórna sem sannarlega eru allra góðra gjalda verðir og gott væri að hafa efni á. Pabbinn slekkur á doktornum, hann stendur upp úr sjónvarpsstólnum og gengur inn í herbergi sonar síns, horfir á sofandi barnið þar sem það hjúfrar sig að gamla slitna bangsanum. Ég skal kaupa handa þér nýjan bangsa á morgun í nýju fríhöfninni, hvíslar pabbinn. Hann á bókað flug daginn eftir á fimm daga ráðstefnu í Köben þar sem ræða á bætta nýtingu fjármagns í ríkisstofnunum.“
Herra forseti, ég lýk hér með máli mínu að sinni.